
| S | M | T | W | T | F | S |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « Sep | Nóv » | |||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
| 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
| 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
| 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
| 28 | 29 | 30 | 31 | |||

Miðjumaðurinn sterki Ágúst Gylfason hefur yfirgefið KR eftir þriggja ára dvöl. Ágúst sem er 36 ára gamall ætlar þó ekki að leggja skónna á hilluna heldur ætlar að finna sér nýtt félag til þess að leika með næsta sumar.Ágúst gekk til liðs við KR fyrir sumarið 2004 og hefur á þessum þremur tímabilum leikið 44 leiki í deild og bikar og skorað í þeim 6 mörk. Ágúst hefur verið orðaður við fjölmargar þjálfarastöður það sem af er hausti og því má allt eins gera ráð fyrir því að verði spilandi þjálfari næsta sumar hjá einhverju liði í neðri deildunum.
Það má segja að það sé kaldhæðni örlaganna að þegar Ágúst gekk til liðs við KR þá gaf hann það út að hann væri kominn til þess að vinna titla. Engin titill hefur unnist á þessum árum og hann hættir um leiða og við ætlum að fara að vinna þá aftur.
Sumarið 2005 spilaði Ágúst feykilega vel og var að öðrum ólöstuðum einn albesti leikmaður KR liðsins. En síðustu tvö sumur hefur hann átt við margvíslega meiðsli að stríða sem hafa haldið honum utan við völlinn.
Við þökkum Ágústi kærlega fyrir hans framlag til klúbbsins og óskum honum velfarnaðar í því er hann tekur sér fyrir hendur.
Af nógu er að taka hvað varðar fréttir af stórveldinu en margt hefur gerst hjá félaginu undanfarna daga. Við stikklum hér á stóru yfir það helsta sem hefur gerst og slúðrum smávegis í bland við almenna afþreyingu.
Vigfús Arnar Jósefsson hefur fengið samningi sínum við KR rift og hyggst róa á önnur mið. Vigfús gekk til liðs við KR á yngra ári í þriðja flokki og hefur leikið með KR síðan. Þó var hann tvívegis lánaður til uppeldisfélags síns Leikni hluta úr sumri.
Vigfús átti við meiðsli að stríða framan af sumri og gekk brösulega að festa sig í sessi í byrjarliðnu. Hann var fastamaður í liðinu í fyrra og leysi þá stöðu vinstri bakvarðar af miklum sóma. Það er þó ekki sú staða er hann er vanur að leika en Vigfús lék ýmist stöðu miðjumanns eða vinstri kantmanns upp yngri flokkana.
Það er alls óljóst hvar Vigfús muni spila næsta sumar en lið eins og Leiknir og Víkingur hafa verið orðuð við hann. Þó er líklegt að hann muni reyna fyrir sér í efstu deild. Við á KRreykjavik þökkum Fúsa kærlega fyrir árin hans hjá KR og óskum honum vel farnaðar hvort sem er hjá nýju félagi eða landsliði Íslands í counter-strike.
PK
Bæjarstjóri Vestmannaeyjar sendir Margréti Láru opið bréf og hughreystir hana vegna þess óréttlætis sem hún hefur orðið fyrir. Nei hlífið mér við öllu meiri dramatík. Það vantar bara að fiðlurnar séu dregnar fram og albanskur
grátkvennakór sé ráðinn til starfa.
Einn helsti stuðningsmaður FH-inga hitti loks (eftir margra ára tilraunir) naglann á höfuðið þegar hann segir:
“Hins vegar finnst mér að stuðningsmannaverðlaun eigi að fara til stuðningsmanna í heild sinni, ekki bara einhvers hóps sem styður liðin. En þá reyndar .. . . ættum við FH ingar engan séns, því meirihluti okkar er náttúrulega sönghaltur þegar komið er á völlinn.”
Loks sem þeir FH-ingar mæla eitthvað af viti!
Silfurrefurinn aldrei skarpari!
Skv. áreiðanlegum heimildum okkar hefur Stefán Logi Magnússon skrifað undir nýjan 4 ára samning við KR. Stefán sem átti stórgott tímabil með okkur KR-ingum í sumar var m.a. valinn leikmaður ársins af KRreykjavik.is.
Þetta eru frábærar fréttir en koma kannski ekki á óvart þar sem Stefán Logi var búinn að gefa það út að ekkert annað lið á Ísland kæmi til greina. Það er samt spurning hvort Stefán klári árin fjögur því það er ljóst að fjölmörg lið út í hinum stóra heimi gætu haft not fyrir krafta hans.
Þá eiga sér stað þreyfingar á leikmannamarkaðinum og nokkrir efnilegir leikmenn hafa verið til skoðuna hjá KR. Það er vonandi að málin muni skýrast á allra næstu dögum en við leyfum lesendum velta fyrir sér hugsanlegum möguleikum. Við munum skýra frá nýjustu félagsskiptunum um leið og þau gerast.
Páll Kristjánsson
Sigmundur Kristjánsson, kantmaður okkar KR-inga, hefur ákveðið að ganga til liðs við uppeldisfélag sitt Þrótt í Reykjavik og skrifaði undir samning við þá rauðhvítu þess efnis í hádeginu í dag. (smellið á meira)

Sigmundur í leik gegn Fram nú í sumar.
Halda áfram að lesa "Sigmundur Kristjánsson yfirgefur KR"
Við á KRreykjavik.is óskum Hólmfríði Magnúsdóttur til hamingju með valið sem besti leikmaður Íslandsmótsins 2007. Hólmfríður var valin og á þann titil innilega skilinn. Leikmenn annarra liða hafa veitt henni þessa vegsemd vegna þess að þeir telja afrek hennar í sumar verðskulda viðurkenningu.

Halda áfram að lesa "Hólmfríður Magnúsdóttir var valin best og við FÖGNUM ÞVÍ!"
Nú fyrr í kvöld voru KR-ingar valdir LANGBESTU STUÐNINGSMENN ÍSLANDSSÖGUNNAR á lokahófi KSÍ.
Ég ætla að leyfa mér að vitna í orð Cantona á spjallinu “Þarf enga helv… nefnd til að segja mér að við séum bestir!!!!!!”
En það er hins vegar alltaf ljúft og skemmtilegt að taka við viðurkenningu fyrir vel unninn árangur. Til hamingju stuðningsmenn KR og við gerum enn betur næsta sumar!

Klárlega númer 1
