
| S | M | T | W | T | F | S |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « Maí | Júl » | |||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
| 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
| 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
| 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
| 28 | 29 | 30 | ||||
Það er óhætt að segja að heppnin hafi verið með okkur í gær þegar við sigruðum lánlausa blika 3-2 í Vesturbænum í gær. Leiknum lauk með 3-2 sigri okkar eftir dramatískar lokamínútur sem við komum boltanum þrisvar sinnum yfir marklínuna á síðustu 5 mínútum leiksins en eitt marka okkar var dæmt af vegna rangstæðu.Aðstæður til knattspyrnuiðkunar voru til fyrirmyndar í gær. Völlurinn góður og veðrið eins og það gerist best. Áhorfendur voru tæplega 2.000 að stórum hluta KR-ingar, en þó var ágætis fjöldi blika er fylgdi sínum mönnum í Frostaskjólið.

Mark skorar sigurmarkið. Mynd kr.is
Halda áfram að lesa "Heppnin með okkur"
Jordao Diogo var valinn maður leiksins af KR-klúbbnum eftir leik KR og Breiðabliks nú í kvöld. Diogo fékk að launum máltíð fyrir tvo á veitingahúsinu Rossopomodoro en á myndinni má sjá hvar hann veitir skjalinu viðtöku.
Baldur Sigurðsson var valinn maður leiksins eftir leik KR og Grindavíkur síðastliðinn fimmtudag. Baldur meiddist í leiknum og var fluttur á sjúkrahús og því var ekki hægt að veita honum verðlaunin eftir leikinn. Baldur fékk verðlaunin afhent að loknum leiknum í kvöld og á myndinni má sjá hvar Jón Bjarni afhendir honum ferðina út að borða.
KR-klúbburinn verður með veglega upphitun inn í félagsheimili frá kl. 18:30 í kvöld. Grillaðir verða hamborgarar og seldir á vægu verði. Góð mæting hefur verið í upphitanir klúbbsins það sem af er sumri og góð stemmning sem þar hefur myndast. Við hvetjum alla KR-inga til þess að líta við og gæða sér á gómsætum borgurunum.

Í kvöld tökum við KR-ingar á móti Blikum á heimavelli okkar við Frostaskjól. Leikurinn hefst kl. 20:00 og er um að ræða síðasta leikinn í 9. umferð Pepsdeildarinnar. Fyrir leikinn sitjum við KR-ingar í fjórða sæti deildarinnar með 17 stig en Blikar eru í því sjöunda með 11 stig. Blikar hafa reyndar leikið einum leik færra en önnur lið.

