
| S | M | T | W | T | F | S |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « Jan | Mar » | |||||
| 1 | 2 | |||||
| 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
| 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
| 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
| 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | |
Sóknarmaðurinn ungi, Brynjar Orri Bjarnarson hefur verið lánaður til 1. deildarliðs Víkings, og mun leika með félaginu næsta sumar. Samningurinn mun gilda til 15. október 2008 og að honum loknum mun Brynjar ganga til liðs við KR á nýjan leik.
Brynjar hefur glímt við erfið meiðsli undanfarin tvö sumur og því má segja að þetta sé kærkomið tækifæri fyrir hann en hann er genginn upp úr öðrum flokki félagsins. Brynjar á að baki fjölmarga leiki með unglingalandsliðum Íslands og á eftir að reynast Víkingum vel á leið sinni upp í úrvalsdeild á nýjan leik.
Við óskum Brynjari góðs gengis í Fossvoginum.
-
PK
Jæja þá er komið að því að henda inn einni lauléttri föstudagsgetraun. Þema getraunarinnar er árið sem við urðum síðast Íslandsmeistarar, það er hið herrans ár 2003.
Spurningum skal svarað í athugasemdakerfið og eru reglurnar þær að sá aðili sem kemur með flest rétt svör sigrar, en ekki sá sem fylgist með álengdar og kemur svo sterkur í lokin og svarar öllu. Þannig að ef að menn vilja eiga möguleika á því að svör þeirra verði talinn saman, verða þeir að skrifa undir sama nafni allan tímann.
Ef að kvartanir berast þess efnis að menn brjóti höfundaréttarlög og noti nafn er áður hefur verið notað, verður notast við IP tölu.
Tómas Agnarsson sér um tæknilega hlið getraunarinnar og munu Vigfús Arnar Jósepsson og Sveinbjörn Þorsteinsson aðstoða hann ef tæknilega vitsmuni hans þrýtur.
Verðlaunin eru sko ekki af verri endanum. Sigurvegari getraunarinnar hlýtur tvo vel völd glös af söngolíu fyrir næsta heimaleik í körfunni.


Mætum og styðjum KR liðið til sigurs. Verið er að leita að stað til að hittast á fyrir leik og verða nánari upplýsingar settar inn á spjallið er þær liggja fyrir.
Tryggvi Bjarnason, varnarmaðurinn sterki, hefur gengið til liðs við Garðabæjarliðið Stjörnuna. Tryggvi, sem er gegnheill KR-ingur, hefur áður leikið utan Vesturbæjar, en hann lék fyrir Vestmannaeyjar árin 2003 og 2004. Tryggvi reyndi að komast að hjá liðum í Noregi, en hefur nú horfið frá þeirri fyrirætlan sinni.
Tryggvi segir í viðtali við fótbolta.net að hann hefði kosið að spila fyrir KR en ljóst er að steytt hefur á einhverjum steini, því til stóð að halda honum í Vesturbænum. Ljóst er að Tryggva var boðinn samningur, en eitthvað varð til að Tryggvi gekk ekki að honum. Tryggvi er augljóslega ósáttur og það er miður, en vonandi fáum við þó að sjá þennan litríka leikmann aftur leika í KR-treyjunni og stuðningsmenn munu taka vel á móti honum þegar þar að kemur.
Það er vitaskuld alltaf leiðinlegt þegar ungir, uppaldir leikmenn kveðja KR en slíkt gerist því miður, og ég tel réttast að forsvarsmenn KR einbeiti sér nú að þeim verkefnum sem framundan eru, þ.e. að vinna deildarbikarinn, og þá verður spennandi að sjá hvað Rúnar kemur með heim í handfarangrinum frá Danmörku.

Smellið á meira til að sjá myndir af Tryggva.
Við KR-ingar leitum nú leiða til að styrka liðið fyrir komandi tímabil, en Rúnar Kristinsson, yfirmaður knattspyrnumála hjá KR, var staddur í Álaborg í Danmörku að skoða leikmann. Um er að ræða miðjumann sem getur leist allar stöður á miðjunni. Ekki er vanþörf á enda hafa þrír miðjumenn hætt með KR liðinu frá síðastliðnu sumri þeir Ágúst Gylfason, Bjarnólfur Lárusson og Rúnar Kristinsson. Þá glímir Atli Jóhanneson enn við meiðsli og óljóst með þátttöku hans næsta sumar.
Ekkert er þó frágengið með danska leikmanninn og í raun nokkuð langur vegur frá að af því verður. Hvort það verður nú eða síðar sem leikmaðurinn gangi til liðs við KR á eftir að koma í ljós. Við færum ykkur nánari fréttir síðar.
-
PK
Vegna úrskurðar Dómstóls KSÍ þar sem sigur KR var staðfestur og vegna þeirrar umræðu sem hefur skapast þá langar mig til að útskýra lauslega niðurstöðu dómstóls KSÍ. Athugið að þessi útskýring er mín skoðun á niðurstöðu dómstólsins en ekki nákvæmar leiðbeiningar dómstólsins. Ég sett þetta fram í punktaformi til hægðarauka.
Ég vona að lesendur KRreykjavik.is hafi gaman af þessu og að þetta sé ekki skrifað hrútleiðinlegum texta skrifborðsþrælsins. Sé svo biðst ég afsökunar!

Halda áfram að lesa "Útskýring á úrskurði dómstóls KSÍ í máli Vals og KR"
Eftir leik KR og Keflavíkur í úrvalsdeild karla í körfuknattleik, spruttu upp umræður hjá íþróttaáhangendum landsins, þess efnis að Miðjan hefði farið offari í stuðningi sínum, í umræddum leik með því að ráðast ómaklega að leikmönnum Keflavíkurliðsins.
Gekk sú gagnrýni svo langt að Miðjunni var líkt við stuðningsmenn ítölsku liðannna Lazio og Roma.
Stuðningsmenn Lazio og Roma eru þekktir fyrir gríðarlega harkalegan kynþáttaáróður og skrílslæti í tengslum við kappleiki líðs síns og er því ekki óeðlilegt að okkur í Miðjunni sárni þessar viðlíkingar.

Halda áfram að lesa "Siðferði í stuðningi á íþróttakappleikjum"
Fyrir áhugamenn um lögfræði (m.a. allir ritstjórar síðunnar) þá birtum við hérna dóm Dómstóls KSÍ í máli Vals gegn KR. En eins og við vitum allir þá fóru Valsmenn í fýlu eftir flenginguna um daginn og kærðu okkur KR-inga. En við snerum þá niður með ljúfum hælkróki.
(á myndinni hér til hliðar má sjá KR-inga fagna gegn Val - táknræn mynd).
Halda áfram að lesa "KR vann Val 4-0, 4-0, 4-0 - við vinnum líka í dómsölunum"
Hjörvar Ólafsson hefur gengið til liðs við KRreykavik á nýjan leik og mun rita greinar inn á síðuna. Það mun án efa bæta þjónustuna við stuðningsmenn KR en við leitum nú leiða til þess að styrkja síðuna.Hjörvar birtir í dag sína fyrstu grein undir heitinu “Siðferði stuðningsmanna á íþróttakappleikjum”.
Við bjóðum Hjörvar velkominn í hóp penna á virðulegustu íþróttasíðu landsins og þó víðar væri leiðar.
PK
KR mætti Leikni í deildarbikarnum í gær, og vann á því 3-1 sigur, eins og lesendur vita. Leikurinn fór ágætlega af stað hjá báðum liðum, ljóst var að Leiknismenn ætluðu sér stóra hluti og þeir börðust ágætlega, og tempó beggja liða var hátt. Leikurinn róaðist þó fljótt og fyrri hálfleikur var því ekkert sérlega skemmtilegur áhorfs. KR sótti töluvert meira en Leiknir, og skapaði sér fleiri færi, og hefði hæglega getað komist yfir snemma í leiknum. Grétar Hjartarson, skapaði tvo góð færi í fyrri hálfleik, á 18. mínútu stakk hann boltanum inn fyrir vörnina þar sem Guðjón Baldvinsson sótti hann en lagði hann framhjá fjærstönginni, og á 27. mínútu lagði Grétar boltann á Óskar Örn sem eins og Guðjón, skaut boltanum framhjá markinu. Þá varði Valur Gunnarsson, markmaður Leiknis, skot frá Jónasi Guðna og staðan því 0-0, þegar stórveldið hefði hæglega getað verið þremur mörkum yfir.
