
| S | M | T | W | T | F | S |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « Feb | Apr » | |||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
| 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
| 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
| 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
| 29 | 30 | 31 | ||||
Við bendum áhugasömum KR-ingum á viðtal við Rúnar Kristinsson sem er að finna á fótboltasíðunni www.sammarinn.com. Um er að ræða svokallað kempuviðtal en síðan hefur tekið fjölmörg viðtöl við okkar fyrrum hetjur. Sammarinn er kominn á fullt aftur og hvetjum við KR-inga og aðra knattspyrnuáhugamenn til þess að kíkja við þar og taka þátt í fjörugum umræðum um fótboltann. Að síðunni standa fjölmargir knattspyrnuunnendur og sumir þeirra eldheitir KR-ingar.
Þótt sumarið sé handan hornsins ætla ég að birta hér örstutta umfjöllun um bráðsniðugt fyrirbæri sem gagnast getur íslenskum fótboltaliðum þegar veður er köld og válynd. Hugmyndin hljómar galin en er í raun sáraeinföld og tiltölulega ódýr. Tjald er dregið yfir völlinn sem á að notast undir æfingu hverju sinni og síðan er heitu lofti blásið inn í tjaldið og því lyft og þannig verður til ódýr útgáfa af yfirbyggðri knattspyrnuhöll. Að auki má hæglega færa tjaldið á milli valla. Vitaskuld er þetta langt frá því að vera jafnbrúklegt og knattspyrnuhallirnar eins og við þekkjum þær úr Grafarvoginum eða Kópavogi, og vitaskuld heldur þetta ekki mjög vondum veðrum, en þetta hefur verið notað erlendis við ágætis árangur að því er virðist.
KR lék í morgun æfingaleik við ÍR-inga á gervigrasvelli okkar KR-inga við Frostaskjól. Leiknum lauk með 5-3 sigri okkar manna en staðan í hálfleik var 3-3.
ÍR skoruðu fyrsta mark leiksins eftir nokkurra mínútna leik. Skömmu síðar jafnaði Gunnar Kristjánsson metin en hann slapp inn fyrir vörn ÍR-inga. Grétar Sigurðsson bætti svo við marki með skalla eftir hornspyrnu og Gunnar Örn Jónsson kom okkar mönnum í 3-1. En þá tók við slæmu kafli og skoruðu ÍR-ingar tvö mörk með skömmu millibili og leikar voru jafnir í hálfleik. Það hefði nú mátt koma í veg fyrir þessi mörk en vörn KR opnaðist nokkuð í fyrri hálfleik.
Síðari hálfleikur var ekki eins opinn og sá fyrri. KR-ingar gerðu margar breytingar á liði sínu og höfðu undirtökin í leiknum. Þeir fengu fjölmargar aukspyrnur rétt fyrir utan teiginn en aldrei náðist að skapa nein hætta. Um miðjan síðari hálfeik bættust þó tvö mörk við. Það fyrra gerði Prince Rijkomar með góðu skoti úr teignum. Það var greinilegt að þungu fargi var af honum létt enda fyrsta mark hans fyrir KR. Síðasta mark leiksins gerði svo írski miðjumaðurinn Kevin en mark hans var keimlíkt marki Prince, þ.e. skot úr teignum. Davíð Birgisson átti þó mestan heiðurinn af því marki en hann lék skemmtilega á vörn ÍR-inga í aðdraganda marksins.
Lið KR: Atli Jónasson - Skúli Jón (Dofri), Grétar, Ásgeir Örn (Aron Bjarki), Diogo (Aron Ingi) - Atli (Magnús Lú), Bjarni, Guðmundur Péturs (Kevin), Gunnar Kristjáns (Einar Bjarni) - Gunnar Örn (Davíð Birgis), Prince.
-
PK
Á morgun, laugardag, tökum við KR-ingar á móti fyrstu deildarliði ÍR í æfingaleik á gervigrasvelli okkar við Frostaskjól. Leikurinn hefst kl. 11:00.
Meistaraflokkur KR vann í gær sannfærandi 5-1 sigur á ungu liði Gróttu í æfingaleik á nesinu í gær. KR liðið var mun sterkari aðilinn og hefði átt að vinna mun stærri sigur. Þeir Stefán Logi, Skúli Jón, Grétar Sigfinnur, Jónas Guðni, Atli Jóhansson og Óskar Örn voru allir hvíldir í gær og þá á Baldur Sigurðsson mun smávægileg meiðsli að stríða. Byrjunarlið KR var skipað: Atli - Magnús, Kevin, Aron, Diogo - Gunnar K, Bjarni, Guðmundur P, Gunnar Örn - Prince, Björgólfur.
Ég ætla nú ekki í smátriðu út í leikinn sem var ekkert sérstaklega spennandi. Við komumst yfir með sjálfsmarki Gróttumanna og svo bættu þeir Gunnar Kristjánsson og Guðmundur Pétursson við mörkum í fyrri hálfleik. Björgólfur kom KR svo í 4-0 snemma í síðari hálfleik. Gróttumenn minnkuðu svo muninn með einu ólöglegasta marki síðari tíma áður en Björgólfur bann endahnútinn á 5-1 sigur.
Það sem stóð kannski einna helst upp í gær var þátttaka Rúnar Kristinsson en hann lék síðustu 30 mínútur leiksins með KR liðinu.
Ég verð þó að furða mig á þessum leik. KR hvíldi vissulega nokkra byrjunarliðsmenn en Grótta sendi algjört varalið til leiks. Hver er tilgangurinn með slíku? Hvað eiga leikmenn KR að fá út úr leik við varalið Gróttu og þá með fullri virðingu fyrir þeim leikmönnum sem skipuðu það lið, enda stóðu þeir sig svo sem ágætlega. Getumunurinn er bara svo gríðarlega mikill að áhugi leikmann KR var í algjöru lágmarki, að því er virtist.Vissulega ágætis æfing fyrir ungt lið Gróttu en leikmenn KR fengu lítið sem ekkert út úr þessum leik
-
PK
Það verður nóg að gera hjá meistaraflokki KR næstu daga. Í dag, fimmtudag, verður leikinn æfingaleikur við nágranna okkar ofan af Seltjarnarnesi, Gróttu. Leikið verður á heimavelli þeirra Seltirninga og hefjast leikar kl. 18:00.
Grótta leikur í annarri deild næsta sumar líkt og í fyrra, eftir margra ára dvöl í þeirri þriðju. Fjölmargir fyrrum leikmenn KR leika með liðinu og helsta ber að nefna þá Kristján Finnbogason, Sölva Davíðsson og Sigurvin Ólafsson. Þjálfari þeirra Gróttumanna er Ásmundur Haraldsson en hann lék einnig með KR á sínum tíma.
Á laugardaginn verður einnig æfingaleikur en þá mætum við KR-ingar sprækum ÍR-ingum úr Breiðholti. Staður og stund verða staðfest síðar. ÍR-ingar sigruðu 2. deildina með miklum yfirburðum síðasta sumar og leika því í þeirri fyrstu næsta tímabil. Með ÍR-ingum leikur KR-ingurinn Tómas Agnarsson.

Leikið verður í gróttuborg á morgun
-
PK
Þá er það endanlega komið á hreint að Húsvíkingurinn Baldur Sigurðsson leikur með KR í sumar. Baldur skrifaði fyrir skemmstu undir þriggja ára samning við KR en í þeim samningi var fyrirvari að hann gæti gengið til liðs við sænska b-deildarliðið Ljungskilde. Baldur hélt til æfinga hjá liðinu en hafnaði samningsboði þeirra og því er ljóst að hann mun leika í Frostaskjóli við Meistaravelli.
Baldur er 23 ára gamall miðjumaður sem kemur til KR frá norska liðinu Bryne. Hann lék þar síðasta sumar en vegna bágrar fjárhagsstöðu norska liðsins yfirgaf Baldur félagið. Þar áður hafði Baldur leikið með Keflavík þar sem hann vakti athygli fyrir vaska framgöngu. Baldur hóf ferilinn með Völsungi og hefur einnig leikið með liðunum Eyfellingi og Eilífi.
Það verður spennandi að sjá hvar þeir félagar Logi og Pétur ætla sér að nota Baldur. Hann getur ýmist leikið miðju eða vörn en sögur segja að hann kjósi helst að spila inn á miðsvæðinu. Það er því ljóst að það er hörð barátta fram undan um sætin 11 í byrjunarliðinu.
Við bjóðum Baldur velkominn í KR
KR gerði í kvöld óþarfa 1-1 jafntefli við baráttuglaða Víkinga í þriðju umferð deildarbikarsins. KR liðið er því enn á sigurs með tvö stig. Þeir Logi og Pétur stilltu upp hefðbundnu byrjunarliði í kvöld eins og við var að búast. Stefán Logi stóð á milli stanganna og fyrir framan hann voru þeir Ásgeir Örn og Grétar og í bakvörðunum þeir Diogo og Skúli Jón. Bjarni og Jónas léku á miðjunni og þeir Óskar Örn og Atli á vængjunum. Í fremstu víglínu voru svo Gunnar Örn Jónsson og Prince Rijkomar.
Grétar skoraði mark okkar í kvöld. Nonni komst ekki á leikinn þar sem hann er tognaður á öxl eftir glímumót helgarinnar.
