
| S | M | T | W | T | F | S |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « Ágú | ||||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | |||
| 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | ||
Hjörvar Ólafsson mun taka við ritstjórn síðunnar. Hjörvar er lesendum síðunnar kunnur enda hefur hann skrifað pistla hér frá fyrsta degi. Við treystum Hjörvari fullkomlega fyrir þessu verki og setjum þetta í hendurnar á honum.
Við, bræðurnir, þökkum öllum dyggum lesendum og spjallverjum fyrir samveruna í gegnum tíðina og megi síðan og félagið okkar halda áfram að blómstra.
Þá viljum við koma þökkum til þeirra sem hafa staðið í þessu með okkur. Helst ber að nefna áðurnefndan Hjörvar, Oddi Helga fyrir myndir og aðra aðstoð, Max bræðrum og Magnúsi Lúðsvíkssyni fyrir KR-sjónvapið og öllum þeim sem veitt hafa okkur aðstoð með einum eða öðrum hætti.
Með KR-kveðju
Páll, Stefán Karl og Jón Bjarni Kristjánssynir.
Stórleikur KR og Fram í undanúrslitum Visa bikarsins er kl. 19:15 í kvöld. Leikurinn hafði áður verið settur á kl. 20:00 en hefur nú verið færður fram um þrjú korter. Leikurinn fer fram á heimavelli okkar KR-inga við Frostaskjól.
Að venju stendur KR-klúbburinn fyrir upphitun í félagsheimili KR.
Allir sem einn.
KR-klúbburinn stendur að sjálfsögðu fyrir rútuferð til Selfoss á morgun. Rútan leggur af stað kl. 17:30 frá Rauða Ljóninu á Eiðistorgi. Ef ég þekki Haffa á Rauða rétt þá verður hann með flott tilboð handa KR-ingum og því eru menn hvattir til þess að mæta snemma.
Þetta verður hörkuferð og það er skorað á alla KR-inga að fylkja sér á bak við liðið og snúa við gengi þess.

Mæta þessir? Efast um þann vintra megin enda Glory.
Við auglýstum eftir áhugasömum aðilum til þess að taka við ritstjórn síðunnar og nú þegar hafa nokkrir lýst yfir áhuga til þess að taka við. Það er vonandi að síðan muni því lifna við á nýjan leik á næstu dögum. En við ítrekum það sem áður hefur komið fram. Ef einhverjir hafa áhuga á að koma að þessu skemmtilega starfi þá eru þeir beðnir um að senda mér tölvupóst á pall@krst.is
Við KR-ingar sækjum Hauka heim í kvöld í 12. umferð Íslandsmótsins. Leikurinn hefst kl. 19:15 og fer fram á Hlíðarenda en Haukar leika heimaleiki sína þar þetta sumarið.
Um er að ræða fyrsta leik síðari umferðar en við KR-ingar gerðum jafntefli við Hauka í fyrstu umferð mótsins. Segja má að sá leikur hafi verið upphafið að óförum KR liðsins en við misstum unninn leik niður í 2-2 jafntefli á lokaandartökum leiksins, þrátt fyrir að hafa verið margfalt betri.
KR liðið hefur þó smátt og smátt verið að rétta úr kútnum en hlaut þó smá brotlendingu í síðasta leik á móti úkraínska liðinu Karpaty.
Hjá okkur eiga allir að vera klárir í slaginn. Guðjón Baldvinsson snýr til baka úr meiðslum en hann skoraði einmitt í leiknum gegn Haukum á KR vellinum.
Að venju hvetjum við alla KR-inga til þess að fjölmenn á valsvöllinn í kvöld. Árangur okkar þar er 100% og ekkert í spilunum sem bendir til þess að sá árangur muni breytast.
Í kvöld kl. 19:15 tökum við KR-ingar á móti Þrótturum á heimavelli okkar við Frostaskjól. Um er að ræða leik í 8. liða úrslitum Visa bikarsins. Þróttarar hafa ekki þótt leika vel í sumar og síðastliðinn föstudag gerðu þeir jafntefli á heimavelli við botnliði Gróttu 2-2, þá sömu og þeir jafnframt slógu út í 16 liða úrslitum keppninnar.
Hjá okkur KR-ingum eiga allir að vera klárir í bátanna. Guðjón Baldvins hefur reyndar átt við smávægileg meiðslu að stríða og vitum við ekki alveg hver staðan er á honum.
KR-klúbburinn verður með hefðbundna upphitun í félagsheimili KR og fara fyrstu borgararnir á grillið kl. 18:00.
