
| S | M | T | W | T | F | S |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « Jan | Mar » | |||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
| 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
| 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
| 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
| 28 | ||||||
Eins og áður hefur verið greint frá sigraði KR ÍBV með fjórum mörkum gegn einu á föstudagskvöldið. KR-ingar voru mun sterkari aðilinn í leiknum og sigurinn mjög sanngjarn.
Halda áfram að lesa "Góður sigur á Eyjamönnum"
Rétt í þessu var að ljúka leik KR og Eyjamanna í Egilshöll. Við bárum sigurorð af þeim 4-1. Kjartan Henry kom KR yfir og Gunni Kristjáns kom okkur í 2-0. Eyjamenn minnkuðu muninn og staðan 2-1 í hálfleik. Bjöggi kom okkur í 3-1 með marki úr aukaspyrnu áður en Ingólfur kláraði leikinn með neglu fjórum mínútum fyrir leikslok.
Nánari umfjöllun um leikinn dettur inn síðar.
KR-ingar spila annan leik sinn í Lengjubikarnum í kvöld. Leikurinn er við Eyjamenn, hefst klukkan 21.00 og verður í Egilshöll.
Eins og krreykjavik.is hefur greint frá skartar Logi Ólafsson nýju útliti þessa dagana. Mönnum er því ráðlagt að skilja konurnar eftir heima og mæta í sínu í fínasta pússi í kvöld. Annars er hætt við því að menn líti ansi illa út.
Mark Rutgers og Björgólfur Takefusa voru ekki með í síðasta leik vegna meiðsla. Mark er enn meiddur, en Björgólfur æfði með liðinu í gær og býst ég við að hann spili í kvöld.
Fyrir þá sem ekki komast á völlinn er leikurinn sýndur á sporttv.is.
-Hjörvar Ólafson-
Fréttablaðið greindi frá því í morgun að Skjár einn muni á næstu dögum taka til sýninga að nýju, eftir fjölda áskorana, Nýtt útlit með Karli Berndsen. Kalli ásamt sérlegum aðstoðarmanni sínum þótti fara á kostum í fyrstu seríu þáttanna og óhætt að segja að landsmenn bíði spennir við skjáinn. Gaman er að segja frá því að það var þjálfari okkar KR-inga Logi Ólafsson sem var fyrsti gestur Kalla en þátturinn var tekinn upp í síðustu viku og má búast við því að hann verði sýndur á allra næstu dögu. Við höfum fengið sendar myndir af Loga “fyrir og eftir” og það er óhætt að segja að kallinn tekur sig vel út með nýja “lookinu”

Ég settist niður með öðlingnum Kjartani Henry Finnbogasyni á sunnudagskvöldið eftir leik KR og HK. Þar spilaði Kjartan sinn fyrsta leik eftir að hafa komið aftur á heimahagana. Ég ræddi við hann um heimkomuna, árin í atvinnumennskunni og framhaldið með KR. Kjartan hefur þrátt fyrir ungan aldur verið í tæp sex ár í atvinnumennsku, en ákvað að snúa aftur í KR fyrr í mánuðinum.
-Hjörvar Ólafsson-
KR-ingar hófu leik í Lengjubikarnum í dag með góðum sigri á HK. Lokatölur urðu 5-1. Gunnar Kristjáns skoraði tvö, Óskar Örn, Diogo og Bjarni Guðjóns skoruðu svo eitt mark hver.



KR-ingar hefja leik í Lengjubikarnum á sunnudaginn þegar þeir mæta HK. Leikurinn fer fram í Egilshöll og hefst klukkan 17.00.
Félagsskiptaglugginn á Íslandi opnaði í dag, því ættu Viktor Bjarki og Kjartan Henry að vera komnir með leikheimild og vera í leikmannahópnum á sunnudaginn.
Óljóst er hvort að Gunnar Kristjáns verður með, en hann kenndi sér meins í hné í leknum á móti Fram á sunnudaginn síðastliðinn. Gunnar Örn Jónsson er hins vegar búinn að hrista af sér veikindin sem öftruðu honum frá því að spila gegn Fram og verður hann með á sunnudaginn.
-Hjörvar Ólafsson-
Í ljósi umræðu sem fer fram á spjalli KRreykjavik.is um aðstöðumál KR skal það upplýst að ritstjórar KRreykjavik.is hafa sent öllum borgarfulltrúum Reykjavíkur spurningar með ósk um svör. Þessar spurningar og svörin við þeim verða birt á heimasíðunni og fyrsta spurning og svör fulltrúa verða birt 1. mars næstkomandi.
Á þessum drottins dýrðardegi flettir maður blöðum landsins og viti menn - Valsmenn slást. Ég gladdist nú fyrir hönd þeirra því það sýndi mér að það er meira líf í þeim núna en undanfarið ár. En svo las ég meira og eftir viðtalið við Gulla, sem má lesa með því að smella á hérna þá sitja eftirtalin atriði í mér:
1) Kjartan Sturluson slóst við leikmann. Það getur ekki verið að hann hafi hitt hann enda vitað mál að Kjartan hittir ekki boltann þó líf hans lægi við.
2) IDOL-kvöld Vals?
3) Var Habbó ósáttur við lagaval Kjartans?
4) Skýringar á slöku gengi… hmm… við bíðum eftir traustyfirlýsingu frá stjórn Vals.
5) Tókum Reykjavíkurmótið ekki alvarlega. Þetta er alveg ný nálgun á hlutina. Með öðrum orðum - Þrátt fyrir þann mannskap sem Valur notaði þá var aldrei ætlunin að vinna þetta mót. Þrællíklegt.
Mikið óskaplega er nú alltaf gaman að þeim Valsmönnum.
e.s. heimasíða stuðningsmanna Vals skrifaði síðast pistil þann 9. desember þannig að annaðhvort hefur þeim fækkað um þessa tvo eða það sem líklegar er þá hefur annar þeirra gleymt lykilorðinu og getur því ekki skrifað fréttir fyrir hinn.
Við birtum svo mynd af uppáhaldsleikmanni allra Valsara

