
| S | M | T | W | T | F | S |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « Apr | Jún » | |||||
| 1 | 2 | 3 | ||||
| 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 |
| 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 |
| 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 |
| 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Fjórir KR-ingar tóku þátt í landsleik Íslendinga og Walseverja á Laugardalsvelli í gær. Það voru þeir Jónas Guðni Sævarsson, Theadór Elmar Bjarnason, Indriði Sigurðsson og Kristján Örn Sigurðsson.
Indriði og Kristján léku allan leikinn í vörn íslenska liðsins og áttu fínan dag. Krístján var fyrirliði liðsins og stjórnaði varnarleik Ísland. Indrið lék í stöðu vinstri bakvarðar og kom inn í liðið á nýjan leik eftir nokkuð langa fjarveru. Indriði var virkilega öruggur í gær þó svo að hann kunni betur við sig í stöðu miðvarðar en þá stöðu hefur hann leikið með Lyn undanfarin misseri.
Elmar byrjaði nokkuð óvænt á varamannabekknum en kom inn á seint í síðari hálfleik og fór á vinstri vænginn. Jónas Guðni kom einnig inn á í síðari hálfleik og fór inn á miðja miðjuna.
Stefán Logi Magnússon hefur fram til þessa verið í landsliðihópi Ólafs Jóhannessonar en var sem fyrr fjarverandi vegna meiðsla.
-
PK
Garðar Örn Hinriksson dómari leiksins í gær þurfti að taka nokkrar ansi stórar ákvarðarnir. Hann rak Gunnlaug réttilega út og þá dæmdu dómarar leiksins ranglega af þriðja mark þeirra FH-inga. Svona er bara boltinn og dómara falla liðum í í hag eða á móti. Það er þó ein ákvörðun Garðar sem ég bara fæ ekki skilið. Í stöðunni 0-0 sleppur Guðjón Baldvinsson inn fyrir vörn þeirra FH-inga og Daði Lárusson hleypur út úr markinu og í orðsins fyllstu merkingu hoppar á Guðjón.Fyrir það fyrsta tekur Daði boltann með einnig með hendi. En það finnst mér ekki vera aðalatriðið.
Af hverju er markmanni heimilt að hoppa á sóknarmann til þess eins að stöðva hann. Eins og sésta á myndinni (sem fengin er að láni hjá visi.is) þá stoppar Daði Guðjón með því einu að hoppa á leikmanninn. Ef þetta hefði verið útileikmaður þá hefði alltaf verið dæmt aukaspyrna á þetta, enda annað verið glóruslaus dómur. Þar sem Daði er aftasti maður þá er þetta jafnframt rautt spjald. Þarna brást Garðar algjörlega skyldu sinni og það væri gaman að heyra hann reyna að útskýra þennan dóm sinn. Við þetta má bæta að ég tel Garðar góðan dómara en hann má vissulega gagnrýna eins og aðra.
Það er ekki nóg með það að markverðir eru ofverndaðir inn í markteignum heldur er þetta komið í algjöra vitleysu þegar markmenn fá að komast upp með svona út á miðjum leikvelli.
Myndin er fengin af visi.is
Það fór sem frá var horfið og við KR-ingar lágum fyrir öflugu liði FH-inga í gær 2-0. Leikur KR liðsins var kaflaskiptur. Liðið hóf leikinn af miklum krafti, en eftir að heimamenn höfðu skorað, gegn gangi leiksins, var sigur FH-inga var í raun aldrei í hættu.Logi gerði nokkrar áherslubreytingar á liðsuppstillingunni. Hann færði Viktor Bjarka framar á völlinn og fórnaði svo Björgólfi fyrir djúpan miðjumann, en Skúli Jón kom inn í liðið. KR stillti því í raun upp í leikkerfinu 4-5-1 þar sem Viktor var í raun í frjálsu hlutverki framarlega á miðjunni.
Mynd fengin af www.kr.is
Halda áfram að lesa "Enn eitt tapið í Kaplakrika"
Í kvöld sækjum við KR-ingar FH-inga heim í krikann í sannkölluðu stórleik 4. umferðar. Leikurinn hefst kl. 20:00 og ætla stuðningsmenn KR að hittast kl. 18:00 eins og fram kemur hér á síðunni.
FH-ingar hafa hafið mótið af miklum krafti og eru með 7 stig eftir þrjá leiki. Þeir sigruðu HK sannfærandi í fyrsta leik, þá skagann og í síðustu umferð gerðu þeir óvænt 4-4 jafntefli við Þrótt. Við KR-ingar sigruðum fyrsta leik tímabilsins en eftir það hefur KR liðið valdið miklum vonbrigðum. Tveir tapleikir gegn Fjölni og Breiðablik þýða það að allt annað en sigur í kvöld er þess valdandi að liðið dregst aftur úr. Við förum bjartsýnir í leikinn þess minnugir að við sigruðum síðustu viðureign félaganna í deildarbikarnum 2-0.
Stefnan var sett á það að hittast á Bada bing en honum hefur verið lokað. Staðurinn var steinsnar frá vellinum eins og sjá má hér á þessari slóð.
Þar sem Bada bing var til hús er nú kominn pólskur bar en hann verður opinn á morgun og við erum velkomnir þangað.
Hittumst hressir á WARZAWA kl: 18:00!!
Vil nota tækifærið og minna Vesturbæinga á að Knattspyrnufélag Vesturbæjar hefur leik í Íslandsmótinu í dag. Liðið tekur á móti KFS frá Vestmannaeyjum á gervigrasvelli KR og hefst leikurinn kl. 15:00. Með KV leika fjölmargir KR-ingar og hefur félagið m.a. fengið leikmenn að láni frá KR. Það væri gaman að sjá sem flesta mæta á leikinn.
PK
Vinsamlegast takið það til ykkar sem þetta eiga. Spjallborðið hér er ekki verkfæri manna til að ata aðra aur í skjóli nafnleysis. Við leyfum öllum að gera hér athugasemdir nafnlaust, kjósi þeir svo, til þess að ýta undir og búa til umræðu en við leyfum það ekki svo einstaka vitleysingar geti hér vegið að æru manna. Athugið það sérstaklega og takið til ykkar stuðningsmenn annarra liða, að ykkur er frjálst að taka þátt í hverjum þeim umræðum hér sem ykkur hugnast og jafnvel megið þið gagnrýna KR og stuðningsmenn þess, en það er óþolandi og ólíðandi þegar nafnleysið er notað af misþroska einstaklingum til niðurrifs! Hvaða mögulega hagsmuni getur nokkur fótboltaáhugamaður haft af því að rífa niður og grafa undan nánast eina virka spjallborði landsins um íslenskan fótbolta?
Halda áfram að lesa "Spjallverjar athugið enn og aftur"
Þrátt fyrir magurt gengi meistaraflokks í undanförnum leikjum er nóg að frétta úr herbúðum stórveldisins. Við hlaupum hér yfir það helsta í stuttu máli:
2. flokkur karla hefur leik á Íslandsmótinu í kvöld. Þá mæta skagamenn í heimsókn í Frostaskjólið og hefjast leikar kl. 19:15. Það vekur nokkra athygli að leikurinn fer fram á gervigrasvelli KR en grasvellir KR hafa komið vel undan vetri.
Þjálfari flokksins er Úlfar Hinriksson og hefur árangur liðsins verið góður á undirbúningstímabilinu. Þeir fögnuðu á dögunum Reykjavíkurmeistaratitli og var það fyrsti titill annars flokks síðan 2003. Í flokknum er að finna marga efnilega leikmenn sem munu setja mark sitt á meistaraflokk félagsins á komandi árum.
Það er vonandi að sem flestir KR-ingar leggi leið sína í Frostaskjólið í kvöld.
-
PK
KR-klúbburinn heldur áfram að velja mann leiksins og gær var það Grétar Sigfinnur Sigurðsson er þótti standa sig best að mati dómnefndar. Grétar skoraði fallegt mark í leiknum og hefðu aðrir leikmenn liðsins mátt taka hann sér til fyrirmyndar hvað baráttu varðar. Á myndinni má sjá hvar Hjörvar Ólafsson, stjórnarmaður í KR-klúbbnum afhendir Grétari vinningsflöskuna að leik loknum.
