Hér eru nokkrar örfréttir af því sem er að gerast hjá KR þessa dagana.
- Ingólfur Sigurðsson mun halda til Lundúna í næstu viku og vera við æfingar hjá Arsenal. Þess má geta að í byrjun árs skrifaði Ingólfur undir þriggja ára samning við KR.
- Hreinn Bergs ungur og efnilegur strákur, sem æft hefur með KR síðan í haust, skrifaði undir samning við KR á dögunum.
- Tveir ungir leikmenn frá Senegal æfa með KR þessa dagana. Strákarnir koma hingað frá knattspyrnuakademíu í Dakar í gegnum norska samstarfsaðila KR. Kostnaður þeirra af dvölinni hér á landi er greiddur af erlendu samstarfsaðilunum.
- Norska liðið Flöy vill fá Eggert Rafn Einarsson á láni frá KR og standa samningaviðræður milli félaganna og leikmannsins yfir þessa dagana.
- Atli Jónasson, Ásgeir Örn Ólafsson og Brynjar Orri Bjarnason sem fóru til norska liðsins Våg á láni rétt eftir áramót léku sinn fyrsta leik í síðustu viku. Våg tapaði reyndar leiknum, en strákarnir stóðu sig með prýði í leiknum. Hér má sjá frétt um komu kappanna inni á heimasíðu norska liðsins http://www.vagfk.no/index.php?artikkelid=3420&back=1.
- Næsti leikur KR í Reykjavíkurmótinu, sem er á laugardaginn næstkomandi gegn vali, verður sýndur beint á netinu. Það er netsíðan http://sporttv.is/ sem stendur að þessu framtaki. KR-ingar um allan heim geta því séð KR spila á laugardaginn.
- Þá er búið að henda upp drögum að leikjaniðurröðuninni fyrir næsta sumar. Samkvæmt henni hefst Pepsi deild karla mánudaginn 10.maí og tökum við KR-ingar á móti nýliðum Hauka á KR-vellinum. Dollan fer svo á loft laugardaginn 25.september eftir leik við Fylki. Það er heppilegt að það er heimaleikur og því stutt að fara á Ljónið í sigurvímu. Þeir sem vilja kynna sér leikjaniðurröðunina í heild sinni geta gert það hér http://www.ksi.is/mot/motalisti/urslit-stada/?MotNumer=19847&Rodun=U.
-Hjörvar Ólafsson-