
| S | M | T | W | T | F | S |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « Sep | Nóv » | |||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | |||
| 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | |
Eins og glöggir lesendur fotbolta.net tóku eflaust eftir í morgun þá hafði KR-ingurinn, Friðgeir Bergsteinsson, sent inn áskorun á varnarmanninn Pétur Marteinsson um að hann myndi halda áfram að leika með okkur KR-ingum en Pétur hefur tilkynnt það að hann sé hættur í fótbolta. Friðgeir skorar á aðra KR-inga að pressa á Pétur og hefur hrint af stað undirskriftalista. Með því að smella á meira þá er hægt að lesa áskorun Friðgeirs og eins er að finna þar upplýsingar fyrir þá sem vilja taka þátt.
Halda áfram að lesa "Áskorun frá stuðningsmanni KR"
Guðmundur Reynir Gunnarsson og Guðjón Baldvinsson hafa gengið frá samningum við sænska úrvalsdeildarliðiðið GAIS og munu því ekki spila með KR í meistaradeild Evrópu 2010.
Okkar helstu samkeppnismiðlar birta allir fréttir af því að þeir félagar ásamt Hallgrími Jónassyni, varnarmanni Keflavíkur hafi gengið frá fimm ára samningum við liðið sænska og muni því næstu árin lesa Línu Langsokk og borða sænskar frikadellur. Heyrst hefur að í samningum þeirra sé kveðið á um ótakmarka úttekt hjá IKEA.
Við gleðjumst að sjálfsögðu fyrir hönd strákanna okkar og búumst við miklu af þeim.
Vistaskiptin hafa ekki verið staðfest á heimasíðu GAIS en við munum að sjálfsögðu birta ítarlegri fréttir af málinu um leið og þær berast sem og viðtöl við strákana.

Gunnlaugur Jónsson hefur ákveðið að yfirgefa KR liðið eftir þriggja ára dvöl í Vesturbænum. Gunnlaugur mun taka að sér þjálfun 1. deildarliðs Selfoss ásamt því að leika með liðinu.
Gunnlaugur gekk til liðs við KR fyrir sumarið 2006 frá Skaganum. Gunnlaugur var fljótlega gerður að fyrirliða KR liðsins og var einn af lykilmönnum KR liðsins er hafnaði í 2. sæti í deild og bikar sumarið 2006. Gunnlaugur glímdi við meiðsli stóran hluta sumars og var mikið frá. Gunnlaugur lék 45 leiki með KR í efstu deild og skoraði í þeim leikjum 1 mark.
Við á KRreykjavik þökkum Gunnlaugi fyrir hans framlag til félagsins um leið og við óskum honum velfarnaðar í nýju starfi.
Með því að smella á meira má sjá svipmyndir af ferli Gunnlaugs hjá KR.
Það er óhætt að segja að stuðningsmenn KR hafi verið sammála þegar kom að því að velja leikmann ársins. Pétur Marteinsson hafði þónokkra yfirburði í kjörinu og fyrr í dag var hann verðlaunaður fyrir frammistöðu sína. Pétur stóð sig frábærlega í sumar og stjórnaði vörn KR liðsins eins og herforingi. Pétur hafði gríðarleg áhrif á KR liðið og reynsla hans og forystuhæfileikar skiptu miklu þegar mest þurfti á að halda. Pétur er vel að titlinum kominn og vel við hæfi að hann hljóti þessi verðlaun á þessum tímamótum enda hefur Pétur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Í vikunni munum við birta viðtal við Pétur Marteinsson hér á KRreykjavik.is
Við þökkum lesendum fyrir frábæra þátttöku í kosningunni um leikmann ársins 2008. Veita átti verðlaunin við látlausa athöfn í kvöld en við þurfum því miður að fresta því fram á sunnudag. Góða helgi!
Senn líður að lokum kosninga en henni lýkur á miðnætti. Þátttaka hefur verið gríðargóð og það er óhætt að segja að spennan sé mikil og eins og staðan er núna er alls óljóst hver muni standa uppi sem sigurvegari.
En við hvetjum alla til þess að senda inn sitt atkvæði á krreykjavik@hotmail.com

Þá er komið að því að við stuðningsmenn KR verðlaunum þann leikmann er við teljum að hafi staðið sig best í sumar. Sá og hinn sami verður sæmdur nafnbótinni „Leikmaður ársins að mati KRreykjavik.is”.Við biðjum ykkur um að senda okkur póst á krreykjavik@hotmail.com með nafni þess leikmanns er þið teljið að hafi staðið upp úr. Kosningin mun standa fram til miðnættis miðvikudagsins 23. október. Atkvæði sem berast eftir það verða ekki talin með. Athygli er vakin á því að hver og einn má aðeins kjósa einu sinni. Við munum svo veita verðlaunin við látlausa athöfn föstudaginn 25. október.
Maður vissi ekki alveg við hverju maður átti að búast í vor. Fjölmargir sterkir leikmenn voru fengnir til liðsins og á pappírunum vorum við með lið sem átti að fara alla leið. Frammistaða liðsins á undirbúningstímabilinu var ósannfærandi. Góður sigur á FH gaf góð fyrirheit en í kjölfarið steinlágum við fyrir skagamönnum. Leikur liðsins var kaflaskiptur og stöðugleiki á skornum skammti.

Mynd fengin af kr.is
Halda áfram að lesa "Sumarið gert upp"
Það er óhætt að segja að hlutur KR hafi verið ansi stór í góðum 1-0 sigri landsliðsins á Makedóníu nú í kvöld. Hvorki fleiri né færri en sjö KR-ingar hófu leik í kvöld og sá áttundi kom inná skömmu fyrir leikslok. Sigurinn var kærkomin og það við hæfi að óska þjóðinni og KR-ingum til hamingju,
Menn mega vissulega deila um það hversu hreinræktaðir KR-ingar þeir eru allir saman en það segir ýmislegt að í nánast öllum tilfellum héldu þeir út í atvinnumennsku eftir dvöl eða gott uppeldi í Vesturbænum. Það sýndi sig og sannaði að KR er besti stökkpallurinn á leið í atvinnumennsku. Við eigum flesta landsliðsmenn.
Þeir KR-ingar er hófu leik í kvöld voru þeir Gunnleifur Gunnleifsson, Indriði Sigurðsson, Kristján Örn Sigurðsson, Brynjar Björn Gunnarsson, Stefán Gíslason, Eiður Smári Guðjohnsen og Veigar Páll Gunnarsson. Theadór Elmar Bjarnason kom inn á í síðari hálfleik. Þá má bæta því við að Pétur Pétursson er aðstoðarþjálfari landsliðsins.

