
| S | M | T | W | T | F | S |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « Mar | Maí » | |||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
| 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
| 27 | 28 | 29 | 30 | |||
KR gerði jafntefli við 1. deildarlið Selfoss nú í kvöld. Leikið var á gervigrasvelli þeirra Selfyssinga. Leiknum lyktaði með 2-2 jafntefli. Selfyssingar gerðu fyrsta mark leiksins en okkar með svöruðu með tveimur mörkum þeirra Guðmundur Péturssonar og Gunnars Arnar Jónsson. Selfyssingar áttu svo lokaorði og hefðu með smá heppni getað stolið sigrinum. Myndir úr leiknum má sjá inn á www.kr.is
Gangur mála: 1-0 Sævar Þór Gíslason (49.), 1-1 Guðmundur Pétursson (53.), 1-2 Gunnar Örn Jónsson (71.), 2-2 Ingólfur Þórarinsson (75.)
Lið KR: Stefán Logi Magnússon (Kristján Finnbogason 59.) - Ingimundur Níels Óskarsson, Grétar Sigfinnur Sigurðsson, Gunnlaugur Jónsson (f.) (Ásgeir Örn Ólafsson 59.), Vilhjálmur Darri Einarsson (Einar Bjarni Ómarsson 75.) - Gunnar Örn Jónsson, Jónas Guðni Sævarsson (Skúli Jón Friðgeirsson 65.), Viktor Bjarki Arnarsson (Kristinn Jóhannes Magnússon 65.), Óskar Örn Hauksson (Skúli Jónsson 68.) - Björgólfur Takefusa (Davíð Birgisson 83.), Guðjón Baldvinsson (Guðmundur Pétursson 50.).
Gul spjöld: Guðmundur Pétursson, Grétar Sigfinnur Sigurðsson.
Á morgun, laugardag, er lokahóf KR getrauna. Hófið hefst kl. 18:00 og stendur til kl. 20:00. Eins og venjulega verður hófið í félagsheimili KR og er þátttakendum í getraunastarfi og sjálboðaliðum boðið að mæta. Þá vonast aðstandendur hófsins til að sjá Miðjumenn á svæðinu!!
Allir sem einn
Í gær undirrituðu borgarstjóri Reykjavíkur Ólafur F. Magnússon, Jónas Kristinsson framkvæmdastjóri Nýsis og nýr formaður Knattspyrnudeildar KR Kristinn Kjærnested samstarfssamning um byggingu fjölnota íþróttahús KR úti í Örfirisey. Húsið sem á að vera tilbúið 2010 er 15.000 fm að stærð. Í húsinu á að vera fullkominn knattspyrnuvöllur með aðstöðu fyrir 2500 áhorfendur, skautahöll, klifurveggur, aðstaða fyrir skotæfingar en að auki veitingastaðir, bíó og þá hyggst World Class opna fullkomna líkamsræktarstöð ásamt sundlaug í húsinu.
KR sækir Selfoss heim á mánudaginn kemur og leikur æfingaleik við heimamenn. Leikurinn hefst kl. 19:00 og fer fram á gervigrasvelli þeirra Árborgarbúa.
Selfoss leikur í 1. deild á komandi sumri eftir áralangadvöl í 2. deild.
Hvað er betra en að skella sér til Selfoss á mánudagskvöldi. Það er mun styttra en maður heldur;)

Svona í tilefni þess að undanúrslit meistaradeildarinnar eru í fullum gangi þessa dagana þá er við hæfi að birta mynd af fyrsta Evrópuleik KR. Leikurinn var jafnframt sá fyrsti hjá Liverpool í Evrópukeppni. Leiknum lauk með 5-0 sigri gestanna er sigruðu einnig síðari leikinn 6-1. Á myndinni má sjá fyrirliða liðanna þá Eller B. Schram (t.h.) og Ron Yeats (t.v.) heilsast.
Ef fólk á skemmtilegar myndir úr sögu KR þá væri gaman að fá að birta þær. Endilega sendið okkur á póstfangið krreykjavik@hotmail.com
Eins og glöggir notendur hafa án efa tekið eftir hefur tilvitnanakerfið á spjallborðinu aldrei virkað sem skyldi. Nú ætti það hins vegar að vera komið í lag og hvetjum við því menn til að vitna í skrif eftir aðra á spjallborðinu eins og enginn væri morgundagurinn!
Við á KRreykjavík vorum beðnir um birta eftirfarandi auglýsingu fyrir knattspyrnumót stuðningsmannaliða. Ýtið á meira fyrir auglýsinguna.
Halda áfram að lesa "Knattspyrnumót stuðningsmannaliða"

-
Komið er að hinu vinsæla lokahófi KR-getrauna en það verður haldið næsta laugardag og stendur frá kl. 18-20. Eins og venjulega verður hófið í félagsheimili KR og er þátttakendum í getraunastarfi og sjálboðaliðum boðið að mæta. Þá vonast aðstandendur hófsins til að sjá Miðjumenn á svæðinu!!
-
Veitt verða verðlaun fyrir Vorleik, Framrúðubikarinn og Bikarkeppni KR-getrauna og áætlað er að afhendingu ljúki kl. 19.00.
-
Vonandi sjáum við sem flesta á laugardag og við í Miðjunni megum ekki láta okkur vanta!

-
Ég ætlaði á völlinn, ég vildi skemmta mér
en vandi er skemmta sér heiðarlega hér.
Svo áður en ég mæti ég fullan helli mig
og mögulega lauma ég svo hnefanum í þig.
Halda áfram að lesa "Óður til gleðinnar - hirðskálið kveður um hlykkjótta vegi hamingjunnar"
Miklar breytingar urðu á stjórn knattspyrnudeildar á aðlafundi félagsins síðastliðið fimmtudagskvöld. Kristinn Kærnested er nýr formaður deildarinnar og tekur starf Magnúsar Ingimundarsonar er gegnt hefur embætti formanns undanfarin ár. Magnúsi eru að sjálfsögðu þökkuð góð störf.
Helsta breytingin var samt sú að knattspyrnudeildin tekur aftur við rekstri meistara- og 2. flokks félagsins og KR-sport dregur sig þar með úr daglegum rekstri deildarinnar. KR-sport verður hugsað sem styrktarfélag við knattspyrnuna í KR. Hvernig það verður útfært kemur betur í ljós á aðalfundi félagsins.
Hin nýju stjórn skipa ásamt Kristni þau Baldur Stefánsson varaformaður, Ingi Jóhann Guðmundsson gjaldkeri, Haraldur Haraldsson ritari og meðstjórnendurnir Þorlákur Björnsson, Hörður Felix Harðarson, Karólína Jónsdóttir, Sigríður Fanney Pálsdóttir og Hilmar Þór Kristinsson. Í varastjórn eru Daníel Magnús Guðlaugsson, Gísli Hall og Birgir Örn Birgisson.
