
| S | M | T | W | T | F | S |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « Des | Feb » | |||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
| 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
| 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | ||
Indriði Sigurðsson vakti snemma athygli hér á landi en fyrir rúmum áratug var hann lykilmaður í KR liðinu er gerði harða atlögu að meistaratitlinu eftir langa eyðmerkurgöngu. Hann var langyngstur í liðinu, rétt skriðinn upp í annan flokk, er Atli Eðvaldsson kallaði hann inn í liðið. Indriði lék þó ekki lengi með KR liðinu því leið hans lá til Noregs. Þar lék hann um hríð við hlið Rúnar Kristinssonar hjá Lilleström áður en hann gekk til liðs við Genk í Belgíu. Nú er hann snúinn aftur til Noregs þar sem hann leikur í hjarta varnarinnar hjá Íslendingaliðinu Lyn. Við lögðum nokkrar spurningar fyrir KR-inginn Indriða og hann brást að sjálfsögðu ekki stórveldinu.
Halda áfram að lesa "“Alveg ljóst að ég enda ferilinn í Vesturbænum”"
KSÍ hefur dæmt Leikni sigur gegn KR, í leik sem fram fór 18. janúar síðastliðinn í Reykjavíkurmótinu. Ástæðan er sú að KR-ingar stilltu upp Guðmundi Péturssyni, sem kom til KR tímabilið 2006, en lék með Sandefjord síðari hluta tímabils 2007.
Guðmundur Pétursson hafði enn ekki fengið félagsskiptin í gegn frá Sandefjord, og því var hann ólöglegur til leiks á Reykjavíkurmótinu.
KR vann leikinn 3-1, en hann verður nú skráður sem 3-0 sigur Leiknis. Það er ótrúlegt að ekki skuli hafa verið séð fyrir þessu, og sætir undrun hversu oft lið virðast flaska á svo einföldum atriðum.
KR vann í gær 4-2 sigur á ÍR í öðrum leik sínum í Reykjavíkurmótinu. Mörk KR í leiknum gerðu þeir Björgólfur Takefusa, Guðjón Baldvinsson (2) og Guðmundur Pétursson. Því miður komst enginn okkar á leikinn og verðum því að vísa í aðra fjölmiðla.
-
PK
Það er nokkuð þétt dagskrá hjá KR liðinu þessa helgina. Í kvöld mætum við ÍR í annarri umferð Reykjavíkurmótsins og á morgun sækjum við heim Fjarðarbyggð og leikum við heimamenn.
Reykjavíkurmótið hófst síðasta föstudag er við unnum öruggan 3-1 sigur á Leiknismönnum. Leikur KR liðsins var nokkuð kaflaskiptur en liðið komst fljótlega í 2-0 eftir kröftuga byrjun. Leikur liðsins dalaði eftir því sem leið á og komumst Leiknismenn fullmikið inn í leikinn. En það voru þrjú stig sem skiluðu sér í hús og það er það sem skiptir máli.
Halda áfram að lesa "Tveir leikir á tveimur dögum"
Við höldum áfram að fylgjast með Emma reyna fyrir sér á nýjum vettvangi en eins og greint var frá ekki alls fyrir löngu gekk hann til liðs við norska úrvalsdeildarfélagið Lyn. Hér að neðan má sjá link á sjónvarpsviðtal við hann er tekið var af fyrir skömmu. Viðtalið er á norsku en það vefst ekki fyrir Emma enda bjó hann um tíma í Noregi. En linkin má sjá hér:
http://lyn.no/lyntv/index.aspx?mid=1124&id=1211431&folder=-1
Fótboltatímabilið hófst formlega í gær og eðli málsins samkæmt er nóg að gerast í Frostaskjóli. Við hlaupum hér yfir það helsta:
Leikur KR og Leiknis verður ekki lengi í minnum hafður. Leikmenn liðanna greinilega langt frá sínu besta formi og ljóst að KR liðið á nokkuð langt í land. Það fór þó svo að KR liðið vann nokkuð öruggan 3-1 sigur sem stóð þó nokkuð tæpt síðustu mínútur leiksins.
Hjá okkur KR-ingum voru þeir Atli Jóhannsson, Guðmundur Reynir og Jóhann Þórhalls fjarverandi vegna meiðsla. Logi stillti upp í leikkefinu 4-4-2. Stefán Logi stóð á milli stanganna. Kristinn var í vinstri bakveðri og Eggert í þeim hægtr. Gunnlaugur og Pétur stóðu vaktina í hjarta varnarinnar. Jónas Guðni var djúpur á miðju og Skúli Jón fyrir framan hann. Gunnar Örn og Óskar Örn hófu leikinn á köntunum og þeir Grétar og Guðjón voru í fremmstu víglínu.

Grétar, Gunnar og Guðjón léku allir með í kvöld
Halda áfram að lesa "3-1 sigur í fyrsta leik"
Á Reyðarfirði hafði ekki verið starfræktur meistarflokkur í fótbolta um árabil. Þessu stefndu nokkrir Reyðfirðingar að því að breyta, og stofnuðu utandeildarlið sem lék undir merkjum Súlnanna frá Stöðvafirði. Nú stendur til að skrá félagið til þátttöku í 3. deild, og er það ágætt.

Hvað mér þykir þó leiðinlegast við þetta er sú óskammfeilni þeirra að stela, já stela, nafni KR! Þeim kann að þykja það sniðugt að gefa félaginu nafnið Knattspyrnufélag Reyðarfjarðar, og leika undir skammstöfun þess, KR, en það er ég viss um að öðrum þyki svo ekki. Nú er ekki svo að ég geri rellu út af engu. Liðið verður skráð til keppni í deild og bikar, en leikur undir formerkjum liðs sem þar er til fyrir.
KR hefur leik á Reykjavíkurmótinu í kvöld er við mættum Leikni úr Breiðholti. Leikið verður í Egilshöll og hefst leikurinn kl. 21:00. Dómari leiksins er Eyjólfur M. Kristinsson og er aðgangur ókeypis. Um er að ræða fyrsta leik KR síðan Íslandsmóti lauk en KR liðið hefur ekki tekið neina æfingaleiki það sem af er undirbúningstímabili. Æfingar KR liðsins hafa að mestu einkennst af lyftingum og má telja knattspyrnuæfingarnar á fingrum annarrar handar. Það er ljóst að leikmenn okkar ættu að vera í ágætu líkamlegu standi en að sama skapi er leikformið lítið sem ekkert.
Halda áfram að lesa "Boltinn byrar að rúlla á ný"
Skotann David Winnie þekkja allir KR-ingar. Hann gekk til liðs við KR-liðið sumarið 1998 og átti eftir að reynast okkur frábærlega. Hann er einn allra besti erlendi leikmaður er leikið hefur hér á landi og spilaði stórt hlutverk er KR hampaði Íslandsmeistaratitlinum sumarið 1999 eftir 31 árs bíð. Winnie var ákafleag fastur fyrir, las leikinn vel, tapaði ekki skallaeinvígi og var mikill leiðtogi á velli. Er hann lagði skóna á hilluna réði hann sig sem aðstoðarþjálfara Péturs Péturssonar og tók alfarið við er Pétur sagði starfi sínu lausu. Winnie stjórnaði liðinu út tímabilið og bjargaði því frá falli. Eftir tímabilið skyldu leiðir og lítið hefur spurst til Winnie síðan. Við tókum Winnie tali og spurðum hann út í árin hjá KR og það sem tók við er hann hélt af landi brott. Það er ljóst að Winnie er mikill KR-ingur því eins og kemur fram í viðtalinu fylgist hann enn með stórveldinu og mun m.a. heimsækja landið næsta sumar.
Halda áfram að lesa "Viðtal við David Winnie!!"
