
| S | M | T | W | T | F | S |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « Ágú | ||||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | |||
| 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | ||
KR-klúbburinn stendur fyrir hópferð til Eyja á leik ÍBV og KR sunnudaginn 12.september. Verðið fyrir KR-klúbbsmeðlimi er 3500 kr. og fyrir aðra 4500 kr.
Farið verður með rútu frá KR klukkan 14.00, með Herjólfi 16.30, leikurinn er 18.00, með Herjólfi til baka klukkan 21.00 og rúta til baka um 21.30.
Innifalið í verðinu er því rútuferðirnar, miði í Herjólf fram og til baka og miði á völlinn.
Það eru 50 sæti í boði og skráning fer annars vegar fram á spjallinu og þá hér, http://krreykjavik.is/?page_id=5&forumaction=showposts&forum=1&thread=2902&start=0 eða með því að senda Palla póst á pall@krst.is.
Fyrstir koma fyrstir fá.
-Hjörvar Ólafsson-
Guðmundur Reynir Gunnarsson og Skúli Jón Friðgeirsson eru í U-21 árs landsliðshópnum sem spilar lokaleik sinn í undankeppni EM við Tékka 7.september.
Leikurinn er afar mikilvægur því sigur í leiknum getur tryggt liðinu efsta sæti í riðlinum fari það svo að Þjóðverjar vinni Tékka í lokaleik þeirra í riðlinum.
KRreykjavik.is óskar Mumma og Skúla sem og liðinu öllu góðs gengis í leiknum.


-Hjörvar Ólafsson-
KR tapaði í gær fyrir FH með einu marki gegn engu. Það er afar sárt og svekkjandi að fá ekkert út úr leiknum, sérstaklega í ljósi þeirrar vinnusemi og sóknartilburða sem liði sýndi. Oft fer maður af vellinum og bolsótast út í baráttuleysi eða lítilla gæða í leik KR liðsins. Sá KR-ingur sem gerði það í gær er ekki sanngjarn, þar sem að KR liðið gaf allt í leikinn og gerði allt sem í þeirra valdi stóð til þess að sigra leikinn.

Egill Jónsson var valinn maður leiksins af KR-klúbbnum eftir leik KR og FH er fram fór í gær. Egill stýrði miðjuspili okkar KR-inga eins og herforingu í sínum fyrsta leik í byrjunarliði. Á myndinni tekur hann við verðlaunum úr hendi Sigga Magg.
Í kvöld eigast KR og FH við á Kaplaskjólsveginum og hefst leikurinn klukkan 18.00. Eins og vanalega hefur KR-klúbburinn hamborgarasölu sína klukkutíma fyrir leik eða klukkan 17.00 og KR-útvarpið byrjar upphitun sína á svipuðum tíma.

KR sigraði Fylki í gær með fjórum mörkum gegn einu. Mörkin í leiknum voru hvert öðru glæsilegra og spilamenskan endurspeglaði það sjálfstraust sem er í liðinu þessa dagana. Guðjón Baldvinsson skoraði tvö mörk og Kjartan Henry og Guðmundur Reynir sitt markið hvor.
KR-ingar halda í Árbæinn í kvöld og mæta Fylkismönnum. Leikurinn hefst klukkan 18.00. Sigur í kvöld gerir það að verkum að við fáum þrjá úrslitaleiki við liðin sem eru fyrir ofan okkur eins og staðan er núna í næstu þremur umferðum.
Mynd:Guðmundur Lúðvíksson.
KR vann í kvöld sinn fimmta deildarsigur í röð þegar þeir lögðu Valsmenn með fjórum mörgkum gegn einu. Öll mörk leiksins komu í seinni hálfleik, en fyrri hálfleikur hafði verið frekar braðdaufur.
Óskar skoraði tvö og lagði upp tvö í leiknum.
Forráðamenn KR hafa nú staðfest þær fregnir sem kvisast höfðu út um að Jordao Diogo væri á leið frá KR liðinu á lánssamningi.
Diogo er á leið til gríska liðsins Panserraikos sem tryggði sér sæti í efstu deildinni á síðasta tímabili. Gríska deildin hefst um næstu helgi og heldur Diogo út á morgun. Sigurleikurinn í kvöld gegn Val var því síðasti leikur hans fyrir KR í bili.
Lánssamningurinn gildir til 1. maí 2011, en Diogo er samningsbundinn KR til 1. október 2012.
Diogo kom til KR árið 2008 og var þá helst talað um afrek hans í Futsal knattspyrnu. Það var þó fljótlega ljóst að hann gæti einnig leikið knattspyrnu utandyra. Diogo varð bikarmeistari með KR árið 2008 og átti frábært tímabil með KR í fyrra.
KRreykjavik.is óskar Diogo alls hins besta í Grikklandi.



-Hjörvar Ólafsson-
