
| S | M | T | W | T | F | S |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « Okt | Des » | |||||
| 1 | 2 | 3 | ||||
| 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 |
| 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 |
| 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 |
| 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | |
Sumarið 1992 unnum við KR-ingar einhvern fræknasta sigur okkar á knattspyrnusviðinu er við vægast sagt slátruðum völsurum 9-1 í lokaleik Íslandsmótsins. Leikið var á Hlíðarernda og voru mörk KR liðsins hvert öðru fallegra.
Einn spjallverja okkar, Damus7, hefur ákveðið að deila leiknum með okkur og á spjallinu hefur hann sett slóð á leikinn. Ég fullyrði það að það verður enginn svikinn af því að horfa á mörkinn. Við þökkum honum fyrir.
Hér er slóðin:
http://www.damus7.com/Leikur.html
Fréttaflutningur hefur verið lítill undanfarna daga og verður svo út desembermánuð allan. Ástæða þess er sú að framundan eru jólapróf og því getum við ekki sinnt síðunni sem skyldi. Þó verða vitaskuld uppfærðar hér fréttir ef ríkar ástæður eru til þess, en eins og fyrr segir verður fréttaflutningur af skornum skammti.
Ég vil þó hvetja menn til að halda gangandi málefnanlegum umræðum hér á síðunni, enda ágætt að geta gluggað í þær svona á milli kafla í námsbókunum.
Jón Þorgímur Stefánsson sannaði það í dag, með því að ganga í raðir úrvalsdeildarliðs Fram, að mörgum reynist auðvelt að gefa digurbarkalegar yfirlýsingar án þess að eiga nokkra innistæðu fyrir þeim. Og af hverju er það, jú, því Jón Þorgrímur Stefánsson, vandaði KR-ingum ekki kveðjurnar, snemmsumars, eftir að hafa borið sigurorð af þeim, er hann lét þau ummæli falla, að sá væri reginmunur á liðunum tveimur að leikmenn HK léku með hjartanu á meðan, aftur á móti, KR-ingar léku með buddunni. Nú man ég píluna vitaskuld ekki orðrétta, en inntakið skilaði sér sannarlega og sat eftir. Já, KR-ingar væru fégírugir tækifærissinnar og einskonar táknmynd rotins kapítalisma í annars heilnæmu umhverfi íslenskra félagsliða í fótbolta. Og eins og hendi væri veifað, hafði Jón Þorgímur greint í sundur kjarnann frá hysminu og útlagt, hispurslaust, fyrir okkur KR-ingum, blákalda ástæðu þess að árangurinn léti á sér standa. Leikmenn KR léku ekki með hjartanu, heldur buddunni.
Umræða hefur verið um framtíð Bjarnólfs Lárussonar hjá okkur KR-ingum. Eftir því sem við komumst næst tjáði Logi Bjarnólfi að hann yrði ekki fyrsti maður í huga hans í nýju 4-4-2 leikkerfi liðsins.
Út úr þessu hafa blöðin lesið að Bjarnólfur sé á leið frá KR. Það hefur hins vegar ekkert fengist staðfest og fyrir vikið er Bjarnólfur ennþá leikmaður KR og á sem slíkur stuðning okkar vísan. Þess ber og að geta að Bjarnólfur sem er þekktur fyrir baráttu sína hyggst væntanlega ekki gefa eftir sæti sitt baráttulaust.
Það fór ekki fram hjá neinum er fylgist með íslenskum fótbolta er KR keypti miðjumanninn öfluga Jónas Guðna Sævarsson frá Keflvíkingum. Keflvíkingar gráta enn fyrirliða sinna en að sama skapi fögnum við KR-ingar þessum mikla liðsstyrk. Við sendum nokkrar spurningar á Jónas og svaraði hann okkur um hæl. Spurningarnar spanna allt á milli himins og jarðar og held ég að það sé óhætt að fullyrða að úr einu er farið í annað. Við höfum þó ákveðið að taka upp á þeim sið að spyrja nýliðina út í þekkingu þeirra á stórveldinu og er Jóna þar engin undantekning. Hann stóð sig allt í lagi en þó mun betur en Guðjón Baldvinsson er þarf að vinna heimavinnuna sína aðeins betur.
En með því að smella á meira má lesa viðtalið.

Jónas Guðni tekur sig vel út í KR búningnum!
Vegna stórleiks KR í Evrópukeppninni í í körfuknattleik í kvöld, viljum við koma því á framfæri að upphitun stuðningsmanna hefst kl 18:00 á svölunum út í KR. Þar verður m.a. boðið upp á léttar veitingar á vægu verði. Við hvetjum alla til þess að mæta í kvöld, vel merkta og styðja við bakið á liðinu,
PK.

Nú er komið að keppninni sem leikmenn KR í körfunni hafa beðið eftir síðan við unnum titilinn síðasta vor, því annað kvöld mætum við tyrkneska liðinu Banvit. Þeir eru með gamla NBA merði innanborðs sem hafa verið að æfa með liðum eins og Golden State Warriors og fleirum í sumar.
Halda áfram að lesa "Stórleikur gegn Banvit!! - eftir Halldór Gröndal"
Þau eru fjölbreytileg vandamálin sem við höfum þurft að glíma við vegna reksturs þessara síðu, og oft hafa þau reynst alveg ófyrirsjáanleg. Fyrir nokkrum mánuðum skrifaði ég grein í kjölfar þess að á umræðuvef okkar spunnust oft ómálefnalegar umræður með rætnum skotum og persónuníð, þar sem ég reyndi að fá menn til að láta af slíkum skrifum. Blessunarlega brugðust menn vel við tilmælunum og síðan hefur ekki borið jafmikið á hvimleiðum athugasemdum.
Undanfarið hefur þó spjallið leitað í nýjan farveg, en miður æskilegan. Þannig hefur mikið borið á því að menn notist við spjallborðið í óhóflegum mæli undir það sem ég hef gefið nafnið ,, msn-froðusnakk “, sem einkennist af einkaskopi manna í millum, sem í aragrúa tilfella hafa ekkert með umræðurnar, sem til er stofnað, að gera. Ég vil biðja lesendur síðunnar, og notendur spjallborðsins að leitast við að halda umræðum á öðrum nótum en þeim, þannig að spjallið verði sem blómlegast.
Í dag var dregið í töfluröð fyrir Landsbankadeildina fyrir næsta sumar. Við hefjum titilsókna á heima leik á móti Grindavík og lokaleik verður stórleikur KR og Vals að Hliðarenda. Spurning hvort við fáum samt ekki titililinn afhentan í 17. umferð á móti Þrótti enda skemmtilegra að veita honum viðtöku á heimavelli.
Annars er gaman að sjá nýju breytinguna þ.e. 22. umferðir. Þetta ætti að gera deildina mun skemmtilegri. Fleiri leikir og því ættu liðin að geta tekið meiri áhætti.
Það mætti kalla deildina Suðvesturdeildina því öll 12 liðin koma af suðvesturhorninu. Þá er eitt lið sem við höfum aldrei mætt áður en það eru nýliðar Fjölnis. Við heiðrum þá með nærveru okkar strax í annarri umferð er við sækjum þá heim. Spurning hvort það verði ekki fyrsti leikurinn við nýja stúku þeirra Fjölnismann, en þeir hyggja á framkvæmdir við leikvang sinn.
Annars má sjá töfluröðina hér að neðan.
Halda áfram að lesa "Tökum við á móti titlinum á Hlíðarenda?"
Jónas Guðni Sævarsson gekk í dag til liðs við KR og skrifaði undir þriggja ára samning. KR kaupir hann af Keflvíkingum og hafa þær sögur gengið að KR hafi greitt allt að 6 milljónir fyrir leikmanninn. Ef satt reynist er að öllum líkindum um að ræða dýrustu félagsskipti íslenskrar knattspyrnu. Aðspurður sagði Logi Ólafsson ekki vilja tjá sig um upphæðina en sagði jafnframt að KR ætti góða einstaklinga að út í þjóðfélaginu.
Jónas sem er miðjumaður sagði ástæðuna fyrir félagsskiptunum vera helsta að hann myndi vilja bæta sig sem knattspyrnumann og þyrfti á nýrri áskorun að halda. Hann sagðist ekki óttast þá staðreynd að fjölmargir hágæðaleikmenn er gengið hefðu til liðs við okkur hefðu koðnað niður heldur þvert í móti hlakkaði hann til að taka þátt í að koma liðinu á réttan stað, þ.e. toppinn.
Jónas sagðir jafnframt hlakka til að vinna með þjálfarateyminu en Rúnar Kristinsson mun hafa leikmanninn í séræfingum.
KR hafði betur við FH og Val er bæði buðu leikmanninum samning.
Það er ljóst að við KR-ingar höfum krækt okkur í öflugan knattspyrnumann og við bjóðum hann velkominn í Vesturbæinn.
Við munum birta viðtal við Jónas síðar í vikunni sem og myndir af fundinum.
-
Páll Kristjánsson
