
| S | M | T | W | T | F | S |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « Nóv | Jan » | |||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
| 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
| 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | ||
Líkt og áður hefur komið fram verður pub quiz KR-klúbbsins á miðvikudaginn kemur. Keppnin verður haldin á Rauða Ljóninu og hefst kl. 20:00. Að venju verða tveir og tveir saman í liðinu og spurningarnar 30 talsins. Vegleg verðlaun eru í boði Rauða ljónsins.

Við hér á KRreykjavik.is viljum senda KR-ingum og öðrum dyggum lesendum síðunnar okkar bestu jólakveðjur.
Megið þið njóta jólanna, borða vel og verða feit og falleg.
KR-klúbburinn stendur fyrir pub quiz keppni á Rauða Ljóninu miðvikudaginn 30. desember. Keppnin hefst kl. 20:00. Veitt verða verðlaun fyrir efsta sætið.
Við hvetjum alla KR-inga til þess að mæta og taka þátt. Keppnisfyrirkomulagið verðu með hefðbundnu sniði. 30 spurningar og eru tveir og tveir saman í liði
-
KR-klúbburinn
Í kvöld leikur KR sinn síðasta æfingaleik fyrir jól. Það eru Eyjamenn sem eru andstæðingar kvöldsins. Leikurinn hefst á hefðbundnum tíma, það er klukkan 20.15 og fer fram í Egilshöll.
KR-ingar eru taplausir til þessa á tímabilinu og vonandi verður engin breyting þar á í kvöld.
-Hjörvar Ólafsson-
KR vann í kvöld sannfærandi 7-1 sigur á Gróttu í æfingaleik í Egilshöll. Gunnar Kristjánsson og Björgólfur Takefusa gerðu þrennu hvor og Davíð Birgisson gerði að auki eitt mark.
Eins og tölurnar bera með sér þá hafði KR liðið mikla yfirburði í leiknum og var sigurinn síst of stór. Strax eftir stundarfjórðun var staðan 3-0 fyrir okkar menn og í raun aldrei spurning hvernig leikar myndu fara.

Í kvöld mætum við liði Gróttu í æfingaleik í Egilshöll. Leikurinn hefst kl. 20:15 og verður líkt og aðrir leikir KR á þessu undirbúningstímabili 2×40 mínútur. Helgast það einfaldlega af því að sá tími sem KR fær úthlutað er ekki lengri.KR liðið hefur leikið fjóra leiki það sem af er vetri. Þrír þeirra hafa endað með sigri og einn með jafntefli. Ef allt er eðlilegt ætti að nást sigur í kvöld, en knattspyrnan er óútreiknanleg.
Með KR liðinu í kvöld leikur ungur japanskur markvörður, sem verður til reynslu hjá félaginu í um vikutíma. Það verður spennandi að sjá hvernig hann stendur sig en hann þykir mikið efni og fengið lof heimafyrir fyrir frammistöðu sína.
Grótta hefur verið á mikilli siglingu undanfarin ár, eða allt frá því að liðið var að strögla í þriðju deildinni. Þeir sigruðu aðra deildina í fyrra eftir tveggja ára dvöl. Félagið hefur sankað að sér leikmönnum og nær eingöngu skipað aðkeyptum mönnum. Þar er að finna nokkurn fjölda KR-inga þó svo að fæstir þeirra eigi sér sögu með meistaraflokki okkar. Þó er þar að finna leikmenn eins og Sölva Davíðsson, Sigurvin Ólafsson og Kristján Finnbogason.
Þjálfari Gróttuliðsins er einnig fyrrum leikmaður okkar KR-inga, Ásmundur Haraldsson, en hann hefur þjálfað liðið undanfarin ár.
Í kvöld kemur til landsins ungur markvörður frá Japan að nafn Akihiro Hayashi. Hann mun æfa með KR liðinu í vikutíma og leika tvo æfingaleik, þ.e. á móti Gróttu á morgun og gegn ÍBV á fimmtudaginn eftir viku.Akihiro Hayashi (Áki) þykir gríðarlega efnilegur markvörður og er á mála hjá enska 1. deildarliðinu Plymouth Argyle. Til greina kemur að Áki verði lánaður til KR liðsins en það hafa verið vandamál með atvinnuleyfi hans í Bretlandi.Áki er 192 cm á hæð og hefur leikið með öllum yngri landsliðum japans og er spáð glæstri framtíð í heimalandi sínu. Hann vakti mikla athygli á heimsmeistaramóti yngri landsiða árið 2007 og voru mörg lið sem sýndu honum áhuga. Að endingu samdi hann við enska liðið.
Það verður spennandi að fylgjast með Áka en til gamans má geta að hann yrði annar japaninn til þess að leika með KR. Fyrir höfum við Björgólf Takefusa.
Þá má geta þess að ekki hefur fengið staðfest hvort Áki sé eitthvað skyldur Ákabræðrum, en það er nokkur svipur með honum og þeim eldri.

Kristinn Jóhannes Magnússon skrifaði í dag undir samning við Víkinga í Reykjavík. Kiddi sem er KR-ingur í húð og hár lék ekki með KR á síðasta tímabili, þar sem að hann stundaði nám í Bandaríkjunum.
Þegar Kiddi kom heim í sumar fór hann til Víkinga á láni og stóð sig með prýði. Kiddi fékk vinnu hjá skilanefnd Kaupþings, þegar hann kom heim frá Bandaríkjunum. Þegar ljóst var að æfingar með KR og vinnan fóru ekki vel saman tókust samningar milli KR og Víkings um félagsskipti og skrifaði Kiddi undir varanlegan samning við Fossvogsstrákana.
Kiddi lék 70 meistaraflokksleiki með KR og varð Íslandsmeistari með liðinu árið 2003. Óskum við Kidda velfarnaðar á nýjum vettvangi.

-Hjörvar Ólafsson-
KR-ingar eru enn taplausir á tímabilinu 2009/2010. Í gær sigraði KR Leiknismenn með þremur mörkum gegn engu.
Mörk KR-inga skoruðu Björgólfur Takefusa, Bjarni Guðjónsson og Skúli Jón Friðgeirsson.
Fyrri hálfleikur var fremur tíðindalítill. Bjöggi skoraði reyndar mark, en það var dæmt af vegna rangstöðu. Leiknismenn áttu tvö hættuleg færi í fyrri hálfleik, en Atli Jónasson varði í bæði skiptin virkilega vel.
KR-ingar tóku svo við sér í seinni hálfleik og strax á upphafsmínútunum skoraði Bjöggi laglegt mark eftir góða sendingu frá Óskari. Bjarni bætti svo við öðru marki örskömmu síðar, þegar hann slapp einn inn fyrir og kláraði færið með yfirveguðum hætti. Þriðja markið skoraði svo Skúli Jón með góðum skalla eftir fína hornspyrnu Óskars.
KR-ingar skoruðu reyndar mark rétt áður en Skúli Jón skoraði þriðja markið. Grétar skallaði boltann inn eftir aukaspyrnu Bjarna. En Sigurður Schram árvökull dómari leiksins hafði ekki gefið Bjarna merki þess að hann mætti taka aukaspyrnuna og dæmdi því markið af. Hárrétt dómgæsla og var eitt af mörgum dæmum þess hve góð tök Siggi hafði á leiknum.
Leiknismenn minnkuðu svo muninn undir lok leiksins með tveimur ódýrum mörkum. Lengra komust þeir þó ekki og KR-ingar unnu því leikinn 3-2.
Lið KR:Atli(Einar Andri)-Gunni Kri(Aron), Ásgeir(Einar Bjarni), Grétar, Skúli Jón-Ingólfur(Davíð), Baldur, Bjarni, Gunnar Örn(Hreinn Bergs)-Óskar,Björgólfur(Jón Kári).




Heimildir:Leikmenn KR, stuðningsmenn Stórveldisins og kr.is.
-Hjörvar Ólafsson-
-Rúnar Kristinsson yfirmaður knattspyrnumála hjá KR mun spila góðgerðarleik með gamla liðinu sínu Lilleström 18. desember. Rúnar hefur farið á kostum með old-boys liði KR-inga og skemmst er að minnast frækins sigurs þeirra í bikarkeppni heldri manna í nóvember síðastliðnum.
-Jordao Diogo hefur framlengt samning sinn við KR til ársins 2011. Jordao átti gott tímabil með KR í fyrra og því kærkomnar fréttir að hann hafi framlengt samning sinn við KR.
-KR-liðið mun spila fjórða leik sinn í æfingaleikjahrinunni á vanalegum tíma annað kvöld. Leikurinn hefst klukkan 20.15 og verður spilaður í Egilshöll. Að þessu sinni mæta þeir lærisveinum Steina Gísla í Leikni. Þess má geta að Steini Gísla var einnig í bikarmeistaraliði old-boys liðs KR.
-Hjörvar Ólafsson-
