
| S | M | T | W | T | F | S |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « Jan | ||||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
| 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
| 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
| 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
| 28 | ||||||
Hér eru nokkrar örfréttir af því sem er að gerast hjá KR þessa dagana.
-Hjörvar Ólafsson-
Viktor Bjarki Arnarsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við stórveldið. Viktor er KR-ingum að góðu kunnur, en hann spilaði með liðinu árið 2008 og átti fínasta tímabil.
Viktor kom þá á láni frá Lilleström, en á síðasta tímabili lék hann með Nybergsund. Viktor var samningslaus um áramótin og bauðst að semja aftur við Nybergsund, en ákvað að koma heim og ganga til liðs við KR.
Viktor fær það verðuga verkefni að leysa Gumma Ben af hólmi í holunni. Fyrir þá leikmenn sem ekki þekkja hvað felst í að spila í holunni, þá þýðir það í stuttu máli að binda saman miðju og sókn og vera arkitekt í sóknaruppbyggingu liðsins. Ég er þess fullviss að Viktor Bjarki mun valda þessu verkefni með sóma og bjóðum við hann velkominn aftur í Vesturbæinn.
Við munum svo reyna að ná í skottið á Viktori á næstu dögum og spyrja hann aðeins út í lífið og tilveruna.

-Hjörvar Ólafsson-
KR-ingar sigruðu Þróttara í gær með sex mörkum gegn einu í þriðja leik Reykjaívkurmótsins. KR-ingar eru nú efstir í riðlinum sínum með 7 stig.
Það voru Þróttarar sem komust yfir í byrjun leiksins. KR-ingar voru hins vegar ekki lengi að jafna leikinn og var þar að verki Baldur sem skallaði boltann í opið markið.
Undir lok fyrri hálfleiks skoraði Dofri Snorrason svo sitt fyrsta mark fyrir meistaraflokk KR með lúmsku skoti neðst í markhornið.
Í seinni hálfleik opnuðust svo allar flóðgátir. Ingólfur setti tvö mörk strax í byrjun hálfleiksins annað með viðstöðulausu skoti og hitt úr víti.
Baldur skoraði svo sitt annað mark áður en Gunni Kri skoraði sjötta mark KR-inga með skoti af stuttu færi.
Það er lítið hægt að setja út á sóknarleik liðsins í þessum leik og síðustu leikjum, en það verður að viðurkennast að það er eilítið áhyggjuefni hvað varnarleikurinn er óöruggur á köflum.
Það verður að segjast eins og er að það virðist vanta ansi mikið upp á leikæfinguna hjá erlendu leikmönnunum okkar. En það er langt í mót og óþarfi að missa svefn, þetta hlýtur að mjakast hægt og rólega í rétta átt þegar leikjunum sem þeir spila fjölgar.
Lið KR: Einar Andri Einarsson-Skúli Jón Friðgeirsson(Eggert Rafn Einarsson), Grétar Sigfinnur Sigurðarson, Mark Rutgers, Dofri Snorrason-Gunnar Örn Jónsson(Davíð Birgisson), Baldur Sigurðsson(Egill Jónsson), Bjarni Guðjónsson, Óskar Örn Hauksson- Ingólfur Sigurðsson(Guðmundur Pétursson) Gunnar Kristjánsson. Þórður Ingason var í leikbanni eftir að hafa fengið rautt spjald á móti Víkingum í síðasta leik og Björgólfur er veikur.
Næsti leikur í Reykjavíkurmótinu er gegn vali laugardaginn 6.febrúar.

Baldur setti tvö Dofi skoraði sitt Ingó setti tvö. Gunni skoraði
mörk í leiknum. sitt fyrsta mark síðasta mark
fyrir mfl.KR. KR í leiknum.
-Hjörvar Ólafsson-
KR leikur sinn þriðja leik í Reykjavíkurmótinu í kvöld og eru andstæðingarnir Þróttarar. KR er með fjögur stig eftir að hafa unnið ÍR og gert jafntefli við Víkinga.
Leikurinn hefst klukkan 19.10 og fer fram í Egilshöll í Grafarvogi.
Einu forföllin sem ég hef heyrt um eru þau að Þórður Ingason er í leikbanni, eftir að hafa fengið rautt spjald í siðasta leik.
Það er um að gera að drífa sig í Grafarvoginn og sjá alvöru íþrótt með varanlegum reglum, eftir að hafa horft á Ísland klára Noreg í handkasti.

Vonandi að Skúla gangi jafn vel að fífla Þróttara í kvöld.
-Hjörvar Ólafsson-
Hefur einhver horft á Futsal? Ég ætla að leyfa mér að slá því fram að Futsal sé leiðinlegasta útgáfa knattspyrnu sem hægt er að spila. Of margar reglur, of lítið mörk og alltof mikið um stopp í leiknum. Futsal er á margan hátt eins og amerískur fótbolti. Stopp, mikill hraði, stopp, mikill hraði, stopp. Ég fyrir mitt leyti segi það að ég sakna íslensks innanhúsfótbolta eins og hann var spilaður hér áður en þetta skrípi íþróttarinnar dúkkaði upp.
Halda áfram að lesa "Ég vil fá íslenska innanhúsfótboltann aftur"
Líkt og við greindum frá í síðustu viku þá héldu þeir Jón Kári, Eggert og Einar Bjarni út til Noregs í síðustu viku og æfðu með norska c-deildar liðinu Flöy. Þeim gekk vel á æfingum og vonast þeir til þess að komast að hjá norska liðinu sem leitar nú leiða til þess að styrkja leikmannahóp sinn. Hvort frekara framhald verði á noregsævintýri þeirra á svo eftir að koma í ljós, en ef af því verður verða þeir lánaðir til norska liðsins.

Leik KR og Víkinga í annarri umferð Reykjavíkurmótsins lyktaði með 3-3 jafntefli. Leikurinn var nokkuð fjörlegur en á tímabili var útlitið ansi svart fyrir okkar menn. En góð barátta skilaði að lokum stigi og það er margt jákvætt sem má taka út úr þessum leik.
Logi gerði tvær breytingu á liðinu frá því í leiknum gegn ÍR. Björgólfur leysti Ingólf af hólmi í sókninni og þá kom Bjarni inn í stað Dofra.
Liðið var skipað eftirtöldum. Þórður Ingason stóð í markinu í sínum fyrsta leik. Öftustu fjórir voru Skúli, Grétar, Mark og Diogo. Bjarni og Baldur voru á miðri miðjunni og þeir Óskar og Gunnar Örn á kantinum. Í fremstu víglínu voru svo Björgólfur og Gunnar Kristjáns.
Við KR-ingar mætum Víkingum í annarri umferð Reykjavíkurmótsins í dag kl. 17:00. Leikið verður í Egilshöll. Bæði lið sigruðu sína fyrstu leiki, við sigruðum ÍR-inga en Víkingar unnu góðan sigur á völsurum.
KR og Fjölnir hafa komist að samkomulagi um að markvörðurinn Þórður Ingason verði lánaður til KR-inga út leiktíðina. Ekkert ætti að vera því til fyrirstöðu að hann verði í markinu í næsta leik á Reyjavíkurmótinu, sem er á móti Víkingum á laugardaginn.
Þórður hefur spilað með yngri landsliðum Íslands, en þar barðist hann um markmannsstöðuna við Atla Jónasson.
Við bjóðum Þórð Ingason velkominn í stórveldið.

-Hjörvar Ólafsson-
Fjölmargir KR-ingar eru á faraldsfæti þessa dagana og þar á meðal eru þeir Guðmundur Pétursson og Magnús Lúðvíksson. Þeir eru til reynslu hjá norska liðinu Hödd og hafa þeir vakið nokkra athygli forráðarmanna félagsins. Báðir léku þeir æfingaleik gegn Eid sem Hödd sigraði 4-0. Skemmst er frá því að segja að þeir skoruðu sitt markið hvor. Við óskum þeim góðs gengis.

