.
8. mars 2010

29 notendur svöruðu " Pælingar um leikmannakaup og fleira "

Færslan "Pælingar um leikmannakaup og fleira" var skrifuð af Hjorvar og hefur fengið 29 athugasemd(ir)

Daddi skrifaði,         
9 mars 2010

Ég get ekki verið sammála þér Hjörvar. Kannski ertu að reyna að útbúa hér “mótvægi” við grein Páls en mér finnst þetta of langt gengið.

Hugtakið “samkeppni er af hinu góða” er mjög slæm afsökun sem menn draga fram þegar þeir geta ekki almennilega réttlætt eitthvað heldur fara í frasana (undantekningin á reglunni, fall er fararheill…). Því miður er staðreyndin bara sú að KR hefur á síðustu árum orðið að klúbbi þar sem það er ekki eðlileg samkeppni. Mjög góðir ungir leikmenn eru traðkaðir niður með kerfisbundnum hætti þar sem þeir kannski standa sig mjög vel á undirbúningstímabilinu gegn sterkum liðum en svo er keyptur þekktari leikmaður beint í þeirra stað og þessir strákar þurfa að hanga á bekknum allt sumarið.

Helsta hættan við þetta er að þessir strákar fá ekki þá reynslu sem þeir þurfa hjá KR og ég er hræddur um að fleiri og fleiri fari að átta sig á því og færi sig um set. Hjá liðum eins og FH og Breiðabliki fá góðir ungir leikmenn að spila vegna þess að þeim er treyst. Þeir verða því að betri leikmönnum og nýtast félaginu vel í framtíðinni. Hjá KR er litið á það sem veikleika í hópnum ef það “þarf” að spila á ungum uppöldum KR-ing í einhverri stöðu.

Þetta er að mínu mati skömm og blettur á okkar frábæra félagi og við ættum að tala einni rödd á móti þessu.

Ég er svo algjörlega ósammála því að Páll hefði mátt telja upp á 10 áður en hann skrifaði grein sína, þetta er fín grein hjá honum og leiðinlegt að sjá menn gera svona lítið úr ritstjóra síðunnar.


Damus7 skrifaði,         
9 mars 2010

Tala einni röddu? Hahahahaha.


GÞF skrifaði,         
9 mars 2010

Mark: 2 út, 2 inn(væntanlega)
Vörn: Engin breyting
Miðja: út: Jónas Guðni, Atli Jóh inn: Viktor
Sókn: út: Prinsinn, Gummi Ben og Gummi Pé in: Kjartan Henry og Guðjón Baldvins.

5 sterkir miðju og sóknarmenn farnir og 3 komnir í staðinn. Þeir sem koma eru allt fyrrum leikmenn að koma tilbaka úr atvinnumennsku. Má alveg deila um nauðsyn þess að ná í bæði Guðjón og Kjartan, en engin ástæða til að missa sig.


Hjörvar skrifaði,         
9 mars 2010

Það er nú líklega það síðasta sem ég myndi gera að gera lítið úr stórvini mínum Páli. Eina sem ég var að benda á að koma með mín sjónarmið varðandi leikmannakaup klúbbsins og þá þróun sem hefur átt sér stað. Það er mín skoðun að góðir uppaldir leikmenn eigi að fá sjénsinn ef að þeir sanna sig sem úrvalsknattspyrnumann. Eigum við ekki nógu góða knattspyrnumenn til þess að verða meistarar verðum við að líta annað. Ég vil meina að KR hafi gert meira af því en menn vilja meina. Ef við tökum bara frá minni kynslóð og áfram þá sjáum við að minn árgangur það er 85 árgangurinn var bara ekki nógu góður. Úr 86 árganginum fékk Kjartan Henry klárlega sjensinn áður en hann hélt í atvinnumennsku og gaman að fá hann aftur. Aðrir þar eru hreinlega ekki nógu góðir. Emmi fékk sjensinn áður enn hann fór út. Mögulega mætti Gunni Kri fá fleiri sjensa en mér finnst ekkert útséð með að hann fái tækifæri í dag. Það myndi mér finnast ósanngjarnt miðað við hvernig hann hefur verið að spila undanfarið. Af 88 árganginum er Skúli Jón orðinn fastamaður. Af 89 árganginum varð Guðmundur Reynir fastamaður og komst í atvinnumennsku. 90 árgangurinn er að mínu mati bara í þróun og ættu að sýna þolinmæði. Einar Bjarni, Eggert og Dabbi mættu að mínu mati fara í lán og spila eitt tímabil að fullu og öðlast reynslu og eiga svo klárlega afturkvæmt. Mér þykir sjónarmiðið eiga að vera það að menn verði að bera af til þess að spila fyrir KR og það hafi gerst undanfarin ár. Auðvitað eru margir minna félaga sem maður hefði viljað fá meiri sjens en ef maður lítur kalt og hlutlaust á málið hefur verið rétt að mínu mati að kaupa skynsamlega og rétta menn. Ekki kaupa bara til að kaupa eins og stundum áður hefur verið gert. Ég myndi aldrei í lífinu vilja hafa sleppa að kaupa Bjarna Guðjóns þó það væri gaman að hafa uppalinn mann á miðjunni, fá Stefán Loga þó gaman hefði verið að sjá Atla í markinu eða fá Bjögga í KR á sínum tíma þó gaman hefði verið að sjá Brylla uppp á topp. En það er bara mín skoðun. Til þess að vera með samkeppnishæft lið verðum við að kaupa menn en á sama tíma gefa leikmönnum sem skara fram úr úr uppeldisstarfinu sanngjarnan sjens og viðhafa eðlilega samkeppni. Í þessari skoðun minni finnast engin hallmæli á Páli eða öðrum ritstjórum síðunnar eða uppöldum leikmönnum að mínu mati. Þó svo að ég hafi viðrað þá skoðun mína í lok síðasta tímabils að stilla upp liði skipað eingöngu uppöldu liði var það líklega meiri rómantík en raunsæi. Ég myndi aldrei vilja að uppaldur leikmaður spili bara af því hann er uppalinn, ekkert frekar en aðkeyptur bara af því að það hefur kostað að fá hann til liðsins.


Fannar skrifaði,         
9 mars 2010

Hjörvar enginn leikmaður sannar sig sem úrvaldsdeildar leikmmann ef hann fær 0 mínótur til þess. þá verður hann að gera það annar staðar.
KR voru ekki bestir í 2 flokki síðasta sumar! þeir voru lang bestir. en þessir leikmenn sanna sig aldrei sem úrvaldsdeildarleikmenn án þess að fá að spila í úrvaldsdeild.
Ef KR finnur ekki nothæfa leikmenn í 2 flokknum sem þeir eiga núna. þá gera þeir það líklega aldrei.


Hjörvar skrifaði,         
9 mars 2010

Ekki ætla ég að gera lítið úr árangri 2.flokks karla á síðasta ári. Ég held að ég móðgi engan þegar ég segi að þeir þrír sem ég nefndi úr 90 árganginum áðan, það er Eggert, Dabbi og Einar Bjarni auk Ingó, Dofra og Egils Jónssonar eru einu sem eru nálægt liðinu eins og staðan er í dag. Mitt mat er að Eggert, Einar Bjarni og Dabbi séu ekki nægilega sterkir til að vera byrjunarliðsmenn í KR liðinu í dag. Með því er ég ekki að afskrifa þá eða segja að þeir hafi enga möguleika á því að verða það. Ég myndi bara segja að það væri betra að vera hreinskilnir við þá láta þá fara á lán til sterkasta liðsins sem möguleik er á að þeir verði fastamenn í og láta þá þróast þar. Aðrir hafa gert það og komið sterkir til baka og þar er skemmst að minnast Grétars sem er fyrirliði í dag. Ingó, Dofri og Egill Jónsson ættu svo að fá sanngjarnan sjens. Mitt mat er að Dofri hafi staðið sig vel og eigi heimtingu á byrjunarliðssæti, Ingó er náttúrulega mikið talent og á að veita kantmönnum sanngjarna samkeppni og Egill Jónsson á að vera þolinmóður. Held að ég særi hann ekki þegar ég segi að hann er ekki sterkari en Bjarni Guðjónsson og Baldur Sigurðsson í dag.


Björn skrifaði,         
9 mars 2010

Ég verð að lýsa undrun minni á þessu. Bæði að þessi grein sé sett hérna ofan í grein Páls, að því er virðist til að draga athygli frá henni og svo er ég bara svo ósammála þessu.

Þetta var þörf og góð áminning frá Palla og það er morgunljóst að Fannar hittir naglann á höfuðið. Menn verða ekki góðir ef þeir fá aldrei séns og KR hefur ekki vott af áhuga fyrir að gera neitt úr þessum strákum, því miður. Að fyllast panikki þegar uppaldir strákar spila og þurfa að kaupa í þeirra stað hefur alls ekki styrkt KR sem klúbb á undanförnum árum. Þvert á móti sjáum við lið eins og FH og Breiðablik (eins og Daddi nefnir) gefa strákum ALVÖRU tækifæri og þeir verða að góðum leikmönnum sem nýtast félaginu til lengri tíma. Það er ekkert charity að leyfa þessum strákum að spila leiki fyrir KR heldur eðlilegt og heilbrigt.

Við megum svo ekki blanda þessu öllu saman og halda því fram að það megi aldrei kaupa neinn en að mínu mati er munur á uppöldum leikmönnum og öðrum, ég vil frekar sjá uppaldan leikmann spila en annan jafngóðan sem er ekki KR-ingur. Svo er þetta bara svo mikið frat sem verið er að lýsa á strákana okkar. Þeir eru margir nógu góðir til að fá sénsana en hafa ekki fengið þá.


GÞF skrifaði,         
9 mars 2010

Ég er sammála Hjörvari í sínum vangaveltum.
Það eru fleirri að fara en koma í staðinn, sem skapar augljóslega meira pláss fyrir unga leikmenn. Ingólfur, Egill og Dofri eru nær liðinu nú en í fyrra. Það er lang skynsamlegast fyrir alla aðila að Dabbi fari á lán, það var það líka áður en Guðjón er fenginn til liðsins. Í raun snýst þetta bara um Gunna Kristjáns, hann er sá eini sem er í verri stöðu. Gunni hefur verið sjóðheitur í vetur, en hann er núna 1 af 4 sóknarmönnum. Í fyrra voru það Prinsinn, Bjöggi, Gummi Ben og Gummi Pé núna eru það Kjartan Henry, Bjöggi, Gunni og Guðjón Baldvins. Gunni er ekki sá fyrsti sem slær í gegn í vormótum, Garðar og Gummi Pé hafa gert það áður svo það er enginn ávísun á árangur í sumar.
Mér finnst þetta upphlaup algjör stormur í vatnsglasi, Gunni er augljóslega nær liðinu í ár en hann var í fyrra.
Getur einhver bent á einn uppalinn leikmann sem hefur ekki fengið sénsinn í KR og slegið rækilega í gegn annarsstaðar?


KR-ingur frá 1899 skrifaði,         
9 mars 2010

Kristján Finnbogason - Höskuldur Eiríksson - Grétar Sigfinnur eru ágæt dæmi um slíka menn


GÞF skrifaði,         
9 mars 2010

Stjáni er leikjahæsti leikmaður KR frá upphafi og Grétar er fyrirliði KR í dag. Það að þeir tóku skrefið niður um deild reyndist mjög farsælt fyrir þá og félagið. Eggert og Dabbi geta vonandi fylgt í þessu fótspor, þó er vonandi nóg að leigja þá.


KR-ingur frá 1899 skrifaði,         
9 mars 2010

Þú spurðir bara um leikmenn sem fengu ekki sjensinn hjá KR og blómstruðu annars staðar.


Fannar skrifaði,         
9 mars 2010

Stjáni væri örugglega með fleiri leiki fyrir KR, ef menn hefðu bara haft trú á honum strax, það sannaðist hjá ÍA að hann var næginlega góður til að spila á hæðsta level.
Hvað ef hann hefði bara hætt í fótbolta? eftir að hafa verið hafnað hjá KR sem unglingi?
ætli þessi dæmi séu til?
og hvaða rétt hafa þeir menn að kalla hann júdas í dag því hann fer að þjálfa hjá Val?
hann fékk ekki tækifæri sem unglingur hjá KR þurfti að fara annað til þess.
sama má segja um Grétar hann er búinn að þurfa að spila með helminginum að félögunum í Rvk áður en hann fékk að koma heim í KR.
Þetta er allt um hugsunar hátt.
hvernig meistara lið viltu eiga í KR.
Ég er ekki að segja að það eigi ekki að fá menn til félagsins.En það þarf ekki alltaf að leita langt yfir skammt


GÞF skrifaði,         
9 mars 2010

Stjána fékk sénsa með KR áður en hann fór upp á Skaga. Hann nýtti þá ekki vel. Grétar fannst mér eiga rétt á meiri sénsum á sínum tíma, en Willum hafði ekki trú á honum.
En þetta eru einu dæminn, menn sem skiluðu sér heim aftur. Stjáni fór fyrir 20 árum síðan, þannig að þetta er ekki að gerast oft. Dæmin um menn sem fengu sénsinn ungir og fóru út í atvinnumennsku eru mun fleirri.


Björn skrifaði,         
9 mars 2010

Amen Fannar.


Hjörvar skrifaði,         
9 mars 2010

Svo við byrjum á FH þá hafa þeir byggt liðið sitt á útlendingum aðallega Dönum og aðkeyptum leikmönnum og framúrskarandi FH-ingum í bland. Nákvæmlega það sama og ég vil gera. Tommy Nielsen, Allan Borgvardt, Tryggvi Guðmundsson, Söderlund og fleiri voru máttarstólpar í liðinu og heimamenn í kring. Munurinn á FH og KR eru að þeir árgangar sem eru á toppi ferils síns núna var betri en þeir árgangar KR. 84 árgangur FH er einhver sá besti í áraraðir og þvi ekki skrýtið að þeir séu margir í liðinu. Vissulega var 88 árgangurinn góður hjá okkur og úr honum hafa skilað sér Skúli Jón og Mummi sem aldeilis fengu sjensinn. Brylli fékk svo sjensinn en meiðsli urðu til þess að hann náði aldrei að stimpla sig rækilega inn. Það var ekki KR að kenna. Skúli Jónsson ákvað að snúa sér að tónlistarferil sínum og höfuðið ekki á réttum stað. Það var ekki KR að kenna. Grímur fór aftur í Fram. Það var ekki KR að kenna. Atli Jónasson hefur verið óheppinn með feril sinn. Ég móðga Atla ekki þegar ég segi að ég sjái ekki eftir því að hafa fengið Stefán Loga á sínum tíma. Hefði hins vegar viljað sjá Atla taka við af honum, en Andre Hansen stóð sig reyndar vel. Það er hins vegar einlæg von mín og hefur alltaf verið að sjá Atla verja mark KR. Hvað varðar Ásgeir Örn þá segi ég sama um hann og Egil Jónsson að hann er ekki sterkari miðjumaður en Baldur og Bjarni. Hefði hins vegar alveg mátt veita Rutgers samkeppni í fyrra og mögulega og jafnvel líklega ekkert endilega slakari kostur í hafsentinn. Mér þykir ekkert að því að menn um tvítugt sem eru við það að komast í liðið fari í eitt-tvö ár annað á lán þróist þar og komi svo aftur í KR um 23-25 og blómstri. Skil ekki óþolinmæðina. Það á ekki að spila mönnum í KR sem eru ekki efni í að vera meistarar.
Hvað varðar Blikana þá vil ég í fyrsta lagi benda á að þegar allt hrósið var hversu mörgum ungum leikmönnum þeir hefðu á að skipa voru þeir með 4 eða 5 útlendinga, Arnar Grétarsson og Marel Baldvinsson. Magnús Páll Gunnarsson var svo fyrsti maður af bekknum. Auk þess finnst mér ekki hægt að tala um að lið hafi slegið í gegn fyrr en það vinnur Íslandsmeistaratitil eða kemst í Evrópukeppni á annan hátt en að vinna Bikarkeppnina án þess að kasta rýrð á þá keppni.
Skil ekki vælið í að fá nýja leikmenn þegar leikmannakaup síðustu ára hafa flest annað hvort í að skila okkur atvinnumanni eða fært okkur nær titlinum eftirsótta.


Björn skrifaði,         
9 mars 2010

Minnumst ekki á Kidda Magg og Eggert.

Rifjum upp hvað gerðist í aðdraganda þess að Teitur var rekinn á sínum tíma. Inn í liðið voru komnir ungir, öflugir strákar í stað “stjarnanna” og KR hafði ekki tapað nokkrum leikjum í röð. Þá varð allt brjálað og Teitur rekinn, enda var því hótað að annað hvort færi Teitur eða þessar steikur sem voru hættir að geta neitt og voru komnir á bekkinn.

Þó það sé rétt hjá þér t.d. með Stefán Loga og Atla og að einhverjir séu betri en aðrir finnst mér alveg skelfilegt að lesa KR-ing halda því fram að þessi stefna KR sé bara hugarburður okkar. Það er augljóst hverjum sem vill sjá að KR hefur töluvert mikið á móti því að spila á uppöldum leikmönnum ef hægt er að komast hjá því. Þess vegna eru menn jú að gagnrýna þetta, ekki vegna þess að menn eru bara að ímynda sér eitthvað út í loftið.


GÞF skrifaði,         
9 mars 2010

KR var í neðsta sæti með 7 stig eftir 11 umferðir þegar Teitur var rekinn. Hafði vissulega náð 3 jafnteflum í röð, en það var með því að spila leiðinlegasta fótbolta sem ég hef séð spilaðan.


Heskey skrifaði,         
9 mars 2010

Teitur átti að sitja inni í lágmark 2 ár fyrir taktíkina sem KR var að spila á þessum tíma…


Dani skrifaði,         
9 mars 2010

audvitad eiga strakarnir ad fa sens, alltaf gaman ad fa ‘alvoru’ KR-inga i lidid, en tid getid ekki verid ad segja ad vid eigum ad vera med lid buid til ur bolugrofnum taningum?!
eigum ad lana ta nidur um deild, teir spila tar og sanna sig og koma aftur og brillera i KR.


KRingur skrifaði,         
10 mars 2010

Hjartanlega sammála þér Hjöbbi.. Þið megið ekki gleyma því líka að Kjartan er uppalinn KR-ingur og hann er að koma heim. Gaui Bald er fæddur í vesturbænum og byrjaði að æfa í KR. Það þarf líka að átta sig á því að uppöldu strákarnir sem hafa verið að koma upp eins og t.d Eggert, Dabbi og fl. virkilega fínir strákar en þeir hafa ekki verið með hausinn í lagi. Þegar ég segi hausinn í lagi þá meina ég, mæta illa á æfingar, mæta ekki á þær aukaæfingar sem eru í boði, djamma óhóflega.
Það er bara þannig að þeir sem eru reiðubúnir að vera í meistarliði verða að vera nógu góðir í fótbolta og í toppstykkinu. KR hefur alltaf verið lið sem vill vinna allt og verður því að standa undir þeim væntingum.


KR skrifaði,         
10 mars 2010

Hvernig getur maður sem er að skrifa inná þessa síðu verið sammála þessari kaupstefnu KR, hversu oft hefur KR brennt sig á að kaupa og kaupa leikmenn. Jú mjög oft og hversu margir koma upp sem leikmenn? Hjörvar , enginn kemur upp úr 87 árgangnum , einn sem spilar eitthvað af viti úr 88 , einn úr 89 árgangnum sem fær ekki að spila í fyrra, það vita það flestir KR-ingar að Mummi er mun betri heldur en jordao og óskar til dæmis.Og þetta eru leikmenn sem eru settir i bakvörðinn og eru ekki þeirra stöður, finnst þér Hjörvar vera bara gott meðaltal af leikmönnum sem skila sér upp í mfl.? og ekki fara að segja að þeir nýta ekki sýna sénsa og framvegis, þeir fa ekki sénsa !!


GÞF skrifaði,         
10 mars 2010

Úr 87 árgangnum er Emmi atvinnumaður í Svíþjóð og Gunni Kristjáns. Hvaða leikmenn eru það sem hafa ekki fengið tækifæri hjá KR undanfarin ár?? Væri gaman að fá einhver dæmi.


KR skrifaði,         
10 mars 2010

útaf því að emmi var ekki lengstum af í noregi eða? og gunni kri er bolaður út núna.
EKki fengið tækifæri get nefnt alla þessa stráka, getur þú sagt mér að þeir hafi skitið á sig í þessum leikjum ? Nei, þeir hafa staðið sig bara vel i þessum leikjum í vetur, þannig þetta er ekki rétt GÞF.


GÞF skrifaði,         
10 mars 2010

Hvað ertu að reyna að segja? Liðið hefur staðið sig vel í vetur það er enginn að deila um það.

Emmi var einhver rúm 2 ár í Start, Gunni var í liðinu allt tímabilið 05 og góðar líkur á því að hann spili töluvert í sumar.

KR ætlar sér í titilbaráttu, alltaf. Þeir sem eru nógu góðir til þess komast í lið, aðrir eru lánaðir og vonir bundnar við að þeir bæti sig. Það er ekki til eitt dæmi um leikmann sem hefur blómstrað annarsstaðar síðan núverandi fyrirliði gerði það. Að fá 3 fyrrum leikmenn heim í stað 5 sterkra sem eru farnir er til að halda liðinu í toppbaráttu.
Leikmannastefnan sem Rúnar hefur stýrt eftir að hann kom heim er til fyrirmyndar.


KR skrifaði,         
10 mars 2010

Afhverju er þá verið að fá fleiri leikmenn þegar liðið er búið að spila vel og er taplaust? mér finnst það mjög skrýtin stefna og treystu mer gunni kri fer! hann er buinn að spila mjög vel og þá er fenginn annar leikmaður sem er stærra nafn og gunni verður settur út í kuldann!


Hjörvar skrifaði,         
11 mars 2010

Miðað við getu árganga síðustu ára er 1-3 leikmaður úr hverjum árgangi eðlilegt að minu mati. Sé engan leikmann sem hefur verið bolað úr KR síðustu ár og hefur til að mynda verið í liði í topp fimm á Íslandi. Þó svo að Gaui Bald sé kominn er ekki útséð að mínu mati að Gunni Kri fái sjensinn. Spili hann eins og hann hefur verið að gera á undirbúingstímabilinu hefur hann að mínu mati sömu eiginleika og Guðjón Baldvins og ætti að eiga jafna möguleika á að spila.
Leikmannastefan sem hefur verið við lýði eftir að Logi og Pétur tóku við sem þjálfarar og Rúnar sem yfirmaður knattspyrnumála er til fyrirmyndar að mínu mati með þeirri undantekningu sem fyrr hefur verið nefnd. Það er Prinsinn.
Þegar við unnum allt 99 vældi enginn yfir því að Bjarki Gunnlaugs, Júri, Sissi Júl, Vinnie, Steini Jóns, Gummi Ben og fleiri væru aðkeyptir. Það hefði verið órað að fá ekki Veigar, Kristján Örn og Kidda Hafliða sem mynduðu hrygginn í liðinu sem vann titilinn síðast. Ég get vel viðurkennt að árin þar á milli komu kaup sem ekki gengu upp en með tilkomu þríeykisins Loga, Péturs og Rúnars hafa kaupin alla jafna verið skynsamleg og liðið í hárréttri þróun. Jónas Guðni, Bjarni Guðjóns, Gunnar Örn, Viktor Bjarki og Guðjón Baldvins og fleiri allt góð kaup að mínu mati. Sé því ekki hví menn eru svona brjálaðir þegar leikmaður sem klárlega getur hjálpað til við að verða meistari er keyptur. Umræðan um það hvort að eðlileg samkeppni sé í liðinu er svo önnur umræða. Hef áður sagt það að ég er ósáttur við að Dofri hafi verið tekinn úr liðinu og vil að Ingó pressi meira á kantsæti en sýnt var í leiknum á móti Viking. Auk þess er það skoðun mín að eins og Gunni Kri hefur veirð að spila á undirbúningstímabilinu sé það hlutverk Guðjóns Baldvins að slá hann út sem hraði senterinn ekki öfugt. Þeir hafa að mínu mati sömu eiginleika. Býð svo enn eftir lista yfir þá leikmenn sem KR hefur bolað í burtu undanfarin ár og gætu hjálpað KR að verða meistari. Eina nafnið sem ég hef séð er Gunni Kri. Verði hann áfram í KR þykir mér eins og áður segi það vera verk Gau Baldvins að slá hann út úr því hlutverki að vera hraði senterinn en ekki öfugt. En sú umræða snýr ekki að innkaupastefnu KR liðsnis heldur mati á því hvor leikmaðurinn spilar betur og gerir meira fyrir liðið.


Dusan Galovic skrifaði,         
13 mars 2010

Hvað með Jökul, hann gæti verið í KR liðinu?


GÞF skrifaði,         
13 mars 2010

Jökull var byrjunarliðsmaður í KR frá 2002 til og með 2005, 18-22 ára gamall, svo hann fékk nú tækifærið. Framfarirnar vori því miður takmarkaðar. Stóð sig frábærlega í upphafi en svo fjaraði þetta einhvern veginn út. Fór í Víking og í nám til USA. Hann gæti mögulega verið í KR liðinu í dag, verður fróðlegt að sjá hann í Kópavoginum. Hann er ekki leikmaður sem var hrakinn frá félaginu eins og umræðan er hér að ofan.


.. skrifaði,         
13 mars 2010

Ég er ekki sammála þessu sem Hjörvar skrifar, og finnst svolítið skrýtið að hann skrifi nánast ofan í Pál.


Velkomin(n) gestur, skildu eftir athugasemd hér fyrir neðan

  Nafn

  Netfang (ekki birt)

  Vefsíða



Skráðu athugasemd hér fyrir neðan

Fylgstu með umræðum í gegnum Athugasemda RSS eða TrackBack