
| S | M | T | W | T | F | S |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « Jún | Ágú » | |||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
| 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
| 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | ||
Eins og sagt var frá fyrr í dag þá hefur ungur leikmaður, 22 ára að aldri, að nafni Guðmundur Atli Steinþórsson æft með KR undanfarna daga. Hann var á samningi hjá Fjarðarbyggð en hefur verið leystur undan honum og því getað æft með KR. Fyrr í dag undirritaði hann samning við stórveldið sem að gildir fram til 31. október næstkomandi. Það verður gaman að fylgjast með því hvort þessi ungi leikmaður festi sig í sessi hjá KR og styrki sóknarlínu liðsins enn frekar.
Við hjá KRreykjavík óskum Guðmundi til hamingju með samninginn og bjóðum hann velkominn í KR.
Nóg er að gera í vesturbæ Reykjavíkur þessa dagana . Félagsskiptaglugginn lokar í kvöld og hefur leikmannahópur KR tekið nokkrum breytingum. Nýr leikmaður hefur bæst í hópinn og þá hafa tveir horfið á braut. Ekki er loku skotið fyrir að frekari breytingar verði. Við hlaupum nú yfir það helsta sem hefur gerst undanfarna daga.
· Ingólfur Sigurðsson 15 ára unlingalandsliðsmaður úr Val gekk til liðs við KR á dögunum. Ingólfur er gríðarlega efnilegur og var á mála hjá Hollenska úrvalsdeildarfélaginu Heerenen síðasliðinn vetur. Ingólfur sneri þó heim ásamt fjölskyldu sinni nú í vor þrátt fyrir tilraunir hollendinganna til þess að halda honum. Ingólfur hefur verið orðaður við fjölda stórklúbba á undaförnum árum en okkur til happs hefur hann kosið að ganga í KR. Ingólfur sem er á yngra ári í þriðja flokki mun æfa með 2. flokki félagsins.
Halda áfram að lesa "Stuttar fréttir"
Undirritaður hefur ákveðið byrja með nýjan lið hér á KR-Reykjavik sem heitir gamla fréttin. Fyrsta fréttin er af vistaskiptum Guðna Rúnars Helgasonar í KR úr Val, sem áttu samkvæmt forráðamanni Vals aðeins að vera formsatriði.
Fréttin er tekin af mbl.is 18. nóvemer 2003 en þar segir:
Guðni Rúnar Helgason leikur að öllu óbreyttu með Íslandsmeisturum KR-inga í knattspyrnu á næstu leiktíð. Guðni er samningsbundinn Val til ársins 2005, er í eigu Valsmanna h/f, en forráðamenn Hlíðarendaliðsins gáfu KR-ingum leyfi til að ræða við Guðna og í samtali við Morgunblaðið í gær sagðist Guðni hafa undir höndum tilboð frá KR-ingum.
„Mér líst mjög vel á þennan samning sem ég fékk frá KR-ingum og hef áhuga á að ganga til liðs við þá. Ég á hins vegar eftir að fá grænt ljós frá Val til að ganga frá málunum,“ sagði Guðni Rúnar við Morgunblaðið í gær.
„Við höfum átt í ágætu samstarfi við KR og skemmst er að minnast þess að Þórhallur Hinriksson kom frá KR til Vals á dögunum. Við gáfum Guðna fullt leyfi til að ræða við KR og ég tel meiri líkur en minni á að hann fari í KR,“ sagði Börkur Edvardsson formaður knattspyrnudeildar Vals við Morgunblaðið.
Það stefnir því í að Valsmenn missi miðvarðarpar sitt en Ármann Smári Björnsson hefur ákveðið að spila með FH á næstu leiktíð. „Ármann og Guðni eru góðir fótboltamenn en við grátum þá ekkert. Við einfaldlega fyllum skörð þeirra og erum að leita að yngri mönnum í þessar stöður,“ sagði Börkur en Valsmenn fengu á dögunum tvo leikmenn í sínar raðir, Baldur I. Aðalsteinsson frá ÍA og Þórhall Hinriksson frá KR.
Þessi mynd er fengin að láni frá gras.is
Það er athyglisvert að höggva eftir ummælum Barkar: “Við höfum átt í ágætu samstarfi við KR…” Eitthvað hefur kólnað í samskiptum félaganna frá árinu 2003.
Orðið á götunni er það að Ólafur Páll Snorrason hafi vísvitandi kastað sér í tímamótatæklinguna í leik KR - Fjölnis, og stofnað lífi og heilsu Jónasar Guðna í stórkostlega hættu, svo hann kæmist á djemmið í Eyjum um helgina……. sel það ekki dýrar en ég keypti það!
KR-ingar og Fylkismenn hafa komist að samkomulagi um kaup þeirra síðarnefndu á kantmanninum Ingimundi Óskarssyni. Ingimundur sem er 22 ára gamall gekk til liðs við KR fyrir sumarið 2007 frá Fjölni.
Ingimundur hefur fengið fá tækifæri með KR liðinu þetta rúma eina og hálfa ár sem hann hefur á mála hjá KR og því féllust KR-ingar á kauptilboð þeirra Fylkismanna. Gengið verður frá félagsskiptunum í dag og því ætti Ingimundur að verða löglegur með Fylkismönnum strax í næstu umferð.
Við þökkum Ingimundi fyrir hans framlag til KR og óskum honum alls hins besta á nýjum stað.

KR-ingar hafa lánað hinn og unga og efnilega Skúla Jónsson til Víkinga er leika í 1. deild. Skúli sem getur ýmist leikið á miðjunni eða í fremstu víglínu hefur fengið afar takmörkuð tækifæri með KR liðinu það sem af er sumri og þarf sárlega á fleiri leikjum að halda.
Skúli sem er tvítugur mun leika með Víkingum út tímabilið. Fjölmargir KR-ingar hafa leikið og leika með Víkingum en Brynjar Orri Bjarnarson er einnig á lánsamningi hjá þeim. Það verður spennandi að sjá hvað Skúli gerir en hann var á láni hjá Þrótti síðasta sumar. Við óskum honum alls hins besta og megi Víkinga skila sér aftur upp í úrvalsdeild.
-
PK
Það var boðið upp á fína skemmtun í gærkvöldi er við KR-ingar tókum á móti nýliðum Fjölnis í lokaleik 13. umferðar í blíðunni í Frostaskjóli. Tæplega 2.500 áhorfendur, að langstærstum hluta KR-ingar, troðfylltu stúkuna og var stemmningin stórgóð eftir því. Aðstæður voru eins og þær gerast bestar, brakandi blíða og völlurinn iðagrænn og fallegur.

Sigrinum fagnað - mynd fengin af kr.is
Halda áfram að lesa "Þjóðhátíðarstemmning í Vesturbænum (umfjöllun)"
Pétur Marteinsson var valinn maður leiksins af KR-klúbbnum að loknum leik KR og Fjölnis í kvöld. Pétur steig ekki feilspor í vörn okkar manna og stjórnaði henni líkt og herforingi. Að launum fékk Pétur myndarlega flösku. Á myndinn má sjá hvar Hjörvar Ólafsson, stjórnarmaður í KR-klúbbnum, afhendir honum flöskuna að leik loknum.
Tæplega 2.500 manns sáu okkar menn sigra Fjölnismenn 2-0 í blíðunni í Frostaskjóli í kvöld. Það voru þeir Gunnar Örn Jónsson og Björgólfur Takefusa sem gerðu mörk KR liðsins í kvöld. Við munum fjalla ítarlega um leikinn í fyrramálið.
KR útvarpið verður að venju með beina útsendingu frá leik KR og Fjölnis í 13. umferð Landsbankadeildarinnar í kvöld. Leikurinn hefst kl. 20:00 og fer fram á KR-velli. Útvarpið hefur útsendingu kl. 18:00. KR útvarpið er hægt að nálgast á bylgjunni 98.3 og þá er hægt að hlusta á það á netinu. Hér að aftan má nálgast slóðina. KR-útvarpið
