
| S | M | T | W | T | F | S |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « Jún | Ágú » | |||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | |||
| 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | |
Þá hefur það verið staðfest að Ásgeir Örn Ólafsson kemur aftur í KR og fær hann leikheimild fyrir leik okkar við Val. Eins og KR-ingar vita þá var Ásgeir lánaður Selfyssingum sem munu eflaust sakna hans, en hann hefur leikið alls þrettán leiki með þeim í deild og bikar.
-
Það verður mikill fengur í Ásgeiri fyrir leik KR og Basels, og hefði eflaust munað um hann í gær, þegar fór að draga af mönnum.
Enn eru tvö laus sæti til Basel. Ef þið hafið áhuga hafið samband á KRreykjavik@hotmail.com.
Líkt og við greindum frá í dag þá hefur KR fengið að láni norska u21 árs landsliðsmarkvörð norðmanna, André Hansen. André þessi er 20 ára gamall, fæddur í desember 1989. Hann er 194 cm á hæð og var m.a. í liðinni viku valinn í u21 landslið þeirra norðmanna. Hann hefur lítið komið við sögu það sem af er þessu ári en Lilleström menn binda miklar vonir við hann. Hann hefur æft stíft undir stjórn Frode Grodås sem margir muna eflaust eftir, enda sennilega besti markvörður þeirra norðmanna fyrr og síðar.
Eftir að ljóst var að Stefán Logi myndi ganga til liðs við Lilleström buðu þeir André í staðinn og mun hann því berjast um stöðuna við Atla Jónasson.

Þær voru blendnar tilfinningarnar sem bárust innra með manni í gær eftir leik okkar gegn Basel í Evrópudeildinni í gær. 2-2 jafntefli urðu lyktir leiksins og eftir á að hyggja eru það sanngjörn úrslit.Logi stillti upp sama liði og hann hefur gert í Evrópukeppninni fram til þessa. Stefán Logi stóð á milli stanganna og öftustu fjórir voru þeir Skúli Jón, Grétar, Mark og Diogo. Baldur, Bjarni og Atli voru inn á miðsvæðinu og fremstu þrír voru Óskar, Gummi Ben og Gunnar Örn.
Stefán Logi Magnússon markvörður okkar KR-inga hefur verið lánaður til norska úrvalsdeildarliðsins Lilleström. Stefán Logi mun þó klára leikina gegn Val og Basel en að þeim loknum gengur hann til liðs við sitt nýja lið. Lilleström hefur lengi verið á eftir Stefáni og munu væntanlega kaupa hann að loknu sumri standi hann undir þeirra væntingum. Það er því ekki við öðru að búast en að næstu tveir leikir séu síðustu leikir Stefán fyrir KR, a.m.k. í bili. Víð óskum Stefáni alls hins besta.Í stað Stefáns mun við fá Andre Hansen, u21 landsliðsmarkvörð norðmanna. Andre er stór og stæðilegur markvörður sem hefur komið við sögu í nokkrum leikjum hjá Lilleström í sumar. Hann verður lánaður til KR í sumar.
Við munum fjalla nánar um þetta síðar í dag.

Guðmundur Benediktsson var valinn maður leiksins af KR-klúbbnum eftir leik KR og Basel nú í kvöld. Gummi átti frábæran leik og kórónaði frammistöðu sína með fallegu marki. Á myndinni má sjá hvar Gummi tekur við verðlaununum úr hendi Hjörvars Ólafssonar.
Magnað mark hjá Gumma Ben í lokinn á þessu myndskeiði! Vonandi fáum við að sjá svona galdra í kvöld!
