
| S | M | T | W | T | F | S |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « Okt | Des » | |||||
| 1 | ||||||
| 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 |
| 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 |
| 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 |
| 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 |
| 30 | ||||||
Miklar breytingar hafa orðið á leikmannahópi KR það sem af er vetri. Fjölmargir leikmenn hafa horfið á braut og þá hafa tveir nýir leikmenn bæst í hópinn. Við því er að búast að frekari breytingar muni eiga sér stað á leikmannahópnum. Umrótinu fylgja ýmsar breytingar og nokkrir leikmenn munu bera ný númer á bakinu næsta sumar. Gummi Ben verður að sjálfsögðu númer 11 og þá verður Gunnar Kristjánsson nr. 12. Þá fá þeir Skúli Jón og Bjarni Guðjóns ný númer.Við skulum líta á númeraskipan næsta tímabil eins og það lítur út í dag. Þeir sem eru með * fyrir aftan nafn sitt eru með nýtt númer. Á listanum má sjá nöfn þeirra Kristjáns Finnbogasonar og Péturs Marteinsson en framtíð þeirra er óljós. Við látum þá samt fylgja með.
Halda áfram að lesa "Númer leikmanna"
Gunnar Kristjánsson er genginn til liðs við KR á nýjan leik og hefur skrifað undir samning við félagið er gildir til ársins 2010. Gunnar kemur til KR frá Víkingum þar sem hann hefur leikið undanfarin tvö ár en þar áður hafði hann leikið alla sína tíð með KR. Gunnar sem er 21 árs gamall getur ýmist leikið á kanti eða í fremstu víglínu.
Gunni sem lék fyrst með meistaraflokki KR árið 2004 og á að baki um 30 leiki með KR í efstu deild.
Gunnar er annar leikmaðurinn sem gengur til liðs við KR á skömmum tíma.

Eins og menn sjá sem lesa KRreykjavik.is reglulega er lítið að gerast. Fátt er skemmtilegra en að ergja Valsmenn en það eru víst takmörk fyrir öllu því gríni. Látum það liggja milli hluta að sinni. Hins vegar viljum við skora á stuðningsmenn að senda okkur efni, hugmyndir að efni og annað:
Við sækjumst m.a. eftir:
* Sögum úr ferðalögum tengdum KR. Fylgdu menn KR liðinu til Hvíta-Rússlands, Rúmeníu, Ítalíu, o.fl.
* Lumið þið á góðum myndum af ykkum tengdu KR?
* Eigið þið góðar myndir úr starfi KR?
* Lumið þið á video-myndböndum frá leikjum KR, samkomum KR eða einhverjum öðrum tilvikum þar sem KR-ingar koma saman. Endilega sendið okkur, þar sem við viljum gjarnan stofna videohorn í tengslum við síðuna.
* Eigið þið gamlar myndir af KR-vellinum, húsakynnum KR o.þ.l.
Hvað eina sem tengist KR þætti okkur vænt um að fá. Þið getið sent okkur tölvupóst á KRreykjavik@hotmail.com eða haft samband við okkur bræður.
Við skorum á ykkur að hjálpa okkur að gera síðuna betri.
Á ferðum mínum um veraldarvefinn rakst ég á viðtal við leikmann tiltekins félags, sem er í viðtali við heimasíðu félagsins. Ástæðan er sú að lið hans tapaði í handbolta gegn HK. Nafn félagsins verður ekki birt þar sem forráðamenn félagsins og stuðningsmennirnir tveir verða alveg brjálaðir í hvert sinn sem ég fjalla um það.
En ástæða fyrir viðtalinu er eins og áður sagði tapleikur félagsins gegn HK. Heimasíðan tók þennan unga leikmann tali, en hann þótti nú manna bestur í leiknum og spurði hann, hvað hefði klikkað? Þessu svaraði strákur á þennan hátt:
“Já ég átti afmæli þegar að við spiluðum við Akureyri og þau úrslit voru ekki beint besta afmælisgjöfin sem ég gat fengið. Við vorum duglegir að æfa í fríinu sem við fengum og vorum staðráðnir í að ná góðum úrslitum gegn HK – en þetta var algjör skortur á einbeitingarleysi og svo fór sem fór…”
Svo finnst mönnum furðulegt að við gerum grín að þessu félagi!
KR-ingar tóku gleði sína ný eftir erfiðan mánuð, þegar tilkynnt var um endurkomu Guðmundar Benediktssonar til félagsins. Gummi sem er einn dáðasti leikmaður KR liðsins síðustu ára skrifaði undir eins árs samning við KR og lýsti því yfir að nú væri hann kominn heim til þess að ljúka ferlinum. Gummi hefur undanfarin fjögur sumur leikið með völsurum en þar áður lék hann með okkur í heilan áratug.
Það er margs að minnast af fræknum ferli Gumma hjá KR og þó svo hann myndi ekki sýna okkur nema brot af því sem sýndi á árum áður þá væri það nóg.Gummi hóf ferilinn hjá KR af miklum krafti og það er óhætt að segja að á þessum 10 árum hafi skipst á skyn og skýrir. Gummi glímdi við þónokkur meiðsli og þá sérstaklega síðari hluta sem hélt honum lengi utan vallar. En þegar hann var heill heilsu þá sýndi hann svo um munaði að hann var einn albesti leikmaður sem spilaði hafði í KR búningnum. Ég ætla að rifja upp af hverju Gummi Ben er svo dáður af stuðningsmönnum og hlaupa yfir það helsta sem gerðist á 10 ára ferli hans hjá KR. Það er vonandi að við fáum að sjá eitthvað í líkingu við slíkt næsta sumar.

Okkur hafa borist tvær nýjar skjámyndir frá DK og þökkum við Oddi útrásarvíkingi okkar KR-inga kærlega fyrir sendinguna. Annars vegar er um að ræða mynd af þeim Pétri og Jónasi þar sem þeir fagna bikarmeistaratitlinum og hin er af stuðningsmönnum KR. Myndinar má nálgast hér að ofan í stikunni “skjámyndir” eða með því að smella á meðfylgjandi linka.
Guðmundur Benedkitsson hefur skrifað undir 1 árs samning við KR. Guðmundur hefur undanfarin ár leikið með Val en hefur nú ákveðið að snúa aftur heim og ljúka ferlinum í Vesturbænum. Frábærar fréttir fyrir stórveldið og við bjóðum Gumma Ben velkominn.
