Pirraður fyrir hönd brósa? Gummi P fer nú út og Gaui inn, þetta kemur út á jöfnu, bara betri samkeppni..
Ánægður með þessa grein. Gömul en þörf ádeila ! Palla Kri í stjórn KR.
Greynilegt hver er bitur útí lífið því að lilli bró er ekki nógu góður og fær ekki breik í líðinu. Samkeppni er fín fyrir svona stóran klúbb. Og svo eru líka uppaldir leikmenn í byrjunarliðinu. Skúli, Grétar og Kjartan.
Vá hvað ég er sammála þessari grein. Það er nógur mannskapur fyrir og tel ég það óþarfi að strengja bogann svona hátt til að fá “einhver” nöfn í klúbbinn. Menn vilja víst titilinn í vesturbæinn en hvað með að byggja ofan á það sem til er og eiga síðan uppalda drengi til að koma inn í liðið og verða að mikilvægum mönnum í hóp ?
Ég vona að stjórnin fari að hugsa betur um drengina sem eru að koma upp og þeir fái sénsinn annars fara þeir bara í aðra klúbba og slá þar í gegn.
Áfram KR
Rugl er nógur mannskapur fyrir,þetta eykur bara leiðindi hjá leikmönnum og styrkir KR ekkert.
Jón G er greinilega sterkur í stafsetningu!
Annars hjartanlega sammála þessu, fáranleg þessi kaupastefna félagsins!
hvada rugl er í gangi hérna, byggja þetta lið upp með ungu strákunum! Fá Davið birgis og jón kára í hóp og gefa þeim séns sem hafa verið að púla frá barnsaldri og líta á það sem draum draumanna að spila fyrir stórveldið. Magnað blogg hjá þér
Ég og fólkið í kringum mig mætum á hvern einasta leik, en eitthvad verður nú lítið um það ef þetta á að verða einhver skrípaleikur í sumar. Engin sál í liðinu eins og þú segir. Áfram KR
Heyr heyr Páll. Helvíti málefnalegt líka af mönnum að rífa upp úr heilabúinu á sér rökin “Kaupum sem flesta þar sem Gunnar er bróðir Páls”.
Við höfum álíka mikið við fleiri sóknarmenn að gera og Ási Haralds hefur fyrir Seltirning.
Hjartanlega sammála Páli. Mætti halda að Ási Haralds væri að stjórna leikmannakaupunum í KR enda telur hann sig geta keypt hjörtu heilu félaganna.
Við erum með frábæran hóp eins og er og það er segin saga að það að hrófla of mikið við liðum og kaupa of mikið getur haft slæm áhrif. Til hvers að kaupa ef þess þarf ekkki!! Það sjá það allir að við erum með besta hópinn í dag og hverhi veikan blett að finna fyrir utan markverjuna. Markammskaup eru einu réttlætanlegu kaupin eins og staðan er núna.
Við urðum Íslandsmeistarar í 2.fl. í fyrra nú liggur ljóst fyrir að það verður í mesta lagi 1 á bekknum úr þessa íslandsmeistara liði hinir fara allir í burtu eða að lán. Það er enginn leikmaður úr 2. né 3. flokki sum mun spila með mfl. á komandi árum.
Ég er algjörlega sammála, ég er að vísu ekki KR-ingur en ég fylgist með þeim þar sem ég þekki marga þaðan og ég skil ekki þessa kaupstefnu.
Þetta er farið að líkjast Tottenham þar sem það eru tvöfalt fleiri sóknarmenn en miðjumenn.
viljidi slaka a!! gudmundur petursson var omurlegur. gudmundur baldvinsson a orugglega eftir ad fara ut aftur og bjoggi spilar ekki forever og ta koma strakarnir sterkir inn.
og haettid tessu rugli
haha verð nú fyrir mitt leyti að segja að ég sé bara mjög ánægður með þessa grein! Enda var ég að henda inn þessari pælingu á vissan hátt hérna í gær. Menn sem ætla að fara að blanda fjölskyldutengslum í þetta eru greinilega of vitgrannir fyrir umræðuna og ættu að halda sig fjarri!
Það sem er verið að tala um hérna er akkúrat það að sanka ekki bara að sér nöfnum á kostnað þess sem fyrir er. Þú lagar ekki það sem er ekki brotið!
Nú er ég alls ekki að setja út á það að fá Guðjón Baldvins þannig séð, heldur er ég persónulega ekki að skilja upp né niður í því að sanka að sér mönnum sem spila svipaðar stöður þegar það hefur verið að ganga vel í þessum stöðum í allan vetur. Það sér það hver heilvita maður að þetta mun bitna á þeim sem hafa verið að reyna að “sanna sig” í vetur og hefur ábyggilega verið talin trú um það hingað til að þeir muni fá leiki í sumar. Tja, ég sé það bara ekki alveg gerast miðað við þessar fréttir og þróun mála.
Til að impra á því þá kom einungis einn leikmaður inná í gær og það var útaf meiðslum Takefusa. Af hverju í djöflinum kom ekki Dofri inná í þessum leik, Dabbi á annan hvorn kantinn eða í sóknina, Egill Jóns inná miðjuna fyrir arfaslakan Viktor Bjarka??? Þetta var eftir allt einungis, já EINUNGIS, úrslitaleikur í Reykjavíkurmótinu! Til hvers eru leikmenn að spila frá hausti til dagsins í dag þegar þeim er sýnd þessi ógeðslega vanvirðing og vantraust þegar mestu skiptir? Ef mönnum er ekki treyst núna í byrjun mars þá vitum við það allir að þessir menn fá ekki frekar sjensinn þegar útí sumarið er komið.
Það er það sem menn eru ósáttir við og það vel skiljanlega. Því það eru allir eða flestir á því að ef menn hafa sannað sig og staðið sig þá ber að umbuna þeim. Ekki kasta þeim á glæ fyrir sér “stærri” nöfn!
Áfram KR!
Ég held að þetta muni bara bæta hópinn að fá til okkar auka framherja.
Að sjálfsögðu er Palli pirraður fyrir hönd Gunna en aðalega sé ég hann vera pirraður yfir því að ungir KR-ingar fái færri tækifæri.
Þeir leikmenn sem halda að þeir eiga áskriftarmiða í hópinn geta gleymt því í dag.
Nú þurfa allir að stíga upp.
Það verður gaman í sumar!!!
mér fannst þetta helvíti góð grein hjá þér það hefur verið alltof lengi hjá KR að yngri leikmenn fá ekki tækifæri og við kaupum frekar menn sem eru ekki KR-ingar í húð og hár! held samt að það geti varla verið verra að fá smá fjölbreytni í liðið svo lengi sem það er ekki bara til að fá einhver smá nöfn í liðið! vill sjá í sumar að ef þessir menn eru ekki að standa sig eða berjast til síðasta blóðdropa að þeir séu hiklaust teknir útúr liðinu og saltaðir! KR er stórveldi ekki endurhæfingarstöð fyrir fótboltamenn sem standa sig ekki erlendis
Hvernig væri að fá Óla Gott aftur í markið?
Mér fannst mér knúinn til þess að leiðrétta sumt af þessu bulli sem fram kemur í þessari grein.
Halldór Orri Björnsson, Stjörnumaðurinn, er einungis að láni hjá Þýska neðrideildarliðinu Pfullendorf. Hann verður þar að láni fram í maí en þá kemur hann heim og spilar með Stjörnunni í sumar.
Ég ætla rétt að vona að þú sért að grínast Ingvar?
Annars bara eitt við þig að segja…JESÚS!
Áfram KR!
Socrates, er þessi títtnefndi Ingvar ekki bróðir þinn?
Annars er ég sammála Páli í þessari grein.
P.S. Guðjón Baldvinsson er mjög leiðinlegur gaur.
Stór orð og mörg.
Sammála greinarhöfundi!
Hvers vegna er kr að ala upp unga leikmenn ?
Hvers vegna er kr með yngri flokka í fótbolta ?
Það má geta þess að Gestur Pálsson er uppalinn KR-ingur og því er þetta skot ekkert annað en dónaskapur gagnvart honum og illa ígrundað skot frá greinahöfundi.
Einnig tel ég að það sé mjög leiðigjarnt að heyra ítrekað hjá lýsanda í KR-útvarpinu s.l. sumar að það væri alveg kominn tími á að fá KR-ing inná þegar Logi var að gera skiptingu.
Greinin á alveg rétt á sér þó svo að maður sé ekki sammála öllu. Reynum að standa saman sem KR-ingar.
Ég er ekki að gagnrýna Gest Pálsson enda engin ástæða til. Eins er ég ekki að gagnrýna félaga minn Igor Kostic enda engin ástæða til þess heldur.
Það sem ég er að benda á í þessari grein er að það þarf ekki að bæta við fleiri leikmönnum, enda nóg fyrir. Fór þessa leið í stað þess að vera með þessar hefðbundnu greinar líkt og Hjörvar kaus til að mynda að gera.
Þetta er mín skoðun. Ég virði að sjálfsögðu skoðanir annarra enda ekkert nema gott mál að menn hafi skoðanir á klúbbnum sínum.
Margir eru mér sammála, eins eru margir ósammála. Á suma hlusta ég og aðra ekki.
Hins vegar var tilgangurinn með þessari grein ekki að kasta rýrð á þessa ágætu menn sem nefndir eru á nafn. Þeir eiga það flestir sameiginlegt að leika eða hafa leikið í útlöndum og margir hverjir verið orðaðir við KR eða leikið með KR. Þannig eru þessi nöfn til komið.
Ég hafna því alfarið að þetta sé dónaskapur eða illa ígrundað skot.
Gestur er uppalinn KR-ingur og ég skít ekki á svoleiðis menn.
Hvernig væri að fá viðtal við einhvern úr stjórninni eða við Loga sjálfan og svara nokkrum spurningum um leikmannamálin og af hverju það sé verið að ýta út strákunum í 2 fl sem urðu Íslandsmeistara síðasta sumar ? Af hverju eru þessir drengir ekki að fá sénsinn að stíga næsta skref sem fótboltamaður hjá KR ?
Er ekki nóg að horfa á Real Madrid eyða peningum í stórstjörnur og detta svo út úr meistaradeildinni, að við stuðningsfólk KR förum ekki horfa upp á drengi sem eru koma í klúbbinn vera ekki berjast 110% með KR hjartað í brjósti sér?
Það er ekki hægt að kaupa sál og hjarta fyrir klúbbinn. Hann er eingöngu ræktaður í klúbbnum sjálfum og af uppöldum KR ingum.
Áfram KR
Skil þig Páll. En er þetta ekki spurning um hina fullkomnu blöndu af hvoru tveggja? Ég held að það sé í raun keppikefli stjórnarinnar að ala upp leikmenn í algerum sérflokki enda bendir allt til þess að það sé að takast þrátt fyrir sveiflur á milli ára í innkaupum.
Það er verið að fjárfesta í umgjörðinni líka með því að hafa öflugan mannskap í bakvinnslunni. Þar eru engin smámenni falin í Pétri og Rúnari og til þess að taka undir orð Gumma hér að ofan þá hafa þessir menn þá sál við viljum sjá í öllum okkar leikmönnum, uppöldum og innkeyptum.
Við getum verið sammála um það að við berum hag félagsins fyrir brjósti og það er gott að stuðningsmenn hafi skoðun. Hins vegar þurfum við að gera það sem við gerum best og það er að standa saman og standa þétt við bakið á þeim leikmönnum sem klæðast KR-treyjunni hvort sem þeir geti eitthvað eða ekki. Það má ekki myndast gjá þar sem leikmenn falla í sitthvorn flokkinn eftir því hvaðan þeir koma.
Þetta er amk mín skoðun,
Áfram KR
Sammála Páli í einu og öllu.
Mönnum virðist fyrirmunað að skilja að liðsheildin skiptir megin máli í meistaraliði, og hún verður augljóslega ekki góð þegar mönnum er mjakað til hliðar, sem hafa verið að spila frábærlega, einungis vegna þess að stærra nafn er komið í félagið.
Fáránlegt að þessir strákar sem hafa verið úti, ekki fengið að spila skít hjá þessum liðum og koma heim bara því að þeir eru ekki nógu góðir fyrir erlendar deildir séu bara treataðir eins og einhverjir konungar. Þá á ég sérstaklega við Kjartan Henry en hann var með svo mikla stjörnustæla í úrslitaleiknum á móti víkingum að mig langaði að fara heim.