
| S | M | T | W | T | F | S |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « Ágú | ||||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | |||
| 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | ||
Ein lauflétt föstudagsgetraun. Vinsamlegast notið ekki hjálpartæki veraldarvefsins. Svörin í athugasemdakerfið. Gjörið þið svo vel.
Halda áfram að lesa "Föstudagsgetraun"
Hendi hér inn nokkrum spurningum sem saman mynda mánudagsgetraun. Verðlaunin eru vellíðan í vinnunni og montréttur sem gáfaðasti KR-ingurinn þar til næsta getraun lítur dagsins ljós. Gaman væri ef menn lágmörkuðu hjálp sína við þau hjálpartæki sem veraldarvefurinn býður upp á og notuðust eingöngu við gamla góða heilabúið. Svör skulu berast í athugasemdakerfið, gjörið þið svo vel.
Hún er sennilega í þyngri kantinum í þetta skipti en við látum hana engu að síður flakka. Við spyrjum um hvaða ár þessi leikur átti sér, hvaða KR-ingar léku með Blikum á þessum tíma og síðan en ekki síst hverjar voru lokatölur leiksins. Til að auka á erfiðleikana í þessu þá bætum við inn spurningunni - nafn hvaða leikmanns hefur verið þurrkað út.
Síðastliðinn miðvikudag stóð KR-klúbburinn fyrir Pub quizi á Rauða ljóninu. Spurningarnar voru 30 talsins og sigruðu þeir Óli Brynjar og Pétur Blöndal. Fyrir þá sem vilja spreyta sig á spurningunum þá verða þær hér birtar. Rétt svör verða svo birt í fyrramálið. Smellið á meira.
Fyrst við erum komin með byrjunarliðið frá bikarúrslitaleiknum árið 1994 á hreint, er rökrétt framhald að spyrja ykkur KR-ingar góðir, hvernig byrjunarliðið var í bikarúrslitaleiknum árið 1995.
Liðið hafði breyst eitthvað milli ára, eins og gengur og gerist.
Ég ætla einnig að biðja um markaskorara og hver það var sem var rekinn af velli í fyrri hálfleik.

Guðjón Þórðarson var þjálfari KR á þessu tímabili.
Hjörvar Ólafsson.
Þeir KR-ingar sem voru komnir til vits og ára muna vel eftir bikarúrslitaleknum árið 1994. KR vann þann þá Grindvíkinga nokkuð örugglega og urðu lokatölur 2-0.
En nú spyr ég ykkur hvort að þið munið hvernig byrjunarliðið var í þessum leik. Ég bið ykkur um að nota minnið og sleppa öllum hjálpartækjum.

Kristinn Jónsson var formaður á þessum tíma, á myndinni með honum er Ólafur Lárusson.
Hjörvar Ólafsson.
Hér kemur lauflétt föstudagsgetraun. Svara ber í athugasemdakerfið og gildir fyrsta rétta svar sem kemur. Með því að ýta á meira sjáið þið spurningarnar.
Sigurvegari keppninnar hlýtur eintak af nýútgefinni brandarabók Loga Ólafssonar, auk þess sem Logi mun kynna honum bókina á KR ballinu á morgun.
Á meðfylgjandi mynd má sjá Loga Ólafsson kynna bókina á velheppnuðum blaðamannafundi í vikunni.
Jæja þá hendi ég hér inni einni laufléttri og stuttri föstudagsgetraun. Svör skulu einungis koma í athugasemdakerfið og gildir fyrstur kemur fyrstur fær kerfið. Sem sagt sá sem er fyrri til að setja inn rétt svar fær það stig.
Sigurvegarinn hlýtur að launum einn kaldan fyrir næsta heimaleik KR. Með því að ýta á meira fáið þið upp spurningarnar.
Í dag kl. 18:00 tökum við KR-ingar á móti eyjamönnum í frestuðum leik í Pepsideildinni, en leikurinn var færður til á sínum tíma vegna góðs árangurs okkar KR-inga í Evrópudeildinni. Vegna birtuskilyrða er leikurinn settur á kl. 18:00 en KR-klúbburinn mun grilla borgara frá kl. 17:00 í félagsheimilinu.Fyrir leikinn sitjum við KR-ingar í öðru sæti deildarinnar með 33 stig, jafnmörg og Fylkismenn. Eyjamenn eru hins vegar í 10. sæti, en þó 7 stigum frá fallsæti. Staða þeirra í deildinni er því nokkurn vegin tryggð, þökk sé arfaslakri frammistöðu Þróttara og Fjölnismanna. Þá eiga eyjamenn tvo leiki til góða á fallliðin.

Þá er um að gera henda í smá sprell á föstudegi! Þetta er ekkert voðalega flókin getraun. Það eina sem við viljum vita frá þér lesandi góður, hverjir eru leikmennirnir?
