
| S | M | T | W | T | F | S |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « Ágú | ||||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | |||
| 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | ||
Okkur barst fyrir skemmstu pistill frá gömlum vini okkar, Punisher. Lesendur síðunnar muna eflaust vel eftir Punisher, en hann í slagtogi, við Assholer, hélt svo að segja spjallinu á KRreykjavik-síðunni gangandi í langan tíma áður en ný síða opnaði. Nokkra stund tók að þýða pistilinn yfir á okkar ástkæra ylhýra móðurmál, þar eð ritstíll Punisher, var vægast sagt haftalítill. Í þýðingunni höfum við stillt pistlinum í hóf og vonandi verður að hann til að móðga sem fæsta.
Komið þið sælir kæru Íslendingar.
Punisher heiti ég og frá Tyrklandi er. Líf mitt hefur verið ein þrautarganga, ekki ólíkt gengi KR, míns dáða liðs, það sem af er þessu sumri. Ég prísa mig þó sælan, því jafnvel hér í Tyrklandi kunna óvildarmenn sig. Þeir sem horn í síðu minni hafa, ýmissa hluta vegna, hafa þannig ávallt séð sóma sinn í því berja ekki á mér þegar byrðir lífsins hafa verið sem þyngstar. En þessu virðist öfugt farið hjá ykkur á Fróni. Þannig hafa andstæðingar KR, svo smáborgaralega, hnýtt stöðugt, sumarlangt, í félagsmenn stórveldisins og ýft upp sár þeirra ítrekað. Jafnvel hér á Tyrklandi, þykir ljótt að sparka í þann er í duftinu liggur. En slíkt þykir augljóslega herramannsháttur í útnárum stór-Reykjavíkursvæðisins!
Þar sannast hið fornkveðna; þegar kötturinn sefur þá bregða mýsnar á leik, því þið eruð lítið meira en mýs. Litlar, loðnar mýs með titrandi snjáldur, lífs-logandi hræddar við kattardýrið sem dormar úti fyrir holunni ykkar. Og það megið þið vita, að eins og Napóleon vísaði til Kína sem sofandi risa, þá tölum við hér í Tyrklandi á sama hátt um KR, og þegar kötturinn vaknar þá verða mýsnar étnar!!
Munið, næst þegar þið hnýtið í KR-kisann, að dramb er falli næst, og stuðningsmenn liða á borð við HK ættu að hafa þetta á bak við blautu eyru sín, því séu þið svo græn og grunlaus að það hvarfli að ykkur eitt einasta augnablik að árið 2007 marki einhverskonar kúvendingu í fótboltasögulegum skilningi fyrir örverpið úr Kópavogi þá skjöplast ykkur, andskotinn hafi það, allverulega!!
Og Guð og góðar vættir forði okkur frá því að fhingar haldi áfram á sinni sigurbraut, ef ekki nema fyrir þá ástæðu eina að forða spjallborðum íslensks fótbolta frá yfirmátaleiðin-legum, illkvittnum og fram úr hófi barnalegum athugasemdum áhangenda liðsins. Allra þriggja! Ég er ekki frá því að Assholer, hafi haft meira til málanna að leggja á gömlu síðunni, heldur en gjörvallur Hafnarfjörður, þó leggðust þar allir á eitt!!
Þá má náðarsamlegur Drottinn beina manni aftur heim álpist maður af rælni inn á spjallsíðu þá er haldið er úti af göflurunum sjálfum, því aðra eins dómadagsvitleysu hefi ég sjaldan lesið og þá er flæðir um síðuna þar. Hvurn skrattann á manni til að mynda að finnast um þennan svokallaða Silfurref? Er þetta einhver fígúra eins og Silvía Nótt eða Gilsneggerinn ykkar? Er þetta einhvers konar ,,annað sjálf” manns, sem ætlað er að skopstæla samfélagið og tilbúin vandamál þess, á heimskulegan og óþolandi hátt, í því skyni að öll megum við draga af því einhvern siðferðislegan lærdóm sem ætlaður er til að bæta og fylla líf okkar? EÐA ER ÞETTA BARA ALGER !$%”/%”!/&???!!!!!
Og hvernig háttar að skyndilega megum við aðdáendur KR úti um allan heim, þola háðsglósur frá Völsurum! Af öllum jaðarhópum samfélagsins, sem hægt er að velja úr, og við neyðumst til að hlusta á Valsara?? Má ég frekar biðja um hnýtingar og svívirðingar frá félagskonum samtaka feminísta, því þær vita vafalítið meira um knattspyrnu en Valsarar!! Og, meðan ég man, hvurnig í útvötnuðum andskotanum komust Valsarar með puttana í peninga?! Var ekki samstaða meðal helstu félagsliða, mektarmanna og stjórnarflokka ykkar íslenska lýðveldis, að knésetja liðið fjárhagslega og þannig setja loks punktinn fyrir aftan þennan kafla í sögu Reykjavíkur??!! Það er ekki langt síðan að birtist grein hér í dagblaðinu, Turkish-do-tell, að sérfræðingar á vegum Reykjavíkurborgar, höfðu til að innsigla fullnaðarsigur á Vali, hannað algerlega og fullkomlega óþarft, morðdýrt og viðurstyggilega stórt umferðarmannvirki til þess eins að koma því haganlega fyrir á æfingaaðstöðu Valsmanna við Hlíðarenda!!En svo urðu Valsarar bara ríkir í staðinn!!!En það er eins og sagt er í Tyrklandinu góða; ef ekki í dag, þá á morgun!!
Og þessi orð held ég að stuðningsmenn smáliða íslensks fótbolta (það er að segja öll þessi lið sem spila bara í litum sem hægt er að finna í regnboganum af því að það er svo djöfulli krúttlegt og fjölskylduvænt að mig langar helst til að feta í fótspor Ödypusar og plokka úr mér hvítuna ) ættu að gera að sínum. Því ef ekki þetta mót, þá hið næsta. Og þegar 2008 rennur í garð þá munu KR-ingar enn og aftur, ótrauðir, berja sér á brjóst og fullum hálsi hrópa gífuryrðin því við erum stórveldi, við erum kötturinn og við étum mýs í morgunverð!!
Hér í Tyrklandi hrista menn höfuðin. Virðingarleysið sem sem stórveldi íslenskrar knattspyrnu er sýnt er ofar okkar skilningi. Fótbolti hefur nefndur verið þjóðaríþrótt Íslendinga, síðan glíman dó drottni sínum, og hefur leikinn verið í yfir hundrað ár. Og hver kynnti Íslendingum hann? Hvert var fyrsta félagið? Hver hefur farið fyrir öðrum á þessu sviði í yfir árhundrað á Íslandi? Hverjum er þakka en þolir þess í stað níð og niðurrif? Byltingin étur börnin sín, var sagt þegar franska stjórnarskipulaginu var umturnað, og þau orð sanna sig enn og aftur á Íslandi!!
Kveðja frá Tyrklandi.
Punisher
p.s. FH…up your’s!!
Vá þetta var einhver fyndnasti pistill sem ég hef lesið, vill þakka Punisher fyrir þessa frábæru lestningu og hló ég mikið að þessu.
[…] Pistill 1 Pistill 2 Pistill 3 Pistill 4 Pistill 5 Pistill 6 […]

