
| S | M | T | W | T | F | S |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « Ágú | ||||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | |||
| 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | ||
KR-ingar urðu í gær Reykjavíkurmeistarar annað árið í röð, með því að vinna Víkinga með þremur mörkum gegn tveimur í hörkuleik. Björgólfur Takefusa, Kjartan Henry Finnbogason og Gunnar Örn Jónsson sáu um markaskorunina.

Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og leikurinn nokkuð fjörugur. Það voru KR-ingar sem komust yfir eftir um 25 mínútna leik. Þar var að verki Björgólfur Takefusa. Bjöggi fékk góða stungusendingu innfyrir vörn Víkinga sem vildu meina að hann væri rangstæður, flaggið fór hins vegar ekki á loft og Bjöggi kláraði færið á yfirvegaðan hátt.

KR-ingar voru svo ívið sterkari í byrjun seinni hálfleiks og eftir rúmlega klukkutíma leik skoraði Kjartan Henry Finnbaogason með skalla eftir hornspyrnu Óskar Arnar Haukssonar. Við þetta hresstust Víkingar og minnkuðu muninn skömmu síðar.
Gunnar Örn Jónsson fékk þá KR-inga sem ekki nenntu í framlengingu til að anda léttar þegar hann skoraði stórglæsilegt mark í kjölfar marks Víkinga. Gunnar Örn var ekki búinn að eiga sinn besta dag og einhverjir stuðninsmenn KR voru farnir að vilja sjá honum skipt útaf. Gunnar Örn stakk hins vegar rækilega ofan í þá aðila með frábæru marki sínu. Gunnar Örn gaf boltann á nafna sinn Kristjánsson sem hélt boltanum vel og lagði hann svo á Gunnar Örn sem klíndi boltanum upp í samskeytin. Virkilega vel að verki staðið og menn þökkuðu fyrir að Logi og Pétur fóru ekki að ráðum stuðningsmannana sem vildu Gunnar Örn útaf.

Víkingar settu svo smá spennu í leikinn með marki undir lok leiksins, en þar við sat og KR-ingar því búnir að landa fyrsta titlinum á þessari leiktíð.
Það vakti athygli að Baldur Sigurðsson lék í stöðu miðvarðar í þessum leik. Baldur stóð sig vel að mínu mati og gat vörnin og markvörðurinn einnig lítið sem ekkert gert í mörkum Víkinga, sem bæði komu með langskotum efst í markhornið.
Bjarni Guðjónsson og Viktor Bjarki Arnarsson voru solid á miðjunni. Þó hefði mögulega mátt koma örlítið meira út úr Viktori Bjarka sóknarlega. Hann átti þó nokkra spretti sem sýndu að hann getur gert usla í vörnum andstæðingana.
Kantmennirnir okkar hafa átt betri dag, en Gunnar Örn reddaði sér með glæsimarki sínu.
Sóknarmennirnir sem komu við sögu í leiknum í dag áttu fínan dag. Kjartan Henry var virkilega sterkur í að halda boltanum, Björfgólfur skapaði sér nokkur færi og Gunni Kristjáns átti nokkra fína spretti. Bjöggi og Kjartan skorðuð svo báðir.
Lið KR: Þórður Ingason- Jordao Diogo, Grétar Sigfinnur Sigurðarson, Baldur Sigurðsson, Skúli Jón Friðgeirsson- Öskar Örn Hauksson, Viktor Bjarki Arnarsson, Bjarni Guðjónsson, Gunnar Örn Jónsson- Björfgólfur Takefusa(Gunnar Kristjánsson), Kjartan Henry Finnbogason.
Fyrsti titillinn á þessu tímabili er kominn í hús og framhaldið lítur bara vel út.

-Hjörvar Ólafsson-
Hlýtur að vera helvíti svekkjandi fyrir Görn að engin skuli tala um markið hans sem var sérlega fallegt og vel að því staðið að öllu leiti.
Mörk Víkinga voru bara svo fáránlega flott.
Mörk Víkings voru flott og gott hjá Halldóri að minnast frænda síns.

