
| S | M | T | W | T | F | S |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « Ágú | ||||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | |||
| 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | ||
Til þess að svara þeim háværu gagnrýnisröddum á störf mín sem ritstjóri sem fram hafa komið, hér á síðunni og annars staðar hef ég ákveðið að byrja að setja hér inn tvífara. Þið megið endilega senda á mig uppástungur á krreykjavik@hotmail.com ef þið teljið ykkur vera með tvífara. Ákall mitt um tvífara hefur strax borið árangur. Hérna er fyrst ein sem lengi hefur verið í kollinum á mér. Með því að ýta á halda áfram að lesa tvífarar getið þið séð hina sem er töluvert betri að mínu mati.


Tihomir Drobnjak og Javier Mascherano.
Halda áfram að lesa "Tvífarar"
Þá hafa flokkarnir svarað spurningum okkar. Staðan er þessi:
Sjálfstæðisflokkur svaraði öllum spurningum.
Framsóknarflokkur svaraði öllum spurningum.
Vinstri grænir svöruðu öllum spurningum sem sendar voru í viðhengi en misstu af því að svara þeirri síðustu.
Samfylking svaraði 10 spurningum af 13.
H-listinn, listi óháðra og Ólafs F. Magnússonar svaraði engri spurningu.
Besti flokkurinn svaraði engri spurningu.
Reykjavíkurframboðið svaraði engri spurningu.
Frjálslyndi flokkurinn
Þess ber þó að halda til haga að Reykjavíkurframboðið og Frjálslyndi flokkurinn fengu ekki spurningar sendar fyrr en í fyrradag.
Við hvetjum KR-inga alla og aðra Vesturbæinga til þess að lesa svör flokkanna og mynda sér skoðanir á þeim.
Muna svo að kjósa á morgun.
Við höldum áfram að spyrja borgarfulltrúa okkar.
Hvort þeir hafi gefist upp veit ég ekki en það er engu að síður staðreynd að aðeins einn flokkur, Samfylkingin svarar næstu spurningu.
Hún hljóðar svo:
“Það er staðreynd að börn úr Vesturbæjarskóla og Landakotsskóla skila sér illa inn í íþróttastarf KR. Margir rekja þá staðreynd til þess að hættulegt sé að fara yfir Hringbrautina. Í langan tíma hefur verið rætt um gerð undirganga en ekkert bólar á þeim. Hvenær getum við vænst þess að hin langþráðu undirgöng verði að veruleika?
Við á KRreykjavik.is óskum landsmönnum öllum (líka Valsmönnunum tveimur) gleðilegs nýs árs.
Fátt hefur gerst um jólin en þó hefur ekki verið með öllu dautt. Við birtum því helstu fréttir.
* Pétur Blöndal Magnason og Ólafur Brynjar Halldórsson unnu Pub-Quiz KR-klúbbsins síðastliðinn fimmtudag. Þeir unnu í bráðabana eftir að hafa verið jafnir Kidda formanni og félaga hans.
* Skúli Jón Friðgeirsson og Gunnar Kristjánsson mynduðu tvíeyki í þeirri keppni. Þeim tókst meðal annars að svara vitlaust spurningunni um hverjir skoruðu mörk KR í leikjunum gegn Larissa.
* Logi Ólafs og Pétur Pétursson ákváðu að gefa leikmönnum einstaklega langt og gott frí til að hlaða battteríin.
* Ásgeir Örn Ólafsson og Atli Jónasson hafa ásamt Brynjari Orra Björnssyni ákveðið að leika í Noregi nú eftir áramót. Því er skarð höggvið í raðir okkar KR-inga.
* Enn bólar ekki á lausn markmannsvandamála okkar KR-inga. Áki hinn japanski stóð sig vel en við vitum ekkert hvað verður um hann og Svenni rauði hefur ekkert tjáð sig um málefni André Hansen.
* Kristján Finnbogason snýr aftur. Sú umræða hefur farið í gang að Kristján Finnbogason snúi aftur enda var hann eina ástæða þess að Grótta flaug upp í 1. deildina. Þá hefur hann einnig verið orðaður við Selfoss.
* Fengist hefur staðfest að Baldur Sigurðsson hafi virkilega skotið 40 rjúpur fyrir þessi jól.
* KR gerði jafntefli við Eyjamenn í síðasta leik sínum fyrir jól. Leikurinn endaði 2-2 og skoraði Gunnar Kristjánsson bæði mörk KR liðsins.
*Fyrsti leikur karlaliðsins í Reykjavíkurmótinu verður fimmtudaginn 14. janúar klukkan 21:00 í Egilshöll. Þá mætum við liði ÍR-inga.
* Fyrsti leikur kvennaliðsins í Reykjavíkurmótinu verður gegn HK/Víking, föstudaginn 15. janúar klukkan 19:00 í Egilshöll.
Nú þegar sól hækkar á lofti má búast við að líf færist í síðuna á nýjan leik.
Við hér á KRreykjavik.is viljum senda KR-ingum og öðrum dyggum lesendum síðunnar okkar bestu jólakveðjur.
Megið þið njóta jólanna, borða vel og verða feit og falleg.
Það er skyldumæting í Frostaskjólið á morgun. Allir sem takti geta haldið, vettlingi valdið og söngrödd þanið skulu mæta og styðja strákana til sigurs gegn liði Stjörnunnar. Við eigum enn möguleika á Íslandsmeistaratitlinum en erum þó bundnir þeim fúlu örlögum að þurfa að treysta á aðra.
En sigur gegn Stjörnumönnum á morgun getur sett okkur í seilingarfjarlægð.
Stjarnan er spútniklið Íslandsmótsins þó heldur hafi sigið undan þeim er liðið hefur á mót. Við KR-ingar vitum hins vegar vel að Stjarnan berst til síðustu stundar.
Við reiknum með að Logi haldi sama liði að mestu frá því í síðasta leik utan þess að Atli Jóh. er spurningamerki. Líkast til kemur Gummi Ben inn fyrir hann.
Það er sérstakt ánægjuefni að tilkynna að KR hyggst heiðra þá Pál Sævar Guðjónsson og Stjána “saxófón” Finnbogason fyrir tuttugu ára starf þeirra í þágu félagsins. Þeir verða heiðursgestir á vellinum, sem og lið Knattspyrnufélags Vesturbæjar, sem vann sér sæti í 2. deild á næsta ári. Við fögnum þeim ásamt Íslandsmeisturum KR í 2. flokki og C-liði 5. flokks.
KR-klúbburinn fírar upp í grillinu rétt fyrir fjögur og því um að gera að mæta snemma, hvetja, hrópa og hrósa.
Við á KRreykjavik.is ætlum að skora á Valsmenn að vinna FH-inga og halda þannig spennu í Íslandsmótinu fram á síðasta dag.
Það er alltof auðvelt að falla í þann fúla pytt að segjast ekki hafa nokkra trú á Valsmönnum og að þeir muni endurtaka leikinn frá 1991.
Þess vegna ætlum við að skora á Valsmenn að afsanna allar pælingar um slíkt og hreinlega slátra FH.
Það vita allir að Valsmenn hafa verið með skituna upp á bak í sumar og þjálfaramál þeirra hafa verið grín en í Valsliðinu eru fjölmargir frambærilegir knattspyrnumenn sem skulda stuðningsmönnum sínum betri frammistöðu.
Hvort sem menn vilja að FH eða KR verði meistari þá held ég að það geti ekki búið í nokkrum manni slíkt metnaðarleysi að tapa leik viljandi og hef enga trú að Valsmenn geri slíkt.
Við vitum það vel að orrahríð hefur staðið milli okkar og Valsmanna en orrustur skal gera út um á vellinum milli þeirra sem deila en ekki með stríðsplotti á öðrum stöðum.
Ég skora á Valsmenn að vinna FH og gera svo harða atlögu að því að svipta okkur titlinum í lokaumferðinni.
Vissulega hefði þessi umfjöllun átt að detta fyrr inn en undanfarnir dagar hafa verið svoddan rússíbanareið og landsleikjahléð svæft menn á verðinum.
En við mætum Fram í Laugardalnum klukkan 16:00 í dag. Bæði lið stefna í úrslit og það má því búast við hörðum og spennandi leik. Fram fór illa með okkur í dalnum fyrr í sumar en við hefndum á KR-vellinum um daginn. Hins vegar er um að ræða bikarleik og við vitum að í slíkum leikjum getur allt gerst.
Við hvetjum KR-inga til að fjölmenna í dalinn, syngja úr sér lungun og hvetja strákana til sigurs. Það er spurning hvernig liðin koma úr hléinu en bæði Baldur og Bjöggi voru í eldlínunni með landsliðinu gegn Georgíu á miðvikudag.
Stuðningsmenn KR ætla að hittast á Rauða ljóninu og vitað er að fjölmargir eru nú þegar farnir niður á Eiðistorg, í burger og bolta.
Skúli Jón og Diogo verða báðir í banni en við því er að búast að Pétur og Logi leysi úr þeim vanda og að við mætum öflugir til leiks - besta lið landsins.
Umboðsmaður Prince Rajcomar heldur því fram að KR standi á brauðfótum fjárhagslega og það sé forsenda þess að Prince hafi farið. Með öðrum orðum að Prince hafi fært félaginu þá fórn að kasta sér á spjótið og yfirgefa félagið, sem einhvers konar ölmusgerning.
Um leið semur hann við KR fyrir hönd Mark Rutgers á þeim forsendum að Mark sé svo æðislega hrifinn af félaginu og þjálfarateyminu að hann sé tilbúinn að færa fjárhagslegar fórnir. Hann sé tilbúinn að spila fyrir lægri laun hjá félagi sem er að verða gjaldþrota.
Það eru svo margar þversagnir í málflutningi umboðsmannsins að það er engu lagi líkt. Í raun má orða þetta svona: Mark hefur staðið sig og við KR-ingar viljum halda honum. Prince var ekki að standa sig, við KR-ingar vildum hann burt og umboðsmaðurinn þarf að halda haus gagnvart framtíðarviðsemjendum Prince, það er að hann sé vel þjálfaður, siðprúður með afbrigðum, vinnusamur og sérdeilis fljótur á fyrstu 100 kílómetrunum.
Gagnvart svona skítkasti umboðsmanns segjum við einfaldlega: “Æ - góði þegiðu!”
Í fyrsta sinn (sagt án ábyrgðar) er sýnt beint og lýst leik í 3. deild.
KV etur kappi við Huginn Seyðisfirði í 8 liða úrslitum 3. deildar karla.
KV-TV lýsir beint og er Björn Berg á míkrafóninum.
Slóðin á leikinn er http://www.ustream.tv/channel/huginn—kv
