Hér birtum við svör Sjálfstæðisflokks við þremur næstu spurningum okkar en þær voru
3. Það eru engir battavellir í Vesturbæ Reykjavíkur. Gervigrasvöllurinn fyrir aftan Landakot er ekki battavöllur. Hvenær megum við eiga von á þeim fyrsta?
4. Það er staðreynd að börn úr Vesturbæjarskóla og Landakotsskóla skila sér illa inn í íþróttastarf KR. Margir rekja þá staðreynd til þess að hættulegt sé að fara yfir Hringbrautina. Í langan tíma hefur verið rætt um gerð undirganga en ekkert bólar á þeim. Hvenær getum við vænst þess að hin langþráðu undirgöng verði að veruleika?
5. Fyrir tveimur árum voru kynntar hugmyndir að miklum framkvæmdum á lóð KR þar sem meðal annars átti að byggja stóra áhorfendastúku. Þessar framkvæmdir féllu um sjálft sig þegar hrunið varð. Hvaða sýn hefur borgin á þeim málum í dag?
3. Það eru engir battavellir í Vesturbæ Reykjavíkur. Gervigrasvöllurinn fyrir aftan Landakot er ekki battavöllur. Hvenær megum við eiga von á þeim fyrsta?
Battavöllur (þ.e. upphitaður og afgirtur sparkvöllur með gervigrasi og lýsingu) er á félagssvæði KR, vestan við gamla íþróttahúsið. Á sínum tíma óskuðu KR-ingar sérstaklega eftir því við borgaryfirvöld að hann yrði lagður þar en ekki á skólalóð og var orðið við því. Bætt aðstaða til íþróttaiðkunar og leikja í hverfum borgarinnar er eitt helsta áherslumál Sjálfstæðisflokksins. Stefna flokksins er að slíkir battavellir verði lagðir við alla grunnskóla borgarinnar, auk körfuknattleiksvalla og aðstöðu fyrir aðrar íþróttagreinar og leiki eftir því sem við verður komið og óskir eru um hverju sinni frá íbúum. Nú stendur yfir metnaðarfullt átak við endurgerð skólalóða í borginni og framlög til þess liðar hafa verið stóraukin á kjörtímabilinu. Sjálfstæðisflokkurinn mun halda því átaki áfram, fái hann til þess stuðning borgarbúa í komandi borgarstjórnarkosningum.
Á síðasta kjörtímabili áttu borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins frumkvæði að því að flytja tillögur um lagningu battavalla og sparkvalla í Vesturbænum. Sérstök áhersla var lögð á að fá battavöll í Gamla Vesturbæinn sem var þá eina hverfi borgarinnar sem var án sparkvallar með mjúku yfirborði, þ.e. hvorki með grasi né gervigrasi. Þáverandi meirihluti R-listans samþykkti sumar tillögurnar en framfylgdi ekki, aðrar voru beinlínis felldar, t.d. tillaga Sjálfstæðisflokksins um lagningu battavallar í Gamla Vesturbænum sem felld var í framkvæmdaráði borgarinnar í ársbyrjun 2006.
Sl. tvö ár hefur verið unnið ötullega að þessum málum undir forystu Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins í Íþrótta- og tómstundaráði og Menntaráði. Rétt er að vekja athygli á því að mun lengri tíma tekur að undirbúa lagningu battavalla, áður en hægt er að hefjast handa, en hefðbundinna sparkvalla þar sem úrskurðað hefur verið að battavellir þurfi að fara í gegnum formlegt deiliskipulagsferli með allri þeirri tæknivinnu og skriffinnsku sem því fylgir. Þá hefur samdráttur tekna borgarinnar af völdum fjármálakreppu vissulega dregið úr getu hennar til nýframkvæmda. Engu að síður hefur margt verið gert sl. tvö ár og fleira er í undirbúningi eins og meðfylgjandi upptalning sýnir:
Sparkvöllur (grasvöllur) var lagður á opnu leiksvæði í Bauganesi 2008. Gervigras var sett á sparkvöll við Öldugötu í maí 2009 og þar með bætt úr skorti á ,,mjúkum” velli í Gamla Vesturbænum. Æfingasvæði KR við Starhaga var stækkað og endurbætt haustið 2009. Körfuknattleiksvöllur úr gúmmíefni (tartani) var lagður við Hagaskóla haustið 2009. Deiliskipulag var samþykkt vegna battavallar við Grandaskóla í október 2009. Deiliskipulag var samþykkt vegna battavallar við Vesturbæjarskóla í nóvember 2009. Tillaga Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks um völlinn hefur verið samþykkt í Íþrótta- og tómstundaráði og er stefnt að því að hann verði lagður á árinu 2010. Samþykkt hefur verið í Menntaráði Reykjavíkur tillaga Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks um að hefja deiliskipulagsvinnu við lóð Melaskóla og þar verði m.a. gert ráð fyrir battavelli. Er raunhæft að ætla að hægt verði að leggja völlinn árið 2011 og munu borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins beita sér fyrir því. Jafnframt var tekið undir ósk Foreldrafélags Melaskóla um að stærra svæði í kringum skólann verði deiliskipulagt.
4. Það er staðreynd að börn úr Vesturbæjarskóla og Landakotsskóla skila sér illa inn í íþróttastarf KR. Margir rekja þá staðreynd til þess að hættulegt sé að fara yfir Hringbrautina. Í langan tíma hefur verið rætt um gerð undirganga en ekkert bólar á þeim. Hvenær getum við vænst þess að hin langþráðu undirgöng verði að veruleika?
Að frumkvæði borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins hafa bætt göngutengsl yfir Hringbraut verið til skoðunar hjá umferðarverkfræðingum borgarinnar og hefur sérstaklega verið litið til göngubrúar og undirganga í því sambandi. Göngubrú er æskilegri kostur en erfitt, ef ekki ómögulegt, virðist vera að koma henni fyrir vegna þrengsla við Hringbraut. Undirgöng eru almennt óæskilegur kostur þar sem sýnt hefur verið fram á að margir, ekki síst konur og börn, veigra sér við að nota þau og kjósa fremur að fara yfir götuna þótt undirgöng séu til staðar. Verði göng grafin undir Hringbraut er líklegast að þau yrðu nálægt Vesturbæjarskóla, annað hvort við gatnamót Bræðraborgarstígs eða Framnesvegar. Sennilega þyrfti að taka aðra akreinina á þeirri götu, sem valin yrði, undir mannvirkið. Þrátt fyrir mikla skoðun liggur því ekki fyrir augljós kostur í þessu mikilvæga máli en málið verður áfram til skoðunar og hafa borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins á meðan óskað eftir því að göngutengsl yfir Hringbraut verði bætt eftir því sem kostur er, t.d. með lengri göngutíma ljósanna við Bræðraborgarstíg og Framnesveg.
Að undanförnu hefur þó margt verið gert í því skyni að auðvelda börnum úr Gamla Vesturbænum að sækja frístundastarf við Frostaskjól. Um sl. áramót var nýtt og glæsilegt frístundaheimili, Frostheimar, opnað við Frostaskjól fyrir börn úr 3. og 4. bekk en staðsetningin gefur góða möguleika á frekari samþættingu við íþróttastarf KR og tónlistarskólans Do re mi á sama stað. Að loknum skóla flytur sérstök rúta börnin úr Vesturbæjarskóla í Frostheima og í lok dags fá þau börn, sem þess óska, göngufylgd yfir Hringbraut að Vesturbæjarskóla eða í sitt heimahverfi.
Borgarstjórn samþykkti í desember sl. tillögu Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks um sérstaka fjárveitingu til að styrkja svokallaðar frístundasamgangna en undir þær falla rútuferðir íþróttafélaga, m.a. rútuferðir þær sem KR stendur fyrir til að tengja Gamla Vesturbæinn við KR svæðið. Margt hefur því verið gert til að auðvelda börnum úr hverfinu að sækja íþróttastarf KR þrátt fyrir þann farartálma sem Hringbrautin vissulega er.
5. Fyrir tveimur árum voru kynntar hugmyndir að miklum framkvæmdum á lóð KR þar sem meðal annars átti að byggja stóra áhorfendastúku. Þessar framkvæmdir féllu um sjálft sig þegar hrunið varð. Hvaða sýn hefur borgin á þeim málum í dag?
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins eru reiðubúnir til að skoða allar hugmyndir um skipulag KR-svæðisins í samvinnu við KR og íbúa í hverfinu. Umræddar hugmyndir voru til slíkrar skoðunar þegar aðstæður breyttust til hins verra í efnahagslífi þjóðarinnar árið 2008. Reikna má með að fjárhagslegar forsendur framkvæmdanna, eins og þær voru kynntar á sínum tíma, hafi breyst verulega. Allar slíkar hugmyndir verður jafnframt að fjalla um í formlegu skipulagsferli með aðkomu íbúa áður en formleg afstaða verður tekin til þeirra.
Ánægður með þessi svör. Greinilega mikill metnaður lagður í þetta.
Kjartan Magnússon skrifaði, 9 mars 2010
Þakka þér fyrir það Páll.
Jon Bjarni Kristjansson skrifaði, 9 mars 2010
An thess ad gerast flokkspolitiskur tha virdist manni KR ekki eiga malsvara hja neinum flokkum, odrum en Sjalfstaedisflokknum og eg er anaegdur med thessi svor, thau eru vondud.
KR-ingur skrifaði, 9 mars 2010
En afhverju var ekki lagður battavöllur í gamla Vesturbænum á því kjörtímabili sem er að líða?,er liðinn 4 ár frá 2006,En virðist á svörum að Sjálfstæðisflokkurinn sé sá eini sem vilji gera eitthvað fyrir KR.
Dolli skrifaði, 10 mars 2010
Vel gert Kjartan Magnússon. Nú þarf bara að klára stærsta hagsmunamál KR síðustu áratugina, Grýtureitinn.
Pétur Blöndal skrifaði, 13 mars 2010
Takk fyrir að birta þessar athugasemdir hérna. Það gott að sjá að viljinn til að bæta félagslegu störfin hjá KR nær út fyrir lóðamörk KR-heimilisins. KR í sinni stærstu mynd er helsta kennileiti Vestur-bæjarins og því þarf að bæta aðgengi allra í vesturbænum til að taka þátt í þeim félagslegu störfum sem í boði eru hjá KR. Varðandi athugasemd 3 finnst mér í ljósi þess að umferðin við Hringbraut hindrar börn austan megin við hana að taka þátt í störfum KR, að við gætum litið á nýjar staðsetingar af útibúum KR sem gætu teygt sig inn í nýtt deiliskipulag Gömlu Hafnarinnar þ.e. alla leið út á Granda. Bara til að kasta þeirri hugmynd fram.
Jon Bjarni Kristjansson skrifaði, 15 mars 2010
Eg vil beina theirri fyrirspurn til Kjartans Magnussonar hvenaer vid megum eiga von a svorum vid theim spurningum sem utaf standa?
Og ef fulltruar annarra flokka reka augun i thessa fyrirspurn tha taki their hana til sin.