KRreykjavik.is er óopinber heimasíða stuðningsmanna KR. Að síðunni standa þrír bræður úr Vesturbænum sem hafa verið aldir upp með annan fótinn í KR-heimilinu og hafa allir leikið upp yngri flokka KR. Markmið síðunnar er að sameina stuðningsmenn KR og halda upp frjálsum umræðum um félagið undir lágmarkseftirliti. Síðan hefur starfað undir þessum formerkjum síðan 24. febrúar 2006. Við reynum eftir fremsta megni að halda upp stöðugum fréttaflutningi og birtast að meðaltali tæplega tvær fréttir á dag. Spjallborðið er það allra virkasta á meðal stuðningsmannasíða á Íslandi.
Ritstjórarskipti urðu í ágúst mánuði 2010. Þeir Jón Bjarni Kristjánsson, Páll Kristjánsson og Stefán Karl Kristjánsson sögðu skilið við síðuna og við starfinu tók Hjörvar Ólafsson sem nú ritstýrir síðunni.