
| S | M | T | W | T | F | S |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « Mar | Maí » | |||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | |||
| 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | ||
KR vann stórsigur á Reyni í Sandgerði í hinum árlega leik liðanna sem haldinn er í minningu Magnúsar Þórðarsonar íþróttafrömuðs úr Sandgerði. Logi stillti upp í byrjunarliðið þeim Stefáni Loga, Skúla Jóni, Grétari Sigfinni, Mark Rotgers, Jordao, Óskari Erni, Baldri Sig., Jónasi Guðna, Bjarna, Takefusa og Prince.
Án þess að undirritaður hafi séð leikinn þá ætlar hann að Gunnar Örn hafi verið maður leiksins, en hann sendi boltann í netmöskvana fimm sinnum á 16 mínútum.
Á kr.is má finna greinargóða lýsingu af gangi leiksins.
Dagana 22.-24. maí heldur hópur stuðningsmanna KR í víking til eyja. Miðjan hefur tekið á leigu stærðarinnar bústað og er ætlunin að slá upp KR-hátíð í eyjum. Við KR-ingar sækjum ÍBV heim í fjórðu umferð laugardaginn 23. maí og er tilgangurinn fyrst og fremst sé að fjölmenna á þann leik og styðja KR liðið til sigurs.
Heljarinnar dagskrá hefur verið skipulögð sem verður kynnt þeim er skrá sig í ferðina. Haldið verður út til eyja með Herjólfi á föstudegi og geta menn ýmist tekið bátinn í hádeginu eða um kvöldið. Þá geta menn valið hvort þeir taka dallinn til baka snemma á sunnudagsmorgni eða síðar um daginn.
Nú þegar hafa 20 KR-ingar skráð sig í ferðina en það er pláss fyrir fleiri. Hægt er að skrá sig inn á heimasíðunni www.miðjan.com. Nánari upplýsingar um ferðina er einnig hægt að fá með því að senda tölvupóst á ragnars@ejs.is eða pak1@hi.is

Á fimmtudaginn kemur sækjum við KR-ingar Sandgerðinga heim og leikum árlegan minningarleik við heimamenn í liði Reynis. Leikurinn er til minningar um Magnús Þórðarson íþróttafrömuð og hafa liðið mæst á knattspyrnuvellinum næstum árlega síðan 1985. Leikurinn er jafnan leikinn á vorinn og á grasi. Leikið verður á grasvelli þeirra Sandgerðinga, Sparisjóðsvellinum, og hefjast leikar kl. 18:00. Frítt verður á leikinn.
Það hefur vart farið fram hjá nokkrum manni að Rauða ljónið er vaknað af værum blundi og hefur starfsemi sína á nýjan leik á föstudaginn kemur, 1. maí. Við KR-ingar höfum mörgum sigrunum fagnað þar í gegnum tíðina og það er von okkar að vakning ljónsins sé merki um nýja og bjartari tíma. Í tilefni opnunarinnar býður Rauða ljónið öllum KR-klúbbsmeðlinum í frían öl á milli 20:00 og 21:00 á föstudaginn kemur. Vegleg dagskrá er svo alla helgina á ljóninu og verður m.a. frítt í pílu og billiard. Þá verður boltinn í beinni á fjölmörgum risaskjám. Rauða ljónið verður með veglegan matseðil og góð tilboð. Til að mynda verður hægt að fá hamborgara/pizzu og stóran bjór með á 1.000 kr.
Logi Ólafsson, þjálfari okkar KR-inga, greindi frá því á fundi KR-klúbbsins nú í kvöld að Hollenskur varnarmaður að nafni Mark Rutgers komi til landsins á morgun og verði til reynslu hjá KR í einhvern tíma. Rutgers er 23 ára gamall miðvörður og kemur frá hollenska úrvalsdeildarliðinu FC Utrecht. Nái Rutgers að heilla forráðarmenn KR má gera ráð fyrir því að hann gangi til liðs við félagið og leiki með okkur í sumar. Við munum fylgjast með þróun mála og greina lesendum frá.

Mark Rutgers er hér til hægri á myndinni.
Vorfundur KR-klúbbsins er í kvöld í félagsheimili okkar KR-inga við Frostaskjól. Fundurinn hefst á slaginu 20:00 og verður þétt dagskrá. Logi Ólafsson mun koma og halda tölu. Logi mun fjalla um komandi tímabil, undirbúningstímabilið og liðið sem hann er með í höndunum. Þá verða nýir leikmenn KR liðsins kynntir fyrir stuðningsmönnum.
Sérstakur gestur fundarins verður Tómas Ingi Tómasson. Tommi er okkur KR-ingum kunnugur en hann lék með meistaraflokki félagsins við góðan orðstír hér á árum áður. Tommi er sérstakur sérfræðingur Stöð2sport í íslensku deildinni en hann ásamt Magga Gylfa var með frábæran sjónvarpsþátt síðastliðið sumar þar sem Úrvalsdeildinni voru gerð góð skil. Tommi hefur sterkar skoðanir á KR liðinu og íslenska boltanum og hann mun fjalla um liðið á sinn hátt.
Þá mun fulltrúi knattspyrnudeildarinnar koma og segja það sem honum liggur á brjósti.
Fundargestum gefst að sjálfsögðu kostur á að spyrja ræðumenn spjörunum úr. Við hvetjum alla KR-inga til þess að koma og eiga með okkur ánægjulega kvöldstund.
Þá verður hægt að ganga frá skráningu í klúbbinn á fundinum.
-
KR-klúbburinn
KR vann í dag öruggan 3-1 sigur á Selfyssingum í æfingaleik á Hvolsvelli í dag. Okkar menn komust í 3-0 með tveimur mörkum Prince Ricjkomar og marki Baldurs Sigurðssonar. Selfyssingar minnkuðu svo muninn með sjálfsmarki Bjarna Guðjónssonar.
Byrjunarlið KR (4-4-2): Stefán Logi, Skúli Jón, Grétar, Bjarni, Diogo - Atli, Baldur, Jónas, Óskar - Prince, Björgólfur.
-
PK
KR mætir í dag liði Selfoss í æfingaleik, en leikið verður á grasvellinum á Hvolsvelli og hefjast leikar kl. 14:00. KR liðið dvelur þessa helgina í æfingabúðum á Hvolsvelli þar sem liðið æfir við fínar aðstæður. Leikurinn er liður í lokaundirbúningi liðsins fyrir Íslandsmótið en réttur hálfur mánuður er í fyrsta leik. Selfyssingar leika undir stjórn Gunnlaugs Jónssonar er tók við liðinu í vetur. Gunnlaug þarf vart að kynna fyrir KR-ingum enda lék hann með okkur um þriggja ára skeið.
Ætli stuðningsmenn KR sér að sjá leikinn þá er ekki seinna vænna en að fara að leggja í hann. Það er bara að skella sér á kjörstað og og svo austur fyrir fjalla.
Við birtum hér bréf sem stjórn KR-klúbbsins sendi félagsmönnum á dögunum. Við skorum á alla KR-inga sem eru ekki skráðir félagsmenn í KR-klúbbnum að skrá sig í ár!
Halda áfram að lesa "Frá KR-klúbbnum"
