
| S | M | T | W | T | F | S |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « Okt | Des » | |||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
| 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
| 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
| 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
| 29 | 30 | |||||
Til þess að mótmæla markaþurrðinni í leik KR og ÍA ákváðu ritstjórar krreykjavik.is að fjalla ekki um leikinn fyrr en eftir helgina.
Þar sem að heilagur Þorlákur er líka í nánd verður umfjöllun um leikinn í skötulíki, honum til heiðurs.
Leikurinn var ágætlega spilaður af báðum liðum.
Það sem vantaði aðallega upp á hjá KR var að sendingar rötuðu rétta leið milli manna, auk þess sem KR-ingar sköpuðu ekki nægilega mörg opin marktækifæri.
Bæði lið fengu þó færi til að skora í leiknum. Skagamenn áttu skot í slá í upphafi leiks og Atli Jónasson varði vel skot Skagamanna úr góðu færi undir lok leiksins.
Grétar Sigfinnur og Hreinn Bergs fengu bestu færi okkar manna. Skalli Grétars var varinn á marklínu og Hreinn Bergs fékk sannkallað dauðafæri á lokamínútum leiksins, en skaut framhjá.
Lið KR: Atli Jónasson(Einar Andri)-Skúli Jón, Ásgeir Örn(Dofri), Grétar Sigfinnur, Einar Bjarni-Ingólfur Sig(Hreinn), Baldur Sig(Jón Kári), Bjarni Guðjóns, Óskar Örn(Egill)-Gunnar Örn, Gunni Kri(Davíð).
Heimildir:Leikmenn KR, stuðningsmenn Stórveldisins og kr.is.
-Hjörvar Ólafsson-
Þeir eru sjaldgæfir leikirnir á milli KR og ÍA þessa dagana eftir að skagamenn tóku upp á því að spila í 1. deildinni. Það er ljóst að liðin munu ekki mætast í deildinni á komandi tímabili og því eini möguleikinn að bikarkeppninni frádreginni að sjá liðin í æfingaleik. Liðin mætast í kvöld kl .20:15 í æfingaleik sem fram fer í Egilshöll. KR liðið hefur leikið tvo leiki það sem af er vetri og hafa þeir báðir unnist sannfærandi. Liðið hefur spilað ágætis bolta og nú þegar enginn nennir að horfa á meistaradeildina eða enska boltann lengur þá er kjörið að skella sér í Egilshöllina. Allir leikmenn liðsins eiga að vera klárir utan Björgólfs sem er staddur í Austurríki.
Alla fimmtudaga leikur KR liðið æfingaleiki. Það er spurning hvort forráðarmenn félagsins breyti ekki þeirri dagsetningu enda eru það leikdagar í Evrópudeildinni þar sem öll bestu lið Evrópu spreyta sig. Sælla minninga þá vorum við KR-ingar fulltrúar Íslands í þeirri keppni og stóðum okkur með prýði. Við fylgjumst því að sjálfsögðu spenntir með enda bestu lið hverrar þjóðar, sbr. KR, á meðal þátttökuliða.
Allir í Egilshöllina í kvöld.
-
pk
Björgólfur Takefusa er þessa dagana staddur í Austurríki, þar sem hann er til reynslu hjá Austria Lustenau, sem spilar í næstefstu deild þar í landi.
Viðræður milli félaganna eru á byrjunarstigi. Hugmyndin er sú að Bjöggi verði lánaður til Austria Lustenau í janúar, verði þar fram á vor og komi svo aftur í tæka tíð fyrir upphaf Pepsi deildarinnar.
Bjöggi var iðinn við kolann á síðasta tímabili og
þvi ekki skrýtið að erlend lið beri víurnar í hann.
-Hjörvar Ólafsson-
KR vann í gærkvöldi annan sigur sinn í röð, þegar þeir unnu ÍR-inga 2-0 og eru þeir því taplausir tímabilið 2009/2010.
Bæði mörk KR-inga komu í fyrri hálfleik. Þar voru að verki Bjarni Guðjónsson og Gunnar Kristjánsson. Bjarni skoraði með fallegu skoti beint úr aukaspyrnu. Gunni Kri fékk laglega stungusendingu og renndi boltanum í opið markið, eftir að hafa leikið fimlega á markmann ÍR-inga.
Lið KR: Atli(Einar Andri)-Einar Bjarni(Aron), Grétar(Ásgeir Örn), Skúli(Aron Bjarki), Dofri(Eggert)-Gunni Kri(Jón Kári), Baldur(Egill Jónsson), Bjarni, Gunnar Örn(Vilhjálmur)-Ingólfur(Hreinn Bergs),Björgólfur(Hróar).
KR-ingar notuðu alls 21 leikmann í leiknum og var Bjarni Guðjóns sá eini sem lék allan leikinn.
Heimild:kr.is.

Bjarni hér á góðri stundu með Gunni Kri nýtti hraðann sinn og
Rúna, skoraði fallegt mark kláraði færið vel í seinna marki
og var eini leikmaður KR sem KR í gærkvöldi.
spilaði allan leikinn.
-Hjörvar Ólafsson-
KR leikur í kvöld annan leik sinn í æfingaleikjahrinunni fyrir jól. Mótherjar kvöldsins eru ÍR-ingar, sem spila í fyrstu deildinni og enduðu um miðja deild síðasta sumar.
Svo ég best viti þá eru allir leikmenn liðsins heilir, og þeir sem voru á ferð og flugi í síðustu viku komnir heim. Einu forföllin sem ég veit um eru þau að fyrrum ÍR-ingurinn Guðmundur Pétursson er í einhvers konar verkfalli og hefur ekki æft með liðinu í haust.
Eins og í öllum leikjunum fram að jólum hefst leikurinn klukkan 20.15 og fer fram í Egilshöll.

Vonandi verður stemmingin svona í kvöld.
-Hjörvar Ólafsson-
KR vann Selfoss nokkuð örugglega í gær, lokatölur urðu 7-1, eftir að staðan var 1-1 í hálfleik. KR-ingar voru ívíið sterkari í fyrri hálfleik og tóku svo öll völd á vellinum í seinni hálfleik. KR-ingar sýndu svo sem engan stjörnuleik, en spiluðu samt vel. Þeir héldu boltanum vel, gáfu fá færi á sér og skoruðu lagleg mörk.
Mörk KR skiptust á eftirfarandi hátt, Ingólfur, Grétar og Baldur skoruðu tvö mörk hver og Gunni Kri skoraði eitt mark.
Lið KR: Atli Jónasson (Einar Andri)-Dofri, Grétar, Aron Bjarki, Gunni Kri (Hróar)-Gunnar Örn (Aron Ingi), Bjarni Guðjóns, Baldur (Jón Kári), Ingólfur-Óskar (Egill Jónsson), Bjöggi Takefusa (Hreinn Bergs).
Einar Andri, Jón Kári, Hróar og Egill Jónsson koma allir úr yngri flokkum KR. Hreinn Bergs er hins vegar efnilegur leikmaður sem kemur frá Ými í Kópavogi og hefur æft með KR að undanförnu.

Ingólfur, Grétar og Baldur settu tvö mörk hver og Gunni Kri skoraði eitt.
-Hjörvar Ólafsson-
Fyrsti leikur í æfingaleikjarhinunni fyrir jól verður í kvöld klukkan 20.15 og leikið verður í Egilshöll. Við mætum Selfyssingum, í fyrsta leik þeirra undir stjórn Gumma Ben.
Liðið hefur verið á ferði og flugi undanfarið. Bjöggi Takefusa og Baldur fóru til Teheran og komu inn á í leiknum við Íran. Einar Bjarni og Davíð eru í Björgvin á reynslu hjá Brann. Skúli Jón er svo líklega kominn til San Marínó, en U-21 árs landsliðið spilar við heimamenn á föstudaginn kemur.
Ég veit ekki hver staðan er á Bjögga, Baldri, Einari Bjarna og Davíð. Það er hvort að þeir verða komnir heim eða ekki, býst frekar við því en ekki, en það kemur bara í ljós á morgun.

Gummi Ben, þjálfari Bjöggi og Baldur skruppu
Selfyssinga. til Teheran.

Skúli Jón er í Davíð Birgis og Einar Bjarni
San Marínó. eru hjá Brann til reynslu.
-Hjörvar Ólafsson-
Fyrst við erum komin með byrjunarliðið frá bikarúrslitaleiknum árið 1994 á hreint, er rökrétt framhald að spyrja ykkur KR-ingar góðir, hvernig byrjunarliðið var í bikarúrslitaleiknum árið 1995.
Liðið hafði breyst eitthvað milli ára, eins og gengur og gerist.
Ég ætla einnig að biðja um markaskorara og hver það var sem var rekinn af velli í fyrri hálfleik.

Guðjón Þórðarson var þjálfari KR á þessu tímabili.
Hjörvar Ólafsson.
Þeir KR-ingar sem voru komnir til vits og ára muna vel eftir bikarúrslitaleknum árið 1994. KR vann þann þá Grindvíkinga nokkuð örugglega og urðu lokatölur 2-0.
En nú spyr ég ykkur hvort að þið munið hvernig byrjunarliðið var í þessum leik. Ég bið ykkur um að nota minnið og sleppa öllum hjálpartækjum.

Kristinn Jónsson var formaður á þessum tíma, á myndinni með honum er Ólafur Lárusson.
Hjörvar Ólafsson.
Dagskráin er eftirfarandi.
12.nóv. KR - Selfoss
19.nóv. KR - ÍR
26.nóv. KR - ÍA
3.des. KR - Leiknir
10.des. KR - Grótta
Eftir á að finna mótherja fyrir 17. desember og líklega verður gefið frí á aðfangadag.
Hjörvar Ólafsson.
