
| S | M | T | W | T | F | S |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « Júl | Sep » | |||||
| 1 | 2 | |||||
| 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
| 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
| 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
| 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
| 31 | ||||||
Við KR-ingar gerðum góða ferð í Árbæinn í gær er við sigruðum slaka heimamenn 2-0 í leik sem var búinn í hálfleik. Um 1.000 áhorfendur mættu á leikinn en þeir hefðu verið mun fleiri KSÍ hefði fallist á óskir fjölmargra knattspyrnuáhugamanna um að færa leikinn til svo fólk gæti hyllt íslensku handboltahetjurnar.
Leikurinn í gær byrjaði nokkuð fjörlega og það voru Fylkismenn sem hófu leikinn örlítið betur. Þeirra helstu færi komu þó eftir langskot og var það fyrrum KR-ingurinn Ingimundur Óskarsson er fór fyrir sóknum þeirra. En Fylkisliðið er ákaflega brothætt og má illa við mótlæti. Við nýttum okkur það, gengum á lagið og gerðum út um leikinn á stuttum kafla í fyrri hálfleik.

Halda áfram að lesa "Sanngjarn sigur í Lautinni"
Tugþúsundir Íslendinga lögðu til hliðar biturð og hatur sitt á okkar ástkæra félagi til þess að fagna með KR-ingunum Guðjóni Vali Sigurðssyni, Alexander Pettersyni og Hreiðari Leví Guðmundssyni árangri þeirra á nýliðnum Ólympíuleikum!
Halda áfram að lesa "Þjóðin fagnar KR-ingum í dag!"
Við KR-ingar sækjum Fylkismenn heim í Lautina í dag og hefst leikurinn kl. 18:00. Fyrir leikinn sitjum við KR-ingar í 6. sæti deildarinnar með 26 stig en með sigri getum við lyft okkur upp 4. sæti. Fylkismenn hafa lent í miklu ströggli í sumar og eru í 10. sæti með 16 stig aðeins fjórum stigum frá fallsæti.
Leikurinn í dag er því ákaflega mikilvægur fyrir bæði lið. Við keppum að því að ná Evrópusæti á meðan fylkismenn forðast fallið.
Hjá okkur KR-ingum er Viktor Bjarki í leikbanni en að sama skapi snýr Bjarni Guðjónsson til baka. Gera má ráð fyrir því að Bjarni taki stöðu Vikors inn á miðjunni eða að öðru leiti munu Logi stilla upp hefðbundnu liði.
Fylkismenn tefla fram þremur fyrrum KR-ingum, þeim Jóhanni Þórhallssyni og Ingimundu Óskarssyni er yfirgáfu félagið á þessu ári og þá leikur Haukur Ingi Guðnason með þeim appelsínugulklæddu. Þjálfari þeirra árbæinga er einnig okkur KR-ingum kunnugur, en það er fyrrum yfirþjálfari yngri flokka okkar, Leifur Garðarson.
Við hvetjum alla KR-inga til þess að fjölmenn á völlinn í kvöld og styðja liðið til sigurs í þessum leik. Þeir sem hyggjast heiðra handboltalandslið Íslands með nærveru sinni eru vinsamlegast beðnir um að endurskoða þá áætlun sína. Það á nú ekki að vera erfitt að velja á milli þess að mæta á KR leik eða einhverja móttöku.
Allir sem einn!
-
Páll Kristjánsson
Það var nokkuð skrítið að fagna jafntefli eftir leik KR og Keflavíkur á KR-vellinum í gær. Það sýndi sig enn og einu sinni að það er ekki nóg að vera betri aðilinn heldur þarf að nýta færin. Keflvíkingar fóru vel með sín færi og það leit út allt þar til á síðustu andartökum leiksins að þeir myndu fara með sigur af hólmi.

Mynd fengin af kr.is
Halda áfram að lesa "Súrsætt jafntefli"
Dregið hefur verið í happdrætti þeirra Stöð 2 Sport og stuðningsmanna KR. Hinn heppni er enginn annar en Jóhann Þór Eiríksson, 150479-xxxx og hefur hann unnið sér inn þriggja mánaða áskrift af Stöð 2 Sport. Vinningsins er hægt að vitja að Skaftahlíð 24 og það verður að framvísa skilríkjum.
Það er óhætt að segja að þeir hafi vakið mikla athygli á vellinum í kvöld félagarnir í KR/Liverpool treyjunum. Búningurinn fellur okkur er stöndum að síðunni, ákaflega vel í geð og því er okkur afar ljúft að fá að birta mynd af snillingunum. Við þekkjum því miður ekki nöfnin en drögum þó þá ályktun að þeir séu afskalega vel gefnir.
Björgólfur Takefusa var valinn maður leiksins af KR-klúbbnum eftir leik KR og Keflavíkur nú í kvöld. Björgólfur fór mikinn í leiknum. Hann skoraði gott mark og skapaði sér marktækifæri. Þá hefði hann með réttu átt að fá vítaspyrnu snemma í leiknum en dómarinn kaus að sjá það ekki. Á myndinni má sjá hvar Jón Bjarni afhendir Björgólfi flöskuna góðu að leik loknum.
KR klúbburinn verður með veglega upphitun fyrir leik KR og Keflavíkur í kvöld. Leikurinn hefst kl. 18:00 en upphitunun sjálf hefst kl. 16:30. Boðið verður upp á dýrindis Lasagne og með því. Allir KR-ingar eru hvattir til þess að fjölmenna á eftir.
allir sem einn.
KR útvarpið verður að venju með beina útsendingu frá leik KR og Keflavíkur í 17. umferð Landsbankadeildarinnar í kvöld. Leikurinn hefst kl. 18:00 og fer fram á KR-velli. Útvarpið hefur útsendingu kl. 16:00. KR útvarpið er hægt að nálgast á bylgjunni 98.3 og þá er hægt að hlusta á það á netinu. Hér að aftan má nálgast slóðina. KR-útvarpið
Við KR-ingar tökum á móti Keflvíkingum í dag og hefst leikurinn kl. 18:00. Leikurinn er liður í 17. umferð Landsbankadeildarinnar og fyrir leikinn sitjum við KR-ingar í 5. sæti deildarinnar með 25 stig á meðan gestirnir eru með 36 stig á toppi deildarinnar. Bæði lið unnu sína síðustu leiki, við unnum Framara með tveimur mörkum gegn engu á meðan Keflvíkingar kjöldrógu Þróttar 5-0.

Jónas Guðni mæti sínum gömlu samherjum.
