
| S | M | T | W | T | F | S |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « Ágú | ||||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | |||
| 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | ||
Framundan er stórleikur KR liðsins gegn Vali og þar sem við hæfi er að hripa nokkra punkta um leikinn þá féll það mér í skaut að skella saman í eina grein. Það hefur ekkert með fyrri pistla mína um Val að gera. Leikurinn hefst klukkan 20:00 í kvöld og ef veðrið í dag helst jafngott fram á kvöld þá er fólk minnt á að taka með sér derhúfur, sólgleraugu eða standa móti stúku. Þá má dreifa vel úr sér í stúkunni því báðir tveir stuðningsmenn andstæðinga okkar taka ekki mikið pláss.
KR-klúbburinn byrjar að grilla upp úr klukkan sex og má búast við að borgarnir rjúki út. Við viljum endilega sjá fólk mæta í fyrra fallinu þannig að gott tóm gefist til þess að moka þessum rjúkandi nautahringjum ofan í fólk. Einnig verða kynntir til sögunnar nýir bolir KR-klúbbsins og má kaupa þá á spottprís.
En víkjum þá að umfjölluninni um sjálfan leikinn.
Halda áfram að lesa "Valsmenn í heimsókn í kvöld klukkan 20:00"
Sóley Tómasdóttir efsti maður á lista Vinstri grænna svaraði fyrstu spurningu en Lív Magneudóttir, sem skipar 3. sæti svaraði hinum spurningunum.
Halda áfram að lesa "Svör Vinstri grænna við fyrirspurn stuðningsmanna KR - 12 svör af 13."

Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi og formaður ÍTR skrifar svör Sjálfstæðisflokksins
Halda áfram að lesa "Svör Sjálfstæðisflokks við fyrirspurn stuðningsmanna KR - 5 svör af 13"

Oddný Sturludóttir og Felix Bergsson svöruðu spurningum fyrir hönd Samfylkingarinnar. Hér getur að líta 10 svör af 13.
Halda áfram að lesa "Svör Samfylkingar við fyrirspurn stuðningsmanna KR - 10 svör af 13."

Með bestu kveðju fyrir hönd Framsóknarflokksins í Reykjavík,
Valgerður Sveinsdóttir varaformaður ÍTR og skipa 3. sæti á lista Framsóknar til borgarstjórnarkosninga og Sigfús Ægir Árnason, fulltrúi Framsóknar í ÍTR sendu svör fyrir hönd Framsóknarflokksins.
Halda áfram að lesa "Svör Framsóknarflokks við fyrirspurn stuðningsmanna KR"
Sá sem þetta skrifar mætti á fund með fulltrúum framboðsflokkanna í gær úti í KR. Því miður var fámenni á fundinu og penni þessa pistils sat aðeins hluta hans. Engu að síður náðist að bauna þeirri spurningu á flokkana af hverju þeir hefðu ekki svarað, aðeins svarað að hluta eða dregið að svara þeim spurningum sem við hér á KRreykjavik.is sendum í febrúarmánuði.
Við bætum úr þessu og birtum svör allra flokka hér í dag og á morgun þannig að KR-ingum gefst kostur á að skoða svör flokkanna um æskulýðsmál í Reykjavík.
Til að gæta allrar sanngirni þá var staðan þessi í gær.
Sjálfstæðisflokkur hafði svarað 10 af 13.
Samfylking hafði svarað 10 af 13.
Vinstri-grænir höfðu svarað 1 af 13.
Framsókn hafði svarað öllum 13.
Framboð óháðra og Ólafs F. Magnússonar =póstur var sendur á Ólaf sem hafði engu svarað.
Besti flokkurinn hafði engu svarað.
Frjálslyndi flokkurinn = fékk sendan tölvupóst en í ljósi breytinga í flokknum þá er óvíst að hann hafi borist þeim.
Reykjavíkurframboðið = var ekki til þegar pósturinn var sendur út þannig að þeir óskuðu eftir tækifæri á að svara.
