
| S | M | T | W | T | F | S |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « Júl | Sep » | |||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | |||
| 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | |
Veistu fyrir hvað KR stendur kæri leikmaður, þjálfari og stjórnarmaður? Veistu hvaða þýðingu það hefur að vera KR-ingur? Veistu hvaða máli KR skiptir fyrir okkur í Vesturbæ Reykjavíkur? Okkur sem höfum alist upp í Vesturbænum, æft í yngri flokkum félagsins og síðan mætt á leiki liðsins til að styðja það í sætu og í súru.

VIÐ ERUM KR! STUÐNINGSMENN KR!
Halda áfram að lesa "Veistu fyrir hvað KR stendur?"
Sælir félagar
Ég á sæti í stjórn KR Sport og kom að þeirri ákvörðun að gefa Gumma P leyfi til að fara á leigusamningi til Sandefjord í Norsku Úrvaldsdeildinni áður en leikmannaskiptaglugginn lokar 1. september. Það er klárlega ekki vilji okkar að láta Gumma frá okkur á þessum tímapunkti og ákvörðunin ekki auðveld. Það eru ekki fjárhagsleg sjónarmið sem ráða ákvörðuninni þó að við hefðum aldrei svo mikið sem skoðað málið ef leiguverðið hefði ekki verið mjög gott. Á það ber hins vegar að líta að við teljum okkur ekki fært að hindra möguleika hans á að komast í atvinnumennsku. Sandefjord leitar logandi ljósi að framherja (”target center”) eins og honum og það er ljóst að þetta tækifæri mun ekki standa honum til boða eftir tímabilið. Þeir sáu til hans í Evrópuleiknum á móti Hacken úti og telja að hann henti vel þeirra leikstíl fyrir lokaátökin í norsku Úrvalsdeildinni. Það er spurning hvort og þá hvenær hann fær annað eins tækifæri til að reyna við atvinnumennskuna. Samningurinn er mjög góður fyrir Gumma sjálfan og mun hann flytja út með alla fjölskylduna.
Það er stefna KR að jafnframt því að vinna titla á Íslandi viljum við undirbúa okkar knattspyrnufólk sem best fyrir atvinnumennsku í knattspyrnu og er nýstofnuð Akademía KR þáttur í því. Gummi er fyrsti leikmaðurinn úr Akademíunni sem fer í atvinnumennsku en ásamt honum hafa nokkrir þegar skilað sér upp í meistaraflokkinn, s.s Mummi (Guðmundur Reynir), Eggert, Skúli Jón og Ásgeir Örn. Einnig hafa fjölmargir aðrir leikmenn Akademíunnar verið valdir í yngri landslið Íslands á síðustu mánuðum.
Það væri því í andstöðu við okkar eigin markmið að leyfa Gumma ekki að elta þetta tækifæri, þó vissulega sé tímasetningin afleit.
Það verða 11 leikmenn í byrjunarliðinu í næstu leikjum og það er samdóma álit stjórnar og þjálfara að liðið geti klárað sig af þeim verkefnum sem framundan eru þó að Gummi fái að elta drauminn um að gerast atvinnumaður í knattspyrnu.
Við óskum honum alls hins besta og tökum fagnandi á móti honum ef hann kýs að snúa síðar heim í KR.
Áfram KR,
Baldur
Annað kvöld mætir topplið fh-inga ofjörlum sínum úr Skjólinu, en KR-ingar berjast, líkt og alþjóð veit, fyrir tilvist sinni í úrvalsdeildinni. Sækjum við þrjú stig í Hafnarfjörðinn eigum við góða möguleika á því að lyfta okkur upp fyrir líffræðilega sjálfskipað botnlið Fram, en þeir eiga Keflvíkinga á sama tíma. Þar eð ég er annálaður bjartsýnismaður hef ég fulla trú á því að það hafist.
Halda áfram að lesa "FH - KR í dag kl. 18:00"
Á okkur KR-inga hefur verið skorað. Nýstofnað stuðningsmannagengi landsliðs Íslands í knattspynu hefur leitað til okkar sem og annarra stuðningsveita hér á landi. Ætlunin er að mynda öfluga sveit stuðningsmanna og lyfta stuðningi við landsliði upp á hærra plan. Fyrir leik Íslands og kanada kom hópurinn saman og tókst þeim vel til. En betur má ef duga skal og nú eiga allir að leggjast á eitt.
Þeir sem hafa áhuga á að ganga til liðs við hópinn og sitja í innsta kjarna hans á landsleiknum geta keypt miða á Ölveri á morgun, fimmtudag, á milli 16:00 og 19:00. Miðinn kostar 1.500 kr.
Ég tek undir með þeim er standa að klúbbnum og hvet alla KR-inga og þá sérstaklega þá sem í Miðjunni standa til þess að verða vi áskoruninni. Ég mun að minnsta kosti gera það.
Páll Kristjánsson
Guðmundur Pétursson sóknarmaður okkar KR-inga hefur skrifað undir tveggja mánaða samning við norska úrvalsdeildarfélagið Sandefjord. Norska liðið leitar nú logandi ljósi allra ráða til þess að bjarga sér frá falli en það er sem stendur í neðsta sæti norksu úrvalsdeildarinnar.
Guðmundur sem gekk í raðir KR á miðju sumri í fyrra frá ÍR hefur svo sannarlega sýnt það að hann kann að skora mörkin og það á réttum tíma. Samningur Guðmundar er eins og áður segir til tveggja mánaða en standi drengurinn sig á samningstímanum er líklegt að félagið gangi frá kaupum á honum. Guðmundur verður í leikmannahópi KR á morgun er við sækjum FH-inga heim en mun að leik loknum stökkva upp í flugvél og halda á vit ævintýranna.
Við á KRreykjavík óskum Guðmundi velfarnaðar og þökkum honum fyrir hans framlag til félagsins.
Páll Kristjánsson
Enn einu sinni kom Guðmundur Pétursson okkur KR-ingum til hjálpar í gærkvöldi í stórleik 14. umferðar. Guðmundur jafnaði leikinn á lokaandarstökum leiksins en það er ljóst að hann kann ákaflega vel við sig lokamínútum leikja.
Leikur KR og ÍA fór nokkuð fjörlega af stað og það voru gestirnir sem voru aðgangsharðari upp við mark okkar fyrstu mínútur leiksins. Björn Bergmann sóknarmaður skagamanna átti fyrsta færi leiksins er hann slapp inn fyrir vörn okkar, en Stefán Logi sá við honum.
Halda áfram að lesa "KR náði einungis jafntefli og því aftur komið á botninn"
Stórleikur 14. umferðar verður án efa á KR-vellinum í kvöld þegar skagamenn koma í heimsókn í Frostaskjólið. Leikurinn hefst kl. 18:00 og hefst upphitun KR-klúbbsins kl. 16:45 inn í félagsheimili.
Skagamenn eru í þriðja sæti deildarinnar með 21 stig en við KR-ingar sitjum í því níunda með 10 stig. Fyrri leik liðanna lauk með 3-1 sigri skagamanna þar sem Björgólfur Takefusa skoraði mark okkar manna á lokamínútum leiksins.
Halda áfram að lesa "KRÍA í kvöld kl 18:00 á KR-vellinum"
Við spyrjum ykkur nú spurninga og við hvetjum sem flesta til þess að spreyta sig. Endilega setjið svörin hér í kommentakerfinu. Engin verðlaun eru í boði að þessu sinni.
1. Hvaða ár og gegn hverjum lék David Winnie sinn fyrsta leik með KR?
2. Úrvalsdeildin í ár heitir Landsbankadeildin eins og allir vita. En hún hefur borið önnur nöfn eða sjö nöfn allt frá árinu 1992, Við spyrjum ykkur því, hvaða nöfn efsta deild karla hefur borið frá því að KSÍ fór þá að leið að fá styrkaraðila að deildinni?
3. Hver er yngsti leikmaður er leikið hefur með KR í Evrópuleik. Hvað var hann gamall, hver var andstæðingurinn og með hvaða liði leikur hann í dag?
4. Hvaða leikur á KR velli hefur dregið að flesta áhorfendur? Við spyrjum um andstæðinginn og ártal.
Stofnaður hefur verið nýr stuðningsmannahópur íslenska landsliðsins í knattspyrnu og er ætlunin að lyfta stuðningi við íslenska landsliðið í knattspyrnu upp á hærra plan. Oft hafa verið gerðar tilraunir til þess en nú á að hrinda þessu í framkvæmd. Þeir sem standa að stofnun klúbbsins leggja áherslu á að um er að ræða stuðning við landsliðið og menn leggja til hliðar stuðning við félagslið sem og ríg við önnur lið.
Fyrir landsleik Íslands og Kananda er hefst kl. 18:05 í dag er ætlunin að hittast á Ölveri og hefst upphitunin þar kl. 16:00. Þar verður boðið upp á veigar á vægu verði sem og miða á völlinn á 1.000 kr. Eins hefur KSÍ gefið hinunm nýstofnaða klúbbi fjölda landsliðstreyja sem dreifa á til meðlima klúbbsins.
Hafi menn áhuga á að taka þátt í þessu þá eru þeir velkomnir á Ölver en klúbburinn er opinn öllum.
PK
(Því má við bæta að við komum hvergi nærri stofnun þessa klúbbs og því getum við ekki svarað nánar fyrir starf klúbbsins)
Nú eftir tæpar 50 mínútur hefst æfingaleikur KR og Gróttu á KR-vellinum. Þessi leikur kom skyndilega upp og því ekki við okkur að sakast að ekki er búið að tilkynna hann fyrr.
Logi mætir þar aðstoðarmanni sínum úr KF-Nörd, Ásmundi Haraldssyni. Það verður vösk sveit KR-inga og fyrrum KR-inga sem leikur á vellinum og því ástæða til að hvetja þá alla sem ekki mæta í Kópavoginn á bikarleik stelpnanna að mæta í Frostaskjóli í rigningarsuddanum og hvetja strákana áfram.
