
| S | M | T | W | T | F | S |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « Des | Feb » | |||||
| 1 | 2 | 3 | ||||
| 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 |
| 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 |
| 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 |
| 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
KSÍ kynnti nýlega leikdaga sumarsins. Flesta leiki ber upp á sunnudögum eða mánudögum sem þýðir að annað hvort fara leikir fram í helgarlok eða í upphafi vinnuvikunnar. Nú kunnum við ekki að skýra hverju það sætir að velja leikjunum þessa daga og kunna að vera fyrir því gildar ástæður, en um það þykjumst við þó vissir að þessar dagsetningar verða síst til þess að auka aðsókn áhorfenda.
Hversu langt er þess að bíða að KSÍ finni leikjum Íslandsmóts varanlega dagsetningu, þ.e.a.s. ákveðna leikdaga, eins og þekkist víða erlendis? Slík viss og öryggi auðveldaði félögum og áhangendum allt skipulag fyrir leiki, yki eftirvæntingu og síðast en ekki síst aðsókn.
Halda áfram að lesa "Leikdagar"
Ekki alls fyrir löngu kynntu KR-ingar stórhuga hugmyndir um uppbyggingu á KR-svæðinu. Rætt var um einhverskonar miðstöð menningar í Vesturbænum sem yrði reist umhverfis nýjan leikvang KR liðsins. Þrátt fyrir erfitt ástand í samfélaginu erum við KR-ingar hvergi nærri hættir og enn er unnið undir stjórn Péturs Marteinssonar að þessum hugmyndum. Við KR-ingar þurfum að halda áfram þessari vinnu og þrýsta á borgaryfirvöld því án þeirra gerum við lítið.

Þetta er það svæði sem við KR-ingar höfum úr að moða. Eins og sjá má væri auðveldlega hægt að koma fyrir um 6.000 manna leikvangi.
Halda áfram að lesa "Hvernig gæti KR-völlurinn litið út?"
Við KR-ingar mætum Fjölni í 2. umferð Reykjavíkurmótsins á morgun, laugardag. Leikurinn hefst kl. 15:00 og verður leikið í Egilshöll. Bæði lið sigruðu í sínum fyrsta leik, við sigruðum lið Leiknis 1-0 með marki Atla Jóhannssonar, en Fjölnismenn unnu Þróttara 2-1 með tveimur mörkum Ómars Hákonarsonar.Mönnum er eflaust enn í fersku minni sigur okkar á þeim gulklæddu í úrslitum bikarsins en í þremur viðureignum félaganna síðasta sumar unnum við tvo leiki gegn einum sigri þeirra.

Sannfærandi sigri á Fjölni fagnað á viðeigandi hátt
Farsæld hafið, framtíð bjarta,
finnið sigur, hverri raun.
KR-ingur þarf ei kvarta,
kveinka, þó að lækki laun.
-
Launagreiðslur ykkur, gumar,
goldnar verða ríklega,
þegar hafið, seint í sumar,
sigur unnið, líklega.
-
Þakkarvott og virðingsauka
Vesturbæjar, eignist þið.
Kalla myndum, það kaupauka,
kúldrist Valur botninn við!
Þá er komið að fyrstu getraun KRreykjavik.is þetta árið.Svara skal þessum spurningum í athugasemdakerfið og athugið að svör sem koma inn á spjallborðið eru ekki gild.
Sigurvegari getraunarinnar hlýtur veglegan konfektkassa. Smellið á meira og þá birtast spurningarnar sem eru tuttugu talsins.
1. Hvaða leikmaður hefur spilað með eftirtöldum liðum, Barcelona,Marseille,Lazio og Espanyol?
2. Hvaða íslenski leikmaður á flesta deildarleiki frá upphafi, 523 talsins athugið að hér er ekki aðeins verið að tala um deildarleiki á Íslandi heldur alla deildarleiki leikmanna?
3. Alex Ferguson hefur verið knattspyrnustjóri hjá Man.Utd í 22 ár sem er ansi mikið. Það er þó einn knattspyrnustjóri sem hefur verið lengur knattspyrnustjóri hjá Man.Utd. Hver er það?

Það má segja að ákveðin tímamót séu í knattspyrnusögu KR í dag. Við kveðjum Kristján Finnbogason, þann leikmann sem spilað hefur flesta leiki í sögu félagsins. Eftir að hafa staðið í marki KR síðastliðinn 15 ár þá heldur Kristján á uppeldisstöðvarnar á Seltjarnarnesi. Við stuðningsmenn KR kveðjum Kristján með söknuði en um leið bjóðum við Kristján velkominn í hóp stuðningsmanna KR.
Það eru 20 ár síðan Kristján lék sinn fyrsta leik með KR. Tveimur árum síðar ákvað hann að söðla um og gekk til liðs við nýliða Skagamanna. Það er óhætt að segja að Kristján hafi verið kletturinn í gríðarsterku liði Skagamanna, sem varð Íslandsmeistari árið 1992 og 1993, bikarmeistari 1993 og stóð í markinu í sögufrægum sigri Skagans á Feyenoord.
En það var með KR, sem Kristján vann sín helstu afrek. Fjórum sinnum varð hann Íslandsmeistari með stórveldinu og jafnoft bikarmeistari. Deildarbikararnir eru þrír og Reykjavíkurmeistaratitlarnir óteljandi.
Kristján lék 20 A-landsleiki og hvorki fleiri né færri en 452 leiki með KR. Mörkin voru þó aðeins eitt og segja má að það sé ákveðin synd að við stuðningsmenn KR fengum ekki að sjá Stjána oftar í senternum.
Kristján á stóran sess í hjörtum stuðningsmanna KR og það var alveg ljóst að það þurfti mikinn mann til að slá Kristjáni við. Þann mann fundum við í Stefáni Loga og óhætt að segja að hann hafi notið einstakrar leiðsagnar og stuðnings frá Kristjáni.
Kristján hyggst ljúka ferlinum í Gróttu og það er því von okkar stuðningsmanna KR og Kristjáns að Grótta dragist gegn KR í bikarnum.
Mig langar til þess að skora á stuðningsmenn KR að rifja upp bestu minningar þeirra um afrek Kristjáns með KR. Ég ríð á vaðið:
Þegar KR og Valur áttust við á KR-vellinum 2002/2003. Gummi Ben var þá kominn í Val. Stjáni varði boltann, rakti hann út að vítateigslínu þar sem Gummi sótti að honum. Stjáni tók boltann upp, kastaði honum á Gumma, sem skallaði hann til baka. Frábær íþróttamennska og staðfesting á því að fótbolti er besti leikur í heimi.
Við stuðningsmenn KR munum heiðra Kristján fyrir afrek hans á KR-vellinum í sumar um leið og við óskum honum góðs gengis í nýjum verkefnum.

Með því að smella á meira má sjá fleiri myndir af ferli Stjána hjá KR
Halda áfram að lesa "Stuðningsmenn KR þakka KRistjáni Finnbogasyni fyrir"
Byrjunarlið KR var skipað eftirtöldum leikmönnum. Stefán Logi Magnússon-Aron Ingi Kristinsson,Skúli Jón Friðgeirsson,Grétar Sigfinnur Sigurðarson,Ásgeir Örn Ólafsson-Atli Jóhannsson,Bjarni Guðjónsson,Jónas Guðni Sævarsson,Óskar Örn Hauksson-Guðmundur Pétursson,Gunnar Örn Jónsson. Aron Ingi Kristinsson spilaði sinn fyrsta mótaleik fyrir KR í þessum leik.Fyrri hálfleikur var fremur tíðindalítill og fátt um markverð færi. Guðmundur Pétursson fékk þó fínt færi en markvörður leiksins varði frá honum. Það var markalaust í hálfleik.
Atli gerði mark okkar í gær
Halda áfram að lesa "Sigur í fyrsta leik Reykjavíkurmótsins"
Húsvíkingurinn Aron Bjarki Jósepsson hefur gengið til liðs við KR, en hann hefur æft með liðinu í vetur og spilað í æfingaleikjum og staðið sig með prýði. Aron er 19 ára miðvörður og hefur spilað í 2.deildinni með Völsungi undanfarin ár. Við bjóðum Aron velkomin til Vesturbæjarstórveldisins og vonum að hann standi sig vel hjá okkur.
Mynd fengin af volsungur.is
-
HÓ
Það er gaman frá því að segja að KR-ingarnir Guðmundur Reynir og Guðjón Baldvins hafa hafið æfingar hjá sænska liðinu GAIS. Undirbúningstímabilið hófst hjá þeim í byrjun mánaðarins og hátt á þriðja hundrað stuðningsmanna liðsins komu og fylgdist með nýju leikmönnunum við æfingar. Nú er stefnan sett á Kaliforníu þar sem liðið mun dvelja í um hálfan mánuð í glampandi sól og hita. Eins ótrúlegt og það hljómar þá ef nefnilega kaldar í Svíþjóð en hér á Íslandi, en í Svíþjóð þá er bannað að kveikja á bálkesti til þess að ilja sér, annað en gildir hér á landi.
Þeim félögum er greinilega ætlað stórt hluthverk í liði GAIS ef mið er tekið af þeim númerum sem þeim var úthlutað. Mummi verður númer 5 og Guðjón fékk níuna.
Þá má segja frá því að Mummi fór létt með að sigra samherja sína í úthaldsprófi og Guðjón fylgdi honum fast á hæla. En í sprettprófinu þá var það Guðjón sem var manna fljótastur. Þegar kom að því að tegra þá bar Mummi hins vegar af og var með fullt hús stiga. Ekki fer neinum sögum af frammistöðu Garðbæingsins á því sviði

Svarti og hvíti búningurinn fer honum aðeins betur.
Næstkomandi föstudagskvöld hefjum við KR-ingar leik í Reykjavíkurmótinu. Á slaginu 19:00 flautar Eyjólfur M.Kristinsson til leiks okkar við sveina Sigursteins Gíslasonar úr Leikni. Leikurinn fer fram í hálfkláraðri Egilshöll og vonum við að KR-ingar fari varlega þegar þeir mæta til leiks. Vert er að benda mönnum á að bílastæðin hjá Egilshöllinni eru orðin ansi frumstæð og ýmsar hættur sem leynast á leið manna inn í höllina. Því er ástæða til að benda mönnum á að fara varlega.
Steini á góðri stundu með Gaua KRistins
