
| S | M | T | W | T | F | S |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « Ágú | ||||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | |||
| 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | ||
Þar sem að forráðamenn Gautaborgar virðast ekki hafa áhuga á að láta Theodór Elmar Bjarnason spila inni á miðri miðjunni, heldur vilja frekar láta hann hanga á kantinum, ætla ég að henda hér inn myndbroti af Emma með KR í úrslitaleik Shellmótsins. Þessar myndir sýna að honum líður best þegar hann spilar á miðsvæðinu. Ef þetta sannar ekki mál hans og ágæti hans sem miðvallarleikmaður þá veit ég ekki hvað.
Síðan hendi ég inn gömlum og góðum minningum úr KRía leik.
Að lokum eru þarna svipmyndir frá heimaleikjum KR gegn Grevenmacher og Everton.
Það er Þórhallur Ólafsson þjálfari 2.flokks karla hjá KR sem vippaði þessum myndböndum á netið.
Myndbrotin má sjá hér.
http://www.youtube.com/watch?v=VjNPrTclcqg
http://www.youtube.com/watch?v=TSCc3Dp_PAc
http://www.youtube.com/watch?v=gYYwqJ84Z2Y&NR=1
http://www.youtube.com/watch?v=VuLBG_SbmNM&feature=related
Þar sem að jólin eru um garð gengin og við taka að margra mati erfiðustu mánuðir ársins, ætlum við á KRreykjavik.is að ylja KR-ingum um hjartarætur með því að vísa þeim á tengla á myndbandavefnum youtube.com.
Þessi myndbönd sem Þórhallur Ólafsson hefur haft veg og vanda af að setja inn á síðuna geyma gamlar og góðar minningar af sigursælum stundum KR-liðsins.
Fyrstu myndböndin sem við ætlum að benda fólki á hafa að geyma umfjallanir um langþráðan bikartitil okkar sem vannst árið 1994. Annars vegar um undanúrslitaleikinn við Þór sem vannst á sannfærandi hátt og hins vegar sjálfan úrslitaleikinn. Þar sigruðu KR-ingar Grindvíkinga með tveimur mörkum Rúnars Kristinssonar og Einars Þórs Daníelssonar gegn engu marki Grindjána.
Með því að smella á hlekkina undir myndunum af Einari og Rúnari getið þið séð myndböndin.


Undanúrslitaleikurinn við Þór:
http://www.youtube.com/watch?v=Jd1-utNfH6c
Úrslitaleikurinn við Grindavík:
http://www.youtube.com/watch?v=hBXXWArF-x4
http://www.youtube.com/watch?v=ao7XVgdo6ro
Njótið vel.
