
| S | M | T | W | T | F | S |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « Ágú | Okt » | |||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
| 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
| 27 | 28 | 29 | 30 | |||
Lesendum KRreykjavik.is gefst nú tækifæri til þess að velja leikmann ársins. Stuðningsmenn KR eru hvattir til þess að senda okkur tölvupóst á netfangið krreykjavik@hotmail.com og tilgreina þann sem þið teljið vera leikmann ársins. Eðli málsins samkvæmt hlýtur sá, er flest atkvæði fær, nafnbótina “Leikmaður ársins 2009 að mati KRreykjavik.is”
Atkvæðagreiðslan mun standa fram til miðnættis á sunnudag.
Pétur Marteinsson hlaut verðlaunin í fyrra
Nokkrar hreyfingar hafa verið á leikmönnum okkar að undanförnu og í dag dróg heldur betur til tíðinda. Við greinum hér frá því helsta:
Samkvæmt áreiðanlegum heimildum okkar hefur Gummi Ben skrifað undir samning við Selfoss um að taka að sér þjálfun meistaraflokks félagsins. Frá því verður greint á blaðamannafundi sem haldin verður síðar í dag. Nánari fréttir þá.
Lið umferða 16-22 var tilkynnt við hátíðlega athöfn í höfuðstöðvum KSÍ í dag. Fátt kom á óvart í valinu á þeim 11 leikmönnum er voru heiðraðir enda allir staðið sig með stakri prýði og vel að því komnir að vera valdir í liðið. Hef ég ekkert út á það að setja. Hins vegar furða ég mig á vali á þjálfara umferðanna, en þar var Heimir Guðjónsson fyrir valinu. Það er ekki ætlun mín að varpa rýrð á glæsilegan árangur Heimis en ég spyr mig að því hvað lág til grundvallar valinu.
FH liðið fékk 11 stig í síðustu sjö umferðum Pepsideildarinnar. Þeir steinlágu m.a. 0-3 á heimavelli gegn Grindavík og töpuðu stigum gegn falliði Þróttar og svo gegn Fylki. Að ógleymdu tapi gegn okkar mönnum. Á sama tíma fengum við KR-ingar 18 stig af 21 mögulegu og sigruðum m.a. FH og Keflavík á útivelli. Þá má einnig geta glæsilegs árangurs Ólafs Þórðarsonar með ungt lið Fylkis en í umferðunum sjö fengu Fylkismenn 17 stig. Þá sigruðu þeir m.a. okkur KR-inga og tryggðu sér þriðja sætið í deildinni með glæsibrag.
Það er á engan hátt hægt að rökstyðja valið á Heimi með málefnanlegum hætti. Heimir er vel að því kominn að vera valinn þjálfari ársins en þjálfari umferða 16-22 er hann ekki. Það eru fjölmiðlar í landinu sem standa að þessu vali. Ég hreinlega furða mig á þessum vinnubrögðum sem eru í besta falli léleg. Ég kalla eftir faglegri vinnubrögðum.
Það sjá það allir að þjálfarar umferða 16-22 eru þeir Logi Ólafsson og Ólafur Þórðarson.
Björgólfur Takefusa sýndi allar sínar bestu hliðar í öruggum sigri á vali í dag. Hann skoraði fimm og hálft mark í dag og endaði sem markakóngur Pepsi deildarinnar. Ég segi fimm og hálft þar sem að línuvörðurinn tók af honum klárlega löglegt mark og svo gef ég honum hálft mark, þegar Gunni Örn skaut í hann og inn. Það er óhætt að segja að pásan sem hann tók hafi virkað vel á hann og er þetta að mínu mati hans besta tímabil á ferlinum. Hann er í feiknaformi og er að klára færin sín virkilega vel.

Lokaleikur okkar KR-ingar verður leikinn í dag er við sækjum heim valsarar á heimavöll þeirra við Hringbraut. Leikurinn hefst kl. 16:00. Þetta er þriðji leikur liðanna í sumar en hvort lið hefur unnið sinn leik. Þá má til gamans geta að við höfum aldrei tapað leik á nýja símavellinum þeirra.
En eins og ég sagði þá er þetta lokaleikur Íslandsmótið og þó svo að ekkert annað sé undir en stoltið þá hvetjum við alla KR-inga til þess að fjölmenn á leikinn og ljúka þessu með stæl.
Fyrr í sumar fengum við KR-ingar sekt, vegna þess að við höfðum orðið uppvísir að því að geta ekki hamið æstan stuðningsmann Keflavíkur, sem kastaði ýmsu lauslegu, bæði í átt að stuðningsmönnum okkar og leikmönnum.
Þá var það metið svo að skortur á gæslu hafi orðið til þess að stuðningsmaður Keflavíkur hafi farið yfir strikið.
Nú hins vegar gerist það að stuðningsmenn Njarðvíkur ganga of langt að mati KSÍ á Sandgerðisvelli, heimavelli Reynis, í lokaleiknum í annarri deildinni.
En þá er það knattspyrnudeild Njarðvíkur sem ber ábyrgð á því að gæta þess að stuðningsmenn þeirra tendri ekki blys og hlaupi ekki inn á Sandgerðisvöllinn.
Ósamræmi?
Hjörvar Ólafsson.
Góðir félagar,
Nú er nýtt keppnistímabil að hefjast hjá okkur í körfunni. Síðastliðið ár var frábært ár, karlarnir Íslandsmeistarar og stelpurnar Bikarmeistarar. Stjórn deildarinnar hefur unnið frábært starf á undanförnum árum og í raun endurvakið almennan áhuga á körfubolta á Íslandi með frábærum undirbúningi, kynningu og framkvæmd á heimaleikjum okkar .
Það er því klárt að „hatur - öfund” andstæðinga okkar verður meiri en nokkurn tíman áður. Þessu verðum við að mæta og láta stelpurnar og strákana finna að þau eiga okkar stuðning!!!!!!!
Halda áfram að lesa "Frá körfunni"
